Læknaneminn - 01.03.1974, Side 24
PÓtLANDSFERÐIN
Ási Tóti Óttar
Afhverju Pólland? Jú, við fórum í stúdentaskipti
til Póílands sl. sumar til þess að kynnast einhverju
framanöi, til að vikka sjóndeildarhringinn og til að
skemmta okkur. Hins vegar fórum við síður til að
afla okkur læknisfræðilegra staðreynda. Þetta allt
tókst bærilega. I rúmar 3 vikur dvöldumst við í
borginni Krakow (á sömu breiddargráðu og París)
og höfðum innkomu á stórum barnaspítala þar í
borg, en fæði og húsnæði á stórum stúdentagarði.
Barnaspítalinn í Krakow er ekki nema 8 ára gam-
all. Þetta er 300 rúma sjúkrahús með skurðdeild.
Sjálfum sér nógur hvað snertir alla ytri aðstöðu og
vel búinn tækjum og starfsliði. Eftir því sem við höf-
um vit á virtust allar lækningar þarna samræmast
því besta, sem við höfðum séð og lesið um.
Það var tvennt sem helzt vakti athygli okkar á
spítalanum. Annars vegar hvað stofnunin var vel bú-
in tækjum og allri paramedical þjónustu. (T. d.
hjálpar það manni að skilja óánægju patólóga á
Barónsstígnum að sjá sárstaka patólógíska deild á
þessum 300 rúma barnaspítala með 3mur patólógum
og fullkomnum tækjum. Og dýrabúið fyrir klíniska
serológíu, virólógíu og bakteríólógíu fyrir þessa
einu stofnun er stærra heldur en allt gólfpláss fyrir
þessar greinar hér í Reykjavík. Gammakamera er
að koma á þennan spítala og elektrósmásj á er kom-
in.)
Hitt sem vakti athygli okkar var tvíeggjað, bæði
jákvætt og neikvætt. Það voru vinnusiðir og mönn-
un. Þar mátti lesa tvennt, annars vegar stirðbusa-
gang og skrípaleik ríkiskapitalismans, og hins vegar
rólyndi og streituleysi þegnanna, sem búa við at-
vinnuöryggi og takmarkaða neyslumöguleika. A
þsjsum spítala hlaupa engir, nema börnin, og enginn
öskrar nema honum sé illt. Allir hafa tíma til að
spjalla. Við vorum á spitalanum 3-4 tíma flesta
daga, sem táknaði að þann tíma voru alltaf einn til
tveir læknar einungis í því að snúast í kringum okk-
ur, og þökkuðu svo fyrir sig á eftir. Á sama hátt
tímabil og mjög oft ógleði og uppköst og verði löng-
um miður sín, fengið hitavellu og oft með upp undir
38° hita. Einnig í sögunni mikil obstipatio. Farið
versnandi nú s. 1. 2 vikur, stöðugir verkir, ógleði,
vanlíðan, uppþemba og hitavella. Við skoðun er að
sjá fölan, grannan tekinn dreng. Þvag og blóðstatus
er eðlilegur, kviður er nokkuð fyrirferðarmikill,
hægra megin í kviðarholi palperast óljós fyrirferðar-
aukning, sem virðist vera faecesklumpur í colon.
Kviður er allur nokkuð mjúkur, hvergi defans en
greinilega meiri eymsli í hægri hlutanum en í vinstri.
Ekkert frekar aumur yfir McBurney en annars stað-
ar. Ákveðið er að gera explorativa laparotomiu 7.
maí 1973. Svar á bls. 41
16
LÆKNANEMINN