Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Síða 60
42
Hfeyrissjóðsgjaldi meðlima og eiginkvenna þeirra, sem nemur meðal-
iðgjaldi til Lífeyrissjóðs Islands, á sama stað og tíma.
Þó er endurgreiðslan bundin því skilyrði, að Tryggingarstofnunin
viðurkenni sjóðinn, og eru almenn skilyrði fyrir því þau, að sjóðurinn
veiti meiri réttindi lil elli- og örorkulífeyris en Lífeyrissjóður íslands.
Sama kvöð um endurgreiðslu iðgjalda og hjá eftirlaunasjóðum banka-
manna, hvílir á slíkuin sjóðum. Samkvæmt þessum lagaákvæðum hafa
eftirtaldir sjóðir verið viðurkenndir: Ellistyrktarsjóður Hins íslenzka
prentarafélags, viðurkenndur árið 1938. Lífeyrissjóður Kaupfélags
Eyfirðinga á Akureyri, viðurkenndur 1939. Lífeyrissjóður Sambands
íslenzkra samvinnufélaga, viðurkenndur 1939.
/>. Lífeyrissjóður embættismanna.
Með lögunuin frá 1. febr. 1936, var gert ráð fyrir því, að aðeins þeir
embættismenn, sem þá greiddu iðgjöld til Lífeyrissjóðs embættismanna,
skyldu halda því áfram, og að yngri meðlimir en 40 ára, gætu fengið
endurgreidd iðgjöld sín. Þessu var þó breytt fljótlega með bráðabirgða-
lögum, sem Alþingi staðfesti 1937, og er því greiðsluskyldan sú sama
og áður en lögin frá 1936 gengu í gildi.
Það hafa því ekki orðið aðrar breytingar á Lífeyrissjóði embættis-
manna en þær, að stjórn hans er nú í höndum Tryggingarstofnunar
ríkisins i stað fjármálaráðuneytisins.
Afgreiðsla lífeyris er enn hjá ríkisféhirði.
c. Lífeyrissjóður barnakennciva.
Eins og áður er getið, var stjórn Lifeyrissjóðs barnakennara falin
Tryggingarstofnun rikisins með alþýðutryggingarlögunum. Á því varð þó
nokkur dráttur, að Tryggingarstofnunin tæki við sjóðnum og kom hann
ekki í vörzlu stofnunarinnar fyrr en í ársbyrjun 1939.
Samskonar ákvæði og um Lífeyrissjóð embættismanna, voru um
Lífeyrissjóð barnakennara í lögunum frá 1. febr. 1936, en þau voru aftur
afnumin með lagabreytingunni 31. des. 1937, og eru lög sjóðsins því nú
að efni lil óbreytt frá því fyrir 1936.
<1. Lífeyrissjóður Ijósmæðra.
Lífeyrissjóður Ijósmæðra var stofnaður með lögum frá 10. maí
1938. Áður höfðu ákvæði um eftirlaun til Ijósmæðra aðeins verið í yfir-
setukvennalögunuin frá 19. maí 1930, en samkvæmt þeim var það lagt
á vald sýslunefnda eða bæjarstjórna að ákveða þau. Ennfremur voru
árlega veitt eftirlaun til einstakra ljósmæðra í fjárlögum.
Stjórn Lífeyrissjóðs Ijósmæðra skipa: formaður Ljósmæðrafélags
íslands, ein ljósmóðir, sem kosin er á aðalfundi Ljósmæðrafélags ís-
lands, og þrír menn valdir af ríkissjórninni til þriggja ára í senn, og'
gengur einn úr stjórninni árlega.
Tryggingarstofnun ríkisins hefir á hendi rekstur sjóðsins sam-