Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1974, Page 10

Læknaneminn - 01.03.1974, Page 10
SAMHANÖ SJÚKLINGS OG IÆKMIS 1 Mönnum verður æ tíðræddara um mikilvægi góðs sambands milli sjúklings og læknis. Oftast er litið á þetta sem einfalt samband tveggja (mynd l.a) per- sóna, en í raun og veru er það ekki þannig. Þarna mætast ekki aðeins tveir einstaklingar, heldur tvær verur úr mismunandi félagslegu umhverfi. Læknir- inn er fulltrúi stéttar með vel skýrgreind boð og bönn urn hegðun og hefur yfirleitt allt annað félags- legan og menningarlegan bakgrunn heldur en sjúkl- ingurinn (mynd l.b). Sjúklintjurinn Nú skulum við líta á uppbyggingu sjúkdóms- heildarinnar. Sem útgangspunkt veljum við sárs- aukann (ýmislegt annað mætti velja). Hann getur átt rót sína í hinu andlega ástandi og getur á hinn bóginn valdið andlegri vanlíðan. Þessi breyting á líðan sjúklingsins hefur í för með sér félags- og sál- fræðilegar afleiðingar, sem að öðru jöfnu standa i réttu hlutfalli við styrk sársaukans. Sem fyrstu afleiðingu má nefna óttann, bæði við sársaukann sem slíkan og einnig við það er hann gæti boðað. Sjúklingurinn er með allan hugann við sjálfan sig, en losnar úr tengslum við umhverfið. Hann missir áhugann á að taka ákvarðanir og fram- kvæma, með öðrum orðum athafnaþráin minnkar. Með tímanum getur hin sálræna truflun vaxið svo mikið, að sjúklingurinn hættir að rækja störf sín og skyldur, það er að segja afköstin minnka. Um leið og afköstin minnka kemur krafa frá umhverfinu, at- vinnuveitanda, skóla, heimili, um staðfestingu á sjúkdómnum. Hinn sjúki hefur því þörf fyrir eins konar löggildingu á sjúkdómnum (,,vottorð“). Aðrar og ekki ómerkari, afleiðingar af minnandi afkasta- getu eru áhyggjur vegna heimilis, ættingja, vinnu o. s. frv. Minnkuð afköst, ásamt sársauka og sálrænni truflun, hafa í för með sér hjúkrunarþörf hjá hinum sjúka. Sjúklingurinn gerir þar með óvenjulegar kröf- ur lil umhverfisins, sem ítrekar þá kröfu sína um staðfestingu á sjúkdómnum. Hugsanlega gæti samviskubit verið enn einn þátt- urinn í líðan sjúklings. Hinir trúuðu gætu litið á sjúkdóminn sem refsingu guðs fyrir syndir, hinir trúlausu myndu ásaka sjálfa sig fyrir óheilsusamlegt líferni. Ofantalin atriði, sem eru í hópi þeirra veigamestu í sjúkdómsheildinni, geta með víxlverkunum sínum leitt lil vaxandi vanmáttakenndar hjá sjúklingnum. Þetta þýðir auðvitað að hann er hjálpar þurfi og hér er það sem læknirinn kemur í spilið. M YWD 1 8 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.