Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 8

Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 8
Slitrur úr Sullasögu Islands Bjarni Jónsson, yfirlœknir Sullaveiki, geitur, holdsveiki, tæring, það er raunaleg upptalning, en þetta voru sjúkdómar ís- lendinga, eins þjóðlegir og skinnskór, torfbæir og rímur. Allt heyrir þelta til liðinni tíð. Gunnlaugur Claessen læknaði geitnakollana og holdsveikin leið undir lok að kalla í tíð Sæmundar Bjarnhéðinssonar, sem stjórnaði Laugarnesspítala frá stofnun hans 1898 til ársins 1934, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. I upphafi baráttunnar gegn berklaveikinni, voru þeir framámenn Guðmundur Björnsson, Sigurður Magnússon og Magnús Pélursson, en á síðasta áfang- anum hvíldu berklavarnir mest á Sigurði Sigurðs- syni og Ola P. Hjaltested, og nú hefur berklum verið útrýmt eins kirfilega og unnl er um smitsjúkdóm, sem er landlægur 1 flestum ef ekki öllum löndum veraldar. En vegna þess hve föstum íótum sá sjúk- dómur stendur víða þurfa læknar að halda vöku sinni um alla framtíð, að ekki nái hann fótfestu hér >ó hann kynni að slæðast að landi. Og nú höfum vér vonandi ýtt sullaveikinni fram af ætternisstapa. Lengi var það hún, sem ein hélt uppi frægð landsins í læknaheiminum, fyrst fyrir þá sök, að hér væri versta sullabæli í veröldinni, en löngu seinna vegna þess, að vér hefðum rekið af oss slyðruorðið og losað oss við það óféti - einir sauð- fjárbænda - og var því þó minna haldið á loft eins og títt er um það sem vel er gert. Hvenær sullaveiki barst til Islands er ekki vitað né heldur hvern veg. Landnámsmenn komu hér að óbyggðu landi og þó gnægð væri dýra í lofti og legi þá hafa ekki verið önnur spendýr á landi en kannske refir og hagamýs. Til þess, að sullaveiki geti þrifist þarf hýsil fyrir orminn og annan fyrir blöðrustig hans. Bandormur- inn - taenia echinococcus — lifir í hundum en blöðru- stigið — sullurinn, echinococcus - þrífst í sauðfé, nautgripum, svínum og mönnum’”')- Þarf þá hundur að vera í sambýli við eitt eða fleiri af þessum hús- dýrum til þess að lífsþráður bandormsins slitni ekki, því að ólíklegt er, að hundar komist í lík af sollnu fólki. Nú hafa landnámsmenn flutt með sér þessi dýr öll þó að í smáum mæli væri og þau síðan æxlast í þann búslofn, sem vér höfum búið við. Mikill hluti landnámsmanna kom frá Noregi en nokkrir frá eyjunum: Orkneyjum, Suðureyjum, Hjaltlandi og írlandi. Guðmundur Magnússon3 segir, að sullaveiki muni aldrei hafa verið til í Noregi, en nú á dögum finnist hún á fyrrnefndum eyjum en sé engan veginn algeng. Hvort hún hefur verið þar á landnámsöld eða borist þangað síðar veit ég ekki. Til þess að fá vitneskju um það þyrfti að finnast þar hræ af sollnu dýri, sem svo vel væri varðveitt að finna mætti í því sullina, en ekki er mér kunnugt um það. Eru slíkir fundir harla ólíklegir en þó hafa fundist í Danmörku ævaforn lík, sem svo vel hafa geymst að furðu sætir. Ekki er líklegt, að búfénaður hafi verið fluttur hingað eftir að landnámi lauk, þar til á 18. öld að það var gert til kynbóta - fylgdi því lítil heill, en það er önnur saga - en þá hefur sullaveiki verið orð- in algeng. Hins vegar er ekki ósennilegt og raunar vitað að hundar hafa slæðst hingað. „A Norður-þýskalandi kringum suma Hansa- staðina, sem versluðu á íslandi, t. d. Rostock hefur sullaveiki verið algeng síðan læknar kynntust henni“, segir Guðmundur Magnússon.3 Ekki hefur þurft nema einn hund bandormasjúkan til þess að tendra það bál, sem logaði glatt frá því það kviknaði og fram á þessa öld hvaðan sem hann hefur komið og Islendingar voru víðförlir þá eins og nú. Sullur hefur nú aðeins eina merkingu lækna á * Sullur lifir líka í antilópum, gíröffum, úlföldum og geitum og þó sjaldgæft sé líka í hestum, öpum og kengúrum (Ras- mussen11, en ormurinn þrífst líka í úlfum og sjakölum (Leuckart2). 6 LÆKNANEMINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.