Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Side 144
126
2. Lífeyrissjóður íslands.
Eins og skýrt hefir verið hér að framan, er Lífeyrissjóður íslands
ekki tekinn til starfa, að því leyti, að hann veitir enn eigi lífeyri. Hins
vegar hafa verið innheimt iðgjöld til sjóðsins síðan lögin gengu i gildi
og þykir því rétt að gera grein fyrir vexti hans og efnahag. Þess ber og'
að geta, að þó ekki sé veittur lífeyrir úr sjóðnum, leggur hann þó frani
árlega álitlega fúlgu til ellilauna- og örorkubóta, en í raun og veru er
þar um lán að ræða, sem sjóðurinn fær endurgreitt síðar.
Framlag Lifeyrissjóðs til ellilauna og örorkubóta er kr. 52,50 á ári
á hvert gamalmenni á landinu eldri en 67 ára og hefir það numið ca.
400 000 kr. á ári. Upp i þetta fær lífeyrissjóðurinn árlega frá ríkissjóði
kr. 200,000 og heldur sú greiðsla áfram í alls 50 ár, en þá á sjóðurinn
að hafa fengið framlag sitt greitt að fullu. í raun og veru stendur ríkis-
sjóður því undir öllu framlagi Lifeyrissjóðs til ellilauna- og örorku-
bóta, að undanteknum vöxtum ellistyrktarsjóðanna, en Lifeyrissjóður
heldur öllum tekjum sínum til greiðslu á lífeyri í framtíðinni. Þetta er
tekið fram vegna þess, að margir, — af eðlilegum ástæðum, — eiga erfitt
með að greina á milli ellilauna- og örorkubóta annars vegar og elli- og
örorkulífeyris hins vegar.
Eftirfarandi tafla sýnir tekjur, gjöld og efnahag Lífeyrissjóðs íslands
árin 1936—1939.
Tafla h't. Yfirlit um rekstur og efnahag Lífeyrissjóðs íslands árin 1936—1939.
Tekjur Gjöld Eignir í árslok
Lífeyrissjóðs gjöld Vextir Aðrar tekjur Tekjur alls Kostnaður Tekju- afgangur
Ár 1936 .... 677 153,58 422,84 )) 677 576,42 20 795,57 656 780,85 656 780,85
1937 .... 676 816,45 1 275,56 30,00 678 122,01 49 657,57 628 464,44 1 285 245,29
1938 .... 728 568,60 31 694,56 )) 760 263,16 56 004,45 704 258,71 1 989 504,00
1939 .... 629 795,16 59 192,12 )) 688 987,28 50 489,71 638 497,57 2 628 001,57
Við yfirlit þetta er það að athuga, sem fyrr var sagt, að Lífeyris-
sjóður leggur árlega ákveðna upphæð til ellilauna og örorkubóta
og eru þær upphæðir taldar með eignum í árslok, sem innstæða hjá elli-
launareikningi. Samtals nema þessar upphæðir með vöxtuin — þ. e.
innieign Lífeyrissjóðs hjá ellilaunareikningi —- í árslok 1939 kr.
425 888,55. Eins og' sjá má hér að framan, bls. 31, hefir heildar-
framlag Tryggingarstofnunarinnar þessi ár nuinið 1 268 290,00 kr. Af
þeirri upphæð hefir ríkið lagt fram beint kr. 700 000,00 (150 000 kr.
1.936—37 og 200 000 kr. 1938—39). Mismunurinn eru vextir ellistyrktar-
sjóðanna, sem úthlutað var með framlagi Lífeyrissjóðs árin 1937 og