Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Side 52
34
í ÍI. flokki er veitt þeim umsækjenduin, sem ekki geta komizt af
ineð hinar fyrrnefndu upphæðir í I. flokki íeða hafa þegið almennan
framfærslustyrk árið áður). Upphæðin er ákveðin fyrir fram fyrir eilt
ár í senn og er óendurkræf, og á því ekkert skylt við venjulegan fram-
færslustyrk.
í þessum flokki má hlutur hvers einstaklings ekki nema hærri
Upphæð en svo, að árleg ellilaun eða örorkubætur svari eðlilegum meðal-
framfærslueyri einstaklings, miðað við það byggðarlag, þar sern hann
dvelur. Ráðherra setur reglur um það, hvað telja skuli eðlilegan meðal-
framfærslueyri einstaklings. Hefir hann verið ákveðinn sem hér segir:
í Reykjavík 900 kr., í öðrum kaupstöðum 840 kr., i kauptúnum með
yfir 300 íbúa 720 kr. og annarsstaðar 600 kr. (Þessar upphæðir voru
hækkaðar á árinu 1940 vegna dýrtíðarinnar sambr. bls. 44). Veita má
þó hærri upphæðir, ef þess þarf, t. d. vegna veikinda umsækjandans,
ef hann þarf að liggja á sjúkrahúsi, en lífeyrissjóður greiðir ekki á móti
hærri upphæðum og verður því viðkomandi sveitarsjóður að leggja einn
fram það, sem umfram er hámarksupphæðiila. Þó er tekið tillit til slíkra
umframveitinga þegar reiknuð er út hlutdeild sveitarsjóða í I. flokki,
sem eins og fyrr var sagt, fer eftir þeim ellilaunum og örorkuhótum,
sem veittar hafa verið árið áður.
Það fé, sem úthlutað er í II. flokki, er % af framlagi Lífeyrissjóðs
Islands (ca. 300 000 kr.) og framlög sveitarfélaga. Framlagi Lífeyris-
sjóðs er skipt á milli hinna einstöku sveitarfélaga í sarna hlutfalli og
þau hafa lagt fram til ellilauna og örorkubóta á því ári. Þennan hluta
af framlagi Lífeyrissjóðs er því ekki hægt að reikna út fyrr en öl 1
sveitarfélögin hafa sent Tryggingarstofnuninni skýrslur um úthlutunina.
d. Þáttur Tnjggingarstofnnnar rikisins.
Eins og sjá má af framansögðu, hefir Tryg'gingarstofnunin engin
bein afskipti af úthlutun ellilauna og örorkubóta. Sveitarstjórnir ákveða
algerlega sjálfar -— innan þeirra takmarka, sem lögin setja um aldur
og heilsufar — hverjum eru veitt ellilaun eða örorkubætur og hve mikið
hverjum einstökum er veitt.
Þáttur Tryggingarstofnunarinnar er því aðallega að hafa umsjón
og eftirlit með úthlutuninni, skipta framlagi Lifeyrissjóðs eftir reglum
laganna o. s. frv.
Til þess að geta reiknað út heildarframlag Lífeyrissjóðs, þarf
Tryggingarstofnunin að safna nákvæmum skýrslum úm öll gamalmenni
á landinu, 67 ára og eldri. Þá fær Tryg'gingarstofnunin skýrslu frá
öllum sveitarfélögum um úthlutunina, sbr. það, sem að framan var sagt,
og reiknar síðan út framlag Lifeyrissjóðs til hvers sveitarfélags og hvers
einstaks gamalmennis eða öryrkja. Tryggingarstofnunin greiðir þessar
upphæðir til hvers sveitarfélags, sem síðan greiðir ellilaunin og' örorku-
bæturnar til þeirra, sem eiga að njóta þeirra.
Ennfremur má geta þess, að tryggingaryfirlæknir hefir ( síðan 1940)