Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Side 51
33
vegna þess að ekki er hægt að reikna úl framlag Lífeyrissjóðs lil hvers
sveitarfélags, fyrr en þau hafa öll úthlutað, sbr. þó bráðabirgðalög frá
27. ágúst 1940, sjá bls. 44. En reynslan sýnir, að sveitarfélögin sjálf
greiða meiri hlutann af ellilaunum og örorkubótum, eins og síðar skal
sýnt (sjá bls. 84).
Framlag Lífeyrissjóðs finnst með því að margfalda tölu gamal-
menna 07 ára og' eldri á öllu landinu með kr. 52,50. Undanfarin ár hefir
þessi upphæð verið um 400 000 kr. á ári. Til þess að gera Lífeyrissjóði
kleift að standa straum af þessari greiðslu, skal ríkissjóður leggja
honum 200 þús. kr. árlega í næstu 50 ár (frá gildistöku Iaganna, uj)j>-
haflega 150 þús. kr. en hækkað 1937). Raunverulega kemur því fram-
lag Lífeyrissjóðs frá ríkinu, en Lífeyrissjóður lánar Jjví aðeins nokkurn
hluta framlagsins, en fær það endugreitt síðar, þegar framlag hans til
eílilauna og örorkubóta lækkar eftir ákveðnum regluin, um leið og
byrjað er að greiða elli- og' örorkulífeyri. Skal þá draga frá framlag'inu
helming af öllum lífeyrissjóðsgreiðslum á árinu.
Loks er árlega úthlutað vöxtum hinna gömlu ellistyrktar.sjóðá
sveitarfélaganna. Úthlutar hvert sveitarfélag sínum vöxtum. Vextirnir
eru nú ca. 85 000 kr. á ári. Alls eru því lil umráða lil úthlutunar, ca. %
milljón á ári hverju, fyrir utan hin beinu framlög úr sveitarsjóðum.
Úthlutunin sjálf fer lram í tveimur flokkum.
í I. flolcki er veitt þeim umsækjendum, sem lcomizt geta af með
minnstan styrk, eða sem nemur minnu en % lífeyri, eftir því sem næst
verður komizt að hann geti orðið, er IJfeyrissjóður íslands hefir tekið
til fullra starfa. Af ýmsum ástæðum er ekki hægt að áætla með neinni
nákvæmni, hve hár lífeyririnn getur orðið — m. a. af því, að tekjur
Lífeyrissjóðs fara að talsverðu leyti eftir skattskyldum tekjum í land-
inu (sjá síðar), — en þessar upphæðir hafa verið ákveðnar fyrst um sinn
sem hér segir: I Reykjavík 200 kr., í öðrum kaupstöðum 160 kr., í kaup-
túnum með yfir 300 íbúa 130 kr. og annarsstaðar 100 kr.
Er hér um hámarksupphæðir að ræða fyrir þennan úthlutunar-
l'lokk. Aðeins þeir umsækjendur, sem ekki hafa notið almenns fram-
færslustyrks næsta ár á undan geta fengið styrk í þessum l'lokki. Til
úhlutunar i I. flokki eru þessar upphæðir: Vextir ellistyrktarsjóðanna,
Vi af framlagi Lifeyrissjóðs, g'egn a. m. k. jafnháu framlagi úr sveitar-
sjóðum. Alls hafa þetta orðið um 300 þús. kr. á ári.
Þessum Ví hluta af frainlagi Lífeyrissjóðs er skipt á milli hinna
einstöku sveitarfélaga í réttú hlutfalli við ellilaun og örorkubætur veitt
úr hverjum sveitarsjóði árið áður. Þessar upphæðir allar er því hæg't
að reikna út áður en úthlutun fer fram og tilkynnir Tryggingarstofnunin
hverju sveitarfélagi þær fyrir 1. okt. ár livert.
Enda þótt ellilaun og örorkubætur séu miðuð við almanaksárið, eins
og fyrr greinir, er þó svo til ætlazt, að útborgun í I. flokki fari fram fyrir
jól, þar sem litið er l'rekar á þessar upphæðir sem glaðning, heldur en
eig'inlegan framfærslueyri.