Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 31
HEIMILI OG SKÓLI
75
með vaxandi aldri og þroska barnsins,
koma fram nýjar hættur. Það sem
hættulaust var fyrir nokkrum vikurn
eða mánuðum, verður allt í einu
hættulegt barninu áður en okkur varir.
Ekkert herbergi í öllu húsinu er
eins eftirsóknarvert fyrir barnið og
eldhúsið, en það er jafnframt það
hættulegasta. Það koma um það bil
þrisvar sinnum fleiri slys fyrir í eld-
húsinu en nokkru öðru herbergi heim-
ilisins. Barnið lærir snemma að vara
sig á logandi ljósi eða eldi, en það
kann ekki að forðast brennandi plötur
á eldavélinni eða suðuplötunni. Þá
ætti það að vera föst regla, að ganga
þannig frá heitum pönnum og pottum,
að börn geti ekki náð til þeirra. Og
allra helzt ber þó að sjá svo um að
börn nái ekki í pottsköft eða handföng
og geti þannig steypt innihaldi þeirra
yfir sig.
Hrærivélar, hakkavélar, þvottavélar
og fleiri slíkar heimilisvélar eru stór-
hættulegar þar sem óvita börn komast
að þeim. Það verður að koma í veg fyr-
ir að þau geti t. d. sjálf sett þær af
stað. Hafa mörg slys hlotizt af því. Á
eldhúshillum og í baðherbergi eru
margir hlutir, sem valdið geta slysum.
Þá verður meðalaskápurinn, þar sem
liann er á heimilum, mörgum börnum
að bana. En á vorum dögum stafa
hvorki meira né rninna en 40% af öll-
um eitrunarslysum af efnum, sem í
hugsunarleysi eru skilin eftir í eldhús-
um, svo sem ýmis þvottaefni, gólf-
áburður, skordýraeitur, húsgagna-
áburður o. fl. o. fl. Einnig úti í garð-
inum bíða hættur, sem við höfum ekki
alltaf nægilega í huga. Garðsláttuvélin
getur kastað smásteinum langar leiðir,
og sært lítil börn alvarlega. Rafmagns-
garðskæri, borvélar o. m. fl. geta á
einu andartaki veitt börnum svöðusár,
ef þau freistast til að snerta þau með
litlum og forvitnum fingrum. Allt
slíkt á að geymast undir loku og lás.
Hið sama gildir um skordýra- og ill-
gresiseitur, sem allt of oft er geymt í
opnum hillum í kjallara eða göngum.
Ef bíll er á heimilinu, er það óum-
flýjanlegt, að honum fylgir sérstök
liætta fyrir börnin. Öruggasta sætið í
bílnum er auðvitað aftursætið. En nú
er það mjög algengt, að þegar börn
eru á ferð, er oftast setið með þau í
framsætinu við hlið bílstjórans, en það
er lang-hættulegasta sætið í bílnum, ef
bílstjórinn þarf til dæmis að hemla
snögglega, eða ef um árekstur er að
ræða.
Margir foreldrar skilja börn sín eft-
ir í bílnum, er þau hafa numið staðar
í bænum, og geyma þau þar á meðan
þau fara inn í búð að verzla, þótt þau
megi vita það, að börnin geta á einu
andartaki opnað glugga eða dyr og
dottið út, eða jafnvel geta losað hemil,
svo að bíllinn getur runnið af stað út
í umferðina.
Fullorðinn bílstjóri eða farþegar
hans verða að gera það upp við sig
sjálfa, hvort þeir vilja nota öryggis-
belti, en faðir eða móðir, er ekki notar
öryggisbelti á barn sitt, eða bindur það
fast í sérstök barnasæti, geta orðið völd
að dauða þess.
Með því að hafa alltaf í huga þessar
og aðrar svipaðar varúðarreglur, geta
foreldrar stórminnkað slysahættu á
heimilum sínum. En jafnvel þótt þessi
varkárni sé fyrir hendi, eru þó alltaf
einhverjar hættur, sem barnið sjálft