Læknaneminn - 01.10.1971, Side 18
18
LÆKNANEMINN
BJÖRN GUÐBRANDSSON, læknir:
Yfirlit um heilahimnubólgur9
sem komu á Barnadeild Landakotsspítala
1956—1971
I. Meningococca meningitis:
Af meningococca meningitis
voru 54 tilfelli.
Einkenni í röð eftir tíðleika:
1. Hiti (39° til 41° Celcius)
2. Hnakkastirðleiki
3. Hypersensitivitet
4. Uppköst
5. Fölvi
6. Húðblæðingar (17)
7. Meðvitundarleysi (6).
Rannsólcnir:
Mænuvökvi var púrúlent í öllum
tilfellum, en aðeins ræktaðist frá
10 sjúklingum. Negatív ræktun
var, vegna þess að sjúklingar höfðu
fengið meðferð fyrir komu, eða að
vökvinn hafði verið látinn bíða of
lengi.
Leucocytosis í blóði var hjá öll-
um, venjulega milli 20 og 30 þús-
un með v. hneigð.
Meðferð:
a) Specifisk: Allir sjúklingar
fengu kristal penicillin frá 12 til
24 millj. fyrsta sólarhring, sem
seinna var minnkað, auk þess
chloromycetin og sulfa, þar til víst
var, að ekki var um aðra tegund
af meningitis að ræða.
b) Symptomatik: súrefni, cedi-
lanid og parenteral vökvi, ef þurfti.
Aldur:
28 sjúklingar voru yngri en eins
árs, yngsti 6 vikna, sá elzti 12 ára,
stúlkur í litlum meirihluta.
Árangur:
Einn dó, 13 mánaða, kom inn
moribund með húðblæðingar og dó
tveim tímum eftir komu. Einn fékk
krampa um einu ári eftir veikind-
in og hefur verið á antiepileptica,
er dálítið á eftir, en þarf ekki hæl-
isvist.
Yfirlit:
Aðalatriðið er að greina sjúk-
dóminn snemma. Þjáningarsvipur
sjúklings og hin mikla vanlíðan
gefur strax til kynna, að um al-
vöru er að ræða. Oft er erfitt að
greina hnakkastirðleika, sem oft
er ekki til staðar.
Penicillin í stórum skömmtum er
bezta lyfið.
II. Hemophilus influenzae
meningitis, týpa b:
6 tilfelli voru af þessari tegund,
3 drengir, 3 stúlkur.
Einkenni:
Hiti, sljóleiki, krampar (3),
hnakkastirðleiki, niðurgangur. Hit-
inn var oftast hægfara, oft í viku.
Rannsóknir:
Hemophilus influenzae ræktað-
ist úr öllum tilfellum, mænuvökvi
púrúlent. Leucocytosis.