Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Qupperneq 36

Læknaneminn - 01.04.1957, Qupperneq 36
36 læknaneminn Fréttir úr deildinni. Félagsstarf Félags læknanema. Fundur í F.L. var haldinn mánudag- inn 17. desember 1956. Fundarstaður var matsalur Gamla Garðs, að venju. Fundarsókn var miður góð, hefur því eflaust valdið nálægð jólahátíðarinnar. 1 upphafi fundarins gerði formaður grein fyrir nokkrum félagsmálum. H. a. sagði hann frá því, að á fundi í Stú- dentaráði þ. 8. nóvember s.l. var sam- þykkt eftirfarandi tillaga frá þeim læknanemunum, Grétari Ólafssyni og Einari Baldvinssyni: „S.H.l. felur stjórn ráðsins að sjá um, að því verði fylgt fast eftir við rektor og háskólárað, að lækna- deildin fái aftur til afnota líkskurðar- herbergi það, er hún hafði í kjallara háskólans. Jafnframt, að skorað verði á prófessora læknadeildarinnar, að þeir hafi forsögu um, að líffærafræðilegur likskurður hefjist þar sem fyrst, og helzt í vetur". Ennfremur önnur tillaga frá sömu stúdentum um, að stjórn ráðsins beiti sér fyrir því, að Háskól- inn láti deildarfélögum í té húsnæði fyrir starfsemi þeirra. Formaður sagði, að stjórn F.L. mundi vinna að báðum þessum málum í samráði við Stúdenta- ráð. Fyrirlesari fundarins var Árni Björnsson læknir. Hann flutti mjög fróð- legt og greinargott erindi um handa- slys. Að lokum var sýnd kvikmyndin „Resuscitation in Cardiac Arrest". Myndin er framleidd á vegum Squibb lyfjaverksmiðjanna í Bandaríkjunum, og hafa umsboðsmenn þeirra hér, O. John- son & Kaaber h.f., eins og oft áður, sýnt okkur þá vinsemd, að útvega okk- ur hana. Umræðufundur um kennslufyrirkomu- lag deildarinnar var haldinn í I. kennslu- stofu Háskólans 20. febr. 1957, og er hans getið á blaðsíðu 28 hér í blaðinu. „Hin árlega „orgia" eða árshátíð Fé- lags læknanema, var haldin fimmtud. 21. febrúar 1957, I Tjarnarcafé. Bryn- leifur H. Steingrímsson cand. med. flutti þar skemmtilega og fjöruga ræðu um starfsfólk sjúkrahúsa. Flútningurinn hæfði efninu, og var með ágætum. Efnt var til happdrættis. Þátttaka félags- manna var meiri en oft áður, en virðu- leiki samkomunnar svipaður. Fundur var haldinn í félaginu þriðju- daginn 12. marz á venjulegum fundar- stað. Dr. Helgi Tómasson, yfirlæknir, flutti mjög fróðlega og athyglisvert er- indi um „læknanám". Gerði hann grein fyrir þingi, sem fjallaði um menntun lækna og haldið var í London 1953, en hann sat það sem fulltrúi Háskóla Is- lands. Rakti hann efni fyrirlestra og umræðna, sem þar fóru fram og gat um ýmsar merkilegar niðurstöður. Efni erindisins verður ekki rakið hér nánar, en LÆKNANEMINN vonast til að geta birt erindið í næsta tölublaði, þó að það hafi því miður ekki verið hægt að sinni. Próf. Hér fer á eftir skrá um þá, er próf- um luku i deildinni í lok síðasta haust- missiris. Embættispróf: Ása Guðjónsdóttir II. betri, 135% (9,67). Bragi Níelsson I., 149% (10,67). Ólafur Ólafsson (Bjarnasonar) II. betri, 145% (10,38). Ólafur Ólafsson (Gunnarssonar) I., 165% (11,83). Ólafur Haukur Ólafsson I., 150% (10,74). Ragnar Arinbjarnar II. betri, 140 (10,00). Ritgerðaverkef ni: Lyflæknisfræði: Ödemata (Etiologia, pathogenesis, greining og helztu atriði meðf erðar). Handlæknisfræði: Ueus. Helztu or- sakir, einkenni, greining og helztu at- riði meðferðar. II. hluti: Gauti Arnþórsson, Guðjón Guðmunds- son, Guðmundur Pétursosn, Ólafur Ingi- björnsson, Jacobine Paulsen, Snorri Ólafsson, Snæbjörn Hjaltason, Stefán Jónsson, Þorvaldur Veigar Guðmunds- son. I. hluti: Ásgeir B. Ellertsson, Einar Valur Bjarnason, Haukur Magnússon, Jóhann Þorbergsson, Ólafur Örn Arnarson, Sig- urður Sigurðsson, Sverrir Bjarnason, Vigfús Magnússon, Þorgeir Þorgeirsson. Embættispróf í tannlækningum: Guðmundur Ólafsson I. 164%, 11,76. Stefán Yngvi Finnbogason I., 165, 11,79. II. hluti tannlækninga: Guðmundur Ámason, Þorgrímur Jóns- son. I. hluti tannlækninga: Guðjón Axelsson. Fundir í Læknafélagi Reykjavíkur. 17. okt. 1956. 1. Oddur Ólafsson: Ferða-

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.