Læknaneminn - 01.10.1975, Page 41
að skrásetja blinda og sjóndapra skv. alþjóða-
reglum. Er það forsenda þess að hægt sé að
kanna blinduorsakir og síðan finna leið til
úrbóta, bæði að koma í veg fyrir blindu og
hjálpa þeim, sem misst hafa sjón.
Um tilhögun þessarar blindraskráningar verð-
ur ekki rætt hér, en heilbrigðisyfirvöld þyrftu
að beita sér fyrir, sem nákvæmastri skráningu.
Eins og áður greinir, er blinduskráning hér-
aðslækna alsendis ófullnægjandi eins og von-
legt er, þar sem ekki er gerð skipuleg könn-
un.
6.3. Skráning glákusjúklinga. Þar sem vitað er að
hægfara gláka er lang algengasta orsök blindu
hér meðal roskins fólks, er æskilegt að sem
flestir glákusjúklingar séu á skrá, lil þess að
betur sé hægt að fylgjast með meðferð þeirra.
Margir glákusjúklingar hafa orðið blindir af
ónógri gæzlu. Þar sem glákusjúklingar eru nær
eingöngu stundaðir af augnlæknum ætti sú
skráning að vera tiltölulega auðveld í fram-
kvæmd.
6.4. Menntun augnlœkna og stoðstétta þeirra. Eins
og fram hefur komið eru augnlæknar of fáir
hér á landi. Nú sem stendur eru 4 læknar ný-
byrjaðir á sérnámi, en þeir verða ekki komnir
til starfa sem fullgildir sérfræðingar fyrr en
eftir 4-5 ár. Hluta af náminu er hægt að taka
hér við augndeildina á Landakoti og eru nú
sem stendur 2 aðstoðarlæknar í námi á deild-
inni. Er von á fleirum í sérnám, en erfiðleikum
er bundið að fá námsstöður erlendis.
Það líða því nokkur ár þar til viðunandi
fjöldi augnlækna verður starfandi hér á landi.
Auk augnlækna er nauðsyn að stoðstéttir
þeirra séu mannaðar og á ég þar einkum við
augnþjálfa og fólk, sem gerir mælingar á sjón-
sviði. Tveir augnþjálfar starfa á göngudeild
augndeildarinnar. Mættu fleiri bætast við hér
á Reykjavíkursvæðinu og á Akureyri. Æski-
legt væri að augnþjálfi starfaði við augnskoð-
un barna í barnaskólum.
6.5. Augndeild. Þar sem tækjakostur er dýr á augn-
deild og sérhæfing í sambandi við skurðstofu,
skoðun oghjúkrun augnsjúklinga,erhagkvæml
að ein augndeild sé hér á Reykjavíkursvæðinu,
lndverski lœknirinn Susruta gerir aðgerð á sjúklingi með
cataract árið 500 j. Kr. Hann er ojt kallaður Hippokrates
índlands.
eins og nú er. Þarf því að búa vel að þessari
einu augndeild, sem þjónar mestum hluta
landsins. Sjúkrarúm á augndeildinni á Landa-
koti eru of fá eins og fram hefur komið.
Bæta þarf skoðunaraðstöðu inni á deildinni
og sérþjálfa þarf hjúkrunarfólk á augndeildina
og skurðstofu.
Sökum stóraukins sj úklingafj ölda er göngu-
deild augndeildar orðin of lítil og þarf sú starf-
semi aukið húsrými eigi hún að geta annað
auknu álagi.Göngudeild er forsenda þess, að
hægt sé að mennta að hluta augnlækna hér-
lendis og að unnt sé að veita læknanemum
verklega kennslu í augnsjúkdómum. Bæta þarf
spítalaaðstöðu augnlæknis á Akureyri eða
stofna þar sérstaka augndeild.
6.6. Augnlæknisþjónustu á almennum sjúkrahús-
um, elliheimilum og heilsugæzlustöðvum þarf
að bæta. Þyrfti bæði skoðunaraðstaða og lág-
marks tækjakostur að vera fyrir hendi til
þess að augnlæknisþjónusta kæmi að gagni.
6.7. Fyrirbyggjandi aðgerðir. Suma sjúkdóma, sem
orsaka blindu, er hægt að koma í veg fyrir eða
stöðva þróun þeirra. Meðal roskins fólks er
læicnaneminn
35