Læknaneminn - 01.10.1975, Page 43
rænnar sjóndepru meðal barna og fleiri blindu-
valdandi sjúkdóma.
6.9. Frœðslustarfsemi. Fræðsla um augnsjúkdóma
og þá einkum blinduvaldandi sjúkdóma og
augnslys er einn iiður sjónverndarstarfsemi.
Þessi fræðslustarfsemi þarf að ná bæði til al-
mennings og heilbrigðisstétta.
Alþýðlegar greinar þyrftu að birtast annað
slagið um sjónverndarmál í blöðum og tíma-
rituin. Einnig er útvarp og sjónvarp kjörinn
vettvangur fyrir slíka fræðslu. Tel ég að upp-
fræðsla almennings hafi mikið að segja, eink-
um varðandi slysavarnir. Það getur oft haft
úrslitaþýðingu hvort viðkomandi heldur sjón
eða ekki, hvernig brugðizt er við, þegar augn-
slys ber að höndum.
Verklega kennslu læknanema og kandidata
þarf að auka. Æskilegt væri að koma á nám-
skeiðum í sjónverndarstarfsemi meðal héraðs-
lækna og hj úkrunarfólks og þá einkum þeirra,
sem starfa við skólaskoðanir.
6.10. Samhœfing vinnuaðferða og tœkjabúnaðar.
Nota þarf stöðluð rannsóknartæki t. d. sjón-
prófunartöflur, til þess að allir, sem að sjón-
verndarmálum vinna, tali sama mál. Einnig er
nauðsynlegt að samhæfa rannsóknaraðferðir
við skólaskoðanir og á heilsugæzlustöðvum.
7. Lohaorð oy niðurstaða
7.1. Hefur nú verið drepið á helztu þætti sjón-
verndar hér á landi. Lýst hefur verið ástandi
sjónverndarmála eins og þau eru með þjóð-
inni í dag og komið er með ráð til úrbóta.
Skipulegar aðgerðir í þessum málum eru á
byrjunarstigi. Vandamál okkar í sjónverndar-
málum eru ekki meiri en svo að hægt ætti að
vera að leysa þau með samstaríi, velvild og
skilningi þeirra aðila, sem að þessum málum
vinna.
7.2. Ymsa þætli sjónverndar þarf að sentralisera
s. s. skipuleggja leit að hægfara gláku og starf-
rænni sjóndepru meðal barna.
Einnig skýrslugerð og rannsóknarstarfsemi.
7.3. Náin samvinna heilbrigðisyfirvalda, augndeild-
ar, augnlækna, heilsugæzlustöðva og starfandi
lækna er nauðsynleg til þess að sjónverndar-
mál komist í viðunandi horf.
GBj.
HEIMILDIR:
1. Mannslátabók II. Skrifstofa landlæknis 1953.
2. Heilbrigðisskýrsur (Public health in Iceland) 1971,
Reykjavík 1973.
3. Björnsson, G.: Prevalence and causes of blindness in
Iceland. A. J. 0. Vol. 39, No. 2. Febr. 1955.
4. Björnsson, G., Björnsdóttir, E.: Skýrsla^ um augnlækn-
ingaferðalag um Vesturland á vegum landlæknisem-
bættisins 1974 og 1975.
5. Vaughan, D., Asbury, T.: General Ophthalmology. Lange
7th Edition, Los Altos, California 1975.
6. Arsskýrsla Landakotsspítala 1974.
7. Jóhannsson, K.: Vistrýmisþörf heilbrigðisstofnana. Heil-
brigðis- og Tryggingarmálaráðuneytið.
8. Arsskýrsla göngudeildar augndeildar Landakotsspítala
(handrit).
9. Duke-Elder, S.: System of ophthalmology Vol. XI, Lon-
don 1969.
10. Björnsson, G.: Leit að gláku á Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar. Hjartavernd, 1. tbl. 6. árg. 1959.
11. Graham, P. A.: Epidemiology of strabismus B. J. 0.
Mars 1974, Vol. 58, N 3.
Athugasemd
Framhald af bls. 66.
Bls. 79 - 7. lína að neðan í fyrri málsgrein - erosis
gastritis verði erosivs gastritis.
Bls. 79 — h. megin — hér hefur fallið niður úr text-
anum, réttur verður hann: „Saga skurðlækninga við
magasári hefur einnig kennt mönnum að skoða nýj-
ungar á þessn sviði með varfærni og að tízka breytist
í þessum lækningum sem öðrum, fagnaðarerindi
hvers tímabils hefur oftlega breytzt í útskúfunar-
kenningu nokkrum árum síðar.
Gauti Arnþórsson, yfirlæknir.
LÆKNANEMINN
37