Læknaneminn - 01.03.1974, Blaðsíða 64
PRE-KLÍNISKA STADIET Anaiomí medicínsk geneiik Histologi
© Anatomi medicinsk siatistík
Medicinsk kcmí aliman kemi
® . mcdicinsk fysik Fysiologt mcdicinsk psykologi
JMLJCU JLr* nAW JU*
© PROPEDKUTISKA STADIKT Medicinsk mikrobiologi Putologi
© kiinisk propedcutík Farmakologi klinísk kcmi ktinisk fysíologí
© KLINLSKA STAWBTS FÖRSTA DEL Medicin
í © Kirurgi
® KUNISKA STADiœ AM>*A DEL Psykíatri*) försvars och Infektionssjukdomar katastrofmcdicin Dermato-Venercologi
Neurologi Oto-rhino-laryncologj Hygien**) Oftalnuatrik Socíalmedícin Raltsmedicin***)
Obstetrík-Gynckologí barnpsykiatri Pcdiatrik
C5/, o. fl. Þetta material fengu
stúdentar mikið hver úr 'óðrum og
inniliggjandi sjúklingum. Að
þessu loknu voru tekin bæði skrif-
Ige og munnleg próf.
7. Önn: Medisin
Nú hófst hin eiginlega klíniska
vinna, með námskeiði í medisín
í 5 mánuði með eftirfarandi prófi.
Hópnum var skipt í 4—5 manna
hópa, sem róteruðu í gegnum
medisínsku deildirnar: 1 vika á
rtg., 2 vikur á fysiologisku labora-
torii, 1 vika á hjartadeild, 10 dag-
ar á thoraxdeild, 3 vikur á reuma-
tólógískri deild, 6 vikur á melting-
ardeild, 3 vikur á nýrnadeild, og
3 vikur ci endokrinólógiskri deild.
(Samtals 18 vikur). Fyrirlestrar
voru á milli 11-14, en annar tími
dagsins var jiýttur á deildunum.
A öllum klínisku deildunum var
því hart fylgt eftir, að stúdentar
stæðu sig sem best. Frammistaðan
á deildunum kom fram á árseink-
unn, sjúrnalar voru metnir lil eink-
unnar. Tvisvar til þrisvar í viku
voru ákveðnir kennslustofugangar,
þar sem stúdentar urðu algjörlega
að standa skil á þei?n sjúklingum,
sem þeir höfðu sjúrnalíserað, og
sú frammistaða síðan reiknuð til
árseinkunnar.
Meðan á dvölinni á fysiologísku
laboratori stóð var stúdentum
kennt að lesa og ráða Ekg. Fengu
þeir þá í hendur strimla með rit-
um, sem þeir áttu að ráða. Eftir
ákveðinn tíma fengu þeir svo seg-
ulbandsupptöku þar sem ráðning-
una var að finna. Úr þessu var
síðan prófað.
Á öllum deildum var vel fylgst
með frammistöðu stúdenta og þeir
prófaðir, og í lok dvalar á liverri
deild, var fundur allra lœknanna
og yfirhjukrunarkvenna,, þar sem
frammistaða stúdents var metin.
Námskeiðinu lauk með prófi.
Hvað snertir kennslubók, sagði
Friðfinnur, að flestir hefðu stuðst
við Harrison, en notað mest litla
sœnska bók, sem heitir Invárts
medicin, og fyrirlestra, en þeir
voru mjög góðir (gefnir út fjöl-
ritaðir sem fyrr).
8. Önn: Kirurgi
Þegar ég dvaldist hjá Friðfinni
var þessi önn nýhafin. (þ. 20.
jan.) Onnin byrjaði nieð þriggja
vikna fyrirlestratíma um helstu
undirstöðuatriðin, (frá kl. 8—17).
Síðan hefst svipuð rótasjón á
skurðdeildum eins og áður hafði
farið fram á medisin: tími á G. 1■
T. deild, endokrinologiskri skurð-
deild, 1 vika á póliklínikk, 3 vikur
á gjörgœslu- og svœfingardeild, 3
vikur á traumatologiu, 2 vikur a
ortopediu, þessu námskeiði lýkuT
þ. 14 júní.
Hvað snertir bœkur í kírugh
hefur mest verið stuðst við nor-
rœna kompendiið, en núna nýver-
ið fóru kennarar að mœla mjog
með nýrri bók, Surgical diagnosis
and treatment (frá satna forlagt
og Current diagnosis and treat-
ment), sem þeir sögðu lang-bestu
bókina fyrir stúdenta í greininni■
Á meðfylgjandi mynd sést vel
skipulagið á framhaldinu.
46
læicnaneminn