Heimili og skóli - 01.08.1960, Qupperneq 14
58
HEIMILI OG SKÓLI
skólahús. í Hrísey og Flatey eru göm-
ul skólahús, en vel við haldið. I Gríms-
ey er áætluð bygging félagsheimilis og
skóla, ásamt stofu fyrir hið fræga bóka-
safn eyjarinnar. Gamla skólahúsið þar,
sem byggt var skömmu eftir aldamót-
in, er nú orðið mjög hrörlegt.
Tel ég því, að í Norðurlandi sé að-
staðan til skólahalds í kaupstöðum og
kauptúnum mjög góð og á sumum
stöðum ágæt.
En hvað er þá að frétta úr sveitun-
um?
Eins og fyrr getur, eru 35 skólahverfi
í sveitum, sem ekkert nothæft skóla-
hús eiga. Víða er í undirbúningi sam-
eining skólahverfa um byggingu skóla.
Er lengst á veg komið sameiningu urn
byggingu heimavistarskóla að Lauga-
landi á Þelamörk, en þar hafa skóla-
hverfi Skriðu-, Öxnadals- og Glæsi-
bæjar-hreppa sameinazt um byggingu
heimavistar-barnaskóla, og er áætlað
að framkvæmdir hefjist í sumar. — I
Mývatnssveit er hafin bygging heima-
vistarskóla við Álftagerði í Mývatns-
sveit. I Bárðardal er í byggingu fé-
lagsheimili og skóli að Stóru-Völlum
og ráðin er bygging skólahúss að Litlu-
Laugum í Reykjadal fyrir Reykjadals-
skólahverfi.
Má þá draga 6 skólahverfi frá þeirri
tölu er fyrr var greind, og verða þá
eftir 29 skólahverfi á mínu eftirlits-
svæði, sem ekkert skólahús eiga.
Það yrði oflangt mál hér að rök-
ræða áætlanir um sameiningu skóla-
hverfa og byggingu skóla fyrir þessi
29 skólahverfi, sem ekkert skólahús
eiga, en það er spá mín og von að
þessi byggingarmál leysist bráðlega á
hagkvæman hátt, svo að jöfnuður ríki
í skólahaldi strjálbýlisins. Er það laus-
leg áætlun að 5—6 skólabyggingar
dygðu fyrir þessi skólahverfi, ef sam-
eining tækist um þau mál. Er þá mið-
að við, að einn skóli væri byggður í
hvorri sýslu í Vestur- og Austur-Húna-
vatnssýslu. Eru jarðhitasvæði á mjög
heppilegum stað í hvorri sýslu, að
Reykjum í Miðfirði í Vestur-Húna-
vatnssýslu og að Reykjum á Reykja-
braut í Austur-Húnavatnssýslu. Er
Mýrasýsla gott fordæmi um sameining
heillar sýslu um skólabyggingu.
Allir viðurkenna nauðsyn þess að
skapa skólum góð starfsskilyrði með
vönduðum skólabyggingum og góðum
kennslutækjum, en þó er ekki hægt að
neita þeirri staðreynd, að starfsemi
skólans veltur meira á góðri skóla-
stjórn og góðum kennurum en góðu
húsnæði. Eitt mesta vandamál skól-
anna næstu áratugi verður skortur á
vel hæfum, sérmenntuðum kennurum,
þar sem hin öra fólksfjölgun veldur
stöðugri þenslu í skólahaldi þjóðarinn-
ar. — í Norðurlandi ýmínu eftirlits-
svæði) hefur fjölgað um 80 börn á síð-
asta skólaári. Það svarar til þess að
bætzt hefði við kauptún með 500—600
íbúum og vafalaust hefur þó fjölgun-
in orðið tiltölulega meiri á Suðurlandi.
— Þegar í haust mun verða mikill
skortur á kennurum, bæði við bama-
skólastigið og unglingastigið.
Margir leggja þá spurningu fyrir
sig, hvernig á þessum kennaraskorti
standi. Ég tel vafalaust að lakleg
launakjör sé höfuðástæðan, en jafn-
framt líka það, að dugmiklu, ungu
fólki standa svo margar leiðir opnar,