Læknaneminn - 01.10.1971, Page 68

Læknaneminn - 01.10.1971, Page 68
56 LÆKN ANEMINN árlega í hverjum flokki sem nemur um f 130.00 fyrir lægstu stöðurnar, um £ 140.00 fyrir registrara og um £ 120- 170.00 hjá Senior Registrörum. Starf læknis á brezkum sjúkrahús- um hefst yfirleitt kl. 9 á morgnana. Bretar eru þó menn árrisulir, þeir þurfa góðan morgunverð ög bað, lesa The Times og síðan að komast á vinnustað, sem getur verið talsvert fyrirtæki og tímafrekt á hverjum morgni. Hinsvegar eru menn ekki að flýta sér heim af spítölunum. Vinna heldur yfirleitt áfram með tiltölulega hægum og jöfnum hraða fram til kl. 20 eða 21 jafnvel fyrir þá, sem ekki eru resident, en hjá þeim er starfsdagurinn enn lengri. Það er ógern- ingur að lýsa vinnunni í smáatriðum, enda er hún nokkuð breytileg eftir sjúkrahúsum og/eða sjúkradeildum og svo því, hverri stöðu er gegnt. Segja má þó, að það, sem hér fer á eftir, sé nokkuð almennt í heiðri haft: Næg- ur tími er ætlaður tii stofugangs og ekkert tækifæri látið ónotað til þess að endurbæta sjúkrasögu og yfirfara ein- staka hluti klíniskrar skoðunar. Gefur þetta samtímis tilefni til kennslu og gagnlegra umræðna. Englenaingar leggja mikið upp úr því, að sjúkrasaga sé skrifuð af nákvæmni og að í henni gæti rökréttrar hugsunar. Mikilvægi hinnar klínisku skoðunar er hafið yfir alla gagnrýni og yndi það, sem þeir hafa af því að skoða nákvæmlega og rökrétt, er ótakmarkað. Snilli enskra lækna í þessu tvennu er slík, að áhorf- andi er tæpast í nokkrum vafa um að þeim loknum, hvað að sjúklingnum er og að rannsóknir allar eru svo gott sem óþarfar. Sú gamalkunna staðreynd er mjög í heiðri höfð, að ef menn ekki vita eftir töku sjúkrasögu og kliniska skoðun, hvað að sjúklingnum er eða hvar hans meins að leita, komast menn sjaldnast að þvi yfirleitt nema með óþarfa rannsóknarálagi — og dugar jafnvel ekki til. Þegar ungur læknir hef- ur presenterað tilfelli svo, að konsult- antinn veit sjúkdómsgreininguna að frá- sögn lokinni, getur hinn fyrrnefndi far- ið að gera sér framavonir, sérlega ef þetta endurtekur sig. Mikill tími fer í að tala við hina sjúku og skýra þeim allt það, sem við þá er haft í frammi. Hland verður ekki tekið frá sjúklingi til rannsókna nema skrif- legt leyfi komi til, hvað þá annað og meira. En Englendingar hafa það fyrir satt, að hinn sjúki sé ávallt talsvert meira þjáður en sem svari til sjúkdómi þeim, er hjá honum er greindur, og það er stolt hvers residents að jafna metin og hafa aldrei neinn óánægðan á sinni deild. En það fylgir jafnframt, að þegar skýra þarf hverja gerð, eru ástæður fyrir henni vel ljósar og með meiri rök- um til stofnað, en ella gæti orðið. Ég hef rætt um þetta atriði ekki aðeins vegna þess, hversu mikill hluti vinnunn- ar þetta er og hversu miklu nánara samband þetta skapar milli læknis og sjúklings, sem er mjög mikilvægt, held- ur vegna þess, að þetta leiðir af sér oft miklu yfirvegaðri og ábyrgari vinnu- brögð og oftast miklu áhrifameiri lækn- ingar. Hér heima virðist svo sem hægt sé að gera hvað sem er við sjúklinga án þess að hafa um það orð hvorki fyrr né síðar, en enda þótt sjúklingurinn leggi allt traust sitt á lækninn eins og þar stendur, þá hefur hann jú fyrsta veðrétt eigin lífs og lima, og hversu vel sem við meinum með rannsóknum ýmsum og svokallaðri meðferð, orkar þar margt tvimælis. Rannsóknir eru yfirleitt miðaðar við það, sem klínik gefur ástæðu til og ekki umfram það, sem ætla má sjúklingn- um að gagni. Auðvitað er hvert tæki- færi notað vísindunum til framdráttar, en enginn sjúklingur er gerður að til- raunadýri nema með hans samþykki, eftir að skýrt hefur verið fyrir honum í hvaða tilgangi tilteknar rannsóknir eru fyrirhugaðar. Daglega er náið sam- band við allar rannsóknardeildir, þar sem gerð er grein fyrir umbeðnum rannsóknum og ræddar niðurstöður. Meö þessum hætti verður rannsóknum sjaldn- ast ofaukið, gagnkvæm ráð eru gefin og þeir, sem rannsóknirnar gera, vita, hvers sérlega er leitað og fæst því venjulega árangursríkari og betri rann- sókn. Á enskum sjúkrahúsum virðast menn ávallt hafa nægan tíma til að ræða málin og gefa gagnkvæm ráð. Það virðist ávallt vera mögulegt að ná í menn á sínum stað allan daginn, og menn eru blessunarlega lausir við að þylrjast alvitrir um sitt fag, jafnvel þótt sumir enskir konsultantar komizt senni- lega nær því að vera það en nokkrir aðnr. Þetta eru reyndar allt einföld sannindi, en hversu tekst um fram- kvæmd þeiri‘a ræður miklu um, hversu menn una sér innan veggja einnar stofnunar og þá um leið rekstur hennar allan. Englendingar skynja þetta vel og hegða sér samkvænrt því. Gallinn við fmu teppin og nákvæmar bókhaldsvélar er nefnilega sá, að þau eru ekki einhlít.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.