Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Qupperneq 50

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Qupperneq 50
KÁRL EIRÍKSSON: ' 11000 míliar í Píper Cmb FLUGFERÐ í LÍTILLI FLUGU UM ÞVER OG ENDILÖNG BANDARÍKIN ÞRIÐ]A GREIN 'W'IÐ flugum meðfram norðvesturströnd Colur d’Alene vatnsins, en borgin, sem ber sama nafn, stendur við norðurenda vatnsins. Lentum við á velli þar, sem er grasi vaxinn, eftir 2 klst. 10 mín. Eigandi vallarins var kona og var hún í senn flugkennari, viðgerðarmaður og framkvæmdastjóri vallarins. Flug- konan tók á móti okkur, fyllti vélina af benzíni og gaf okkur leiðbeiningar um flugið til Spokane Wash. Það er ekki langt, aðeins um 30 mílur, en það tók okkur þó 45 mín., sökum þess að smá fjallgarður, sem liggur milli þessara borga, teygir sig upp í 5200 feta hæð. Við lendinguna á flugvelli Spokane-borgarinnar slitnuðu gúmmí„demparar“ á afturhjóli vélarinnar, og reif það sig upp úr klæðinu á stélinu, og varð þetta til að ráða okkar næturstað að þessu sinni. Sem oftar kom amerísk hjálpsemi okkur til aðstoð- ar, núna í mynd ungs flugmanns, sem sá, hvað að var. Hann byrjaði á því að síma í bæinn og panta fyrir okkur herbergi, ók okkur á gistihúsið, náði í verkfærin sín og á leiðinni út á völlinn kom hann við í verzlun, þar sem við gátum fengið keyptan „dempara“. Vann hann svo með okkur, og þegar vélin var komin í samt lag, ók hann okkur í bæinn. í býtið næsta morgun var hann mættur til þess að fylgja okkur út á völl. Meiningin var að komast vestur að Kyrrahafsströnd og eitthvað suður með henni þennan dag. Helzt lang- aði okkur að komast alla leið suður til San Francisco. Landslagið á þessum slóðum var dálítið svipað og á leiðinni frá Suður-Dakota til Miles City í Mont- ana, en það var þar, sem við fengum fyrstu kynni af Klettafjöllunum, en nú vorum við að leggja þau að baki. Hér voru árgljúfrin mikið dýpri og hrika- legri. Á leiðinni skoðuðum við, að vísu bara úr vélinni, einhverja stærstu vatnsrafstöð í heimi, Coulee Dam. Létum við okkur það nægja, því að næsti flugvöllur var um 25 mílur frá stöðinni. Síðan tókum við stefnu suðvestur á bóginn og flugum nú yfir lítt ræktað eða byggt land, mikið sundurskorið af djúpum gljúfrum, og lentum í borg- inni Yokima í Washington ríki eftir tæpra 3 klst. flug frá Spokane. Við gáfum okkur varla tíma til að rétta úr okkur, heldur héldum við strax áfram til The Dallas. Var fjallgarður milli staðanna, og til þess að losna við hann, fórum við mikinn krók. Flugum við fyrst í suðaustur og síðan vestur niður með Columbiafljót- inu. Er það mikið fljót, sem rennur í þröngum skorn- ingum á þessum slóðum og við það skapast tígulegir hávaðar. Eftir að við sveigðum til vesturs, fór að verða mjög ókyrrt og virtist okkur lítið miða áfram. Lestirnir, sem voru á sömu leið og við, skutust fram úr okkur. Skildum við að vindurinn væri mun meiri en við höfðum fengið upplýsingar um að hann yrði, og reiknaðist okkur að hann væri um 45 mílur. Þetta gaf okkur minni tíma til að njóta hins fagra fjalla- hrings, en við okkur blöstu fjallstindar frá 11 og upp í 15000 feta hæð. Lengst til norðurs voru jökla- toppamir á Mount Rainier. Aðeins nær var Adams- Hrikalegt gljúfur i Washingtnnríki 48 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.