Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1971, Page 105

Læknaneminn - 01.10.1971, Page 105
LÆKNANEMINN 85 ábending- um, að hrista þurfi rækilega upp í klinísku kennslunni, skipuleggja hana betur, auka gæði hennar og nýta til hennar fleiri sérfræðinga og sjúkra- deildir á Reykjavíkursvæðinu. Þó ber hins vegar að gæta vel þeirrar tilhneig- ingar, að nýjum kennaraembættum og námsgreinum í læknadeild hafa yfirleitt fylgt fleiri kennslustundir og aukin undirbúningsvinna nemenda. Kennslu- nefnd deildarinnar á nú að stýra því, að álag á nemendur í hverjum árgangi fari ekki úr hófi fram. En niðurskurð- ur námsgreina og endurskipulagning er vandasamt og viðkvæmt mál, og ber að vinna slík verk af hlutlægni og fullri yfirsýn yfir heildarnámið í deildinni. Nýju námsgreinarnar voru hugsaðar til auðveldunar læknisnáms fremur en við- bót við það. Gæta verður þess að falla ekki í sömu gryfju með þær og sumar eldri greinarnar, fara nú ekki að kenna t.d. ónæmisfræði, eðlisfræði, sálfræði, erfðafræði og tölfræði sem sjálfstæðar, óháðar greinar, heldur taka mið af not- um þeirra fyrir aðra hluta læknisnáms- ins, talast við og tengja milli greina. 1 september s.l. var á vegum lækna- félaganna haldið í Norræna Húsinu og Domus Medica námskeið í læknisfræði- legum rannsóknaraðferðum og tölfræði. Stóð það í fjóra daga. Kennarar voru fjórir danskir læknar undir forystu Povls Riis, yfirlæknis, sem m.a. á sæti í rannsóknarráði Dana, er formaður norrænnar samvinnunefndar um lækn- isfræðilegar rannsóknir og ritstjóri Ugeskrift for læger. Þetta eru allt fremur ungir menn, sem sérhæft hafa sig á þeim sviðum tölfræði, sem þarf til áætlanagerða, úrvinnslu og upp- gjörs á læknisfræðilegu rannsóknaefni. Þeir fjölluðu einnig á námskeiðinu um vanda sjúkdómsgreiningar og sjúkdóma- flokkunar. Þótt kennsla stæði átta tima á dag og undirbúningur flestra nemenda væri lítill, þá hélzt athyglin vakandi vegna líflegrar og áhugavekjandi fram- setningar kennaranna. Læknadeild H.I. hefði átt að hafa meiri not af þessari heimsókn en raun varð á, en við vorum þarna tveir stúdentar og fáeinir auka- kennarar. Þetta var hröð yfirferð yfir það námsefni í þessum fræðum, sem heima á í læknakennslu. Eftirspurn er miltil í Danmörku eftir námskeiðum þessara manna, en þeir halda þar árlega um fjögur námskeið, hvert fyrir 20—30 lækna. Sögðust þeir ná hér til stærri hluta læknastéttar landsins en þeir gætu nokkurntíma vænzt í Danmörku. Hvat- inn til starfs þessa kennarahóps var m. a. sá fjöldi ógildra niðurstaöa og óleyfi- legra ályktana, sem birtust í aðsendum greinum til læknisfræðitímarita. Und- anfarin ár hefur ritskoðun i þessum efnam orðið mun strangari en áður, og veitti víst ekki af. Sem dæmi má nefna, að athugun á tæplega 300 greinum, birt- um í tíu velmetnum bandarískum lækna- blöðum fyrsta ársfjóröung ársins 1966, leiddi í ljós, að aðeins 27,5% af 149 skýrslum, sem ekki fjölluðu um einstök tilfelli, voru tölfræðilega gildar. I hin- um voru alls 253 villur, sem hver um sig gat valdið því, að lokaályktunin varð ekki leidd rökrétt af rannsóknar- niðurstöðum og uppsetningu viðfangs- efnis (Scor, S. og Karten, I.: J.A.M.A. 1966:195:1123). Vonandi er læknum ó- hættara nú en áður að halda þekkingu sinni við með lestri tímaritsgreina í frí- stundunum (!). Utanríkisviðskipti Félags læknanema hafa verið með líflegasta móti síðustu misserin. Vetrarþing Alþjóðasamtaka læknanema (IFMSA) í Reykjavík um siðustu áramót þótti takast vel, og mark- ar það timamót í sögu F.L. Formaður félagsins sótti ársþing samtakanna í París í ágúst í sumar og mun segja frá því síðar. Skýrsla mun birtast í næsta Læknanema um stúdentaskipti á árinu. Margt er tiðinda af norrænum vett- vangi. Ingimundur, fyrrum stjórnar- maður okkar í Norræna læknanemaráð- inu (NMR), fór til Stokkhólms í vor á ráðstefnu um sócialmedisín, en á eftir að skila skýrslu (eins og fleiri). Jörgen Nystrup, læknanemi frá Árósum, heim- sótti okkur i fjóra daga seinnihluta ágústmánaðar. Hann hefur verið fram- kvæmdastjóri NMR um tveggja ára skeið, en lét af þeim störfum nú í októ- ber. Hér ræddi hann við ýmsa meiri háttar menn í hópi læknanema, í lækna- deild og heilbrigðisstjórn. Mest um- gekkst hann hina hrumustu úr hópi ís- lenzkra læknanema og þá af þeim beina. Athygli Jörgens beindist einkum að frjálsri inngöngu i Læknadeild H.í. og skýrslu Davíðs deildarforseta og Ottós tölfræðings um afdrif stúdenta í deild- inni miðað við stúdentsprófseinkunn, skóla og kyn. Einnig vöktu athygli hans persónuleikaprófin á íslenzkum lækna- stúdentum í febrúar 1970, áætlanir heilbrigðisstjórnarinnar um læknisskip- an í dreifbýlinu og rannsóknir próf. Tómasar Helgasonar á geðsjúkdómum á íslandi. Við gerum okkur ekki alltaf
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.