Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 51
Um ensím til sjúkdómsgreimngar
Hróðmar Helgason, lœknanemi
Alkaliskur fosfatasi (AF)
Alkalískur fosfatasi (o-phosphoric monoester
phosphohydrolase) er ensím sem er að finna í ýms-
um vefjum líkamans. Það aktífitet eða virkni sem
mælist í serum, er í raun það heildarmagn sem hin
ýmsu líffæri mynda. Sérstaklega ber þó að nefna
bein og lifur sem aðalmyndunarstaði, þótt umtalsvert
magn myndist einnig í slímhúð meltingarvegar,
rauðum blóðkornum, milta, nýrum og fylgju. Ekki
er nákvæmlega vitað hvert hlutverk AF er í þessum
vefjum, en þó er þeim það sameiginlegt að þar fer
fram mikill flutningur ýmissa efna og efnasambanda.
Hafa verið leiddar líkur að því að AF taki ein-
hvern þátt í þeim ferlum sem þar liggja að baki.
I lifur myndast ensímið í epitelfrumum gallganga
(cholangiocytar). Aður var talið að AF myndaðist
etngöngu í osteoblöstum, sem losuðu svo ensímið út
í blóðrásina og síðan væri það skilið út með galli.
Mælingar með rafdrætti og öðrum biokemískum
rannsóknum hafa hins vegar leitt í Ijós, að um er að
ræða nokkur mismunandi ísóensím sem koma frá
hinum ýmsu myndunarstöðum. í beinum myndast
AF i osteoblöstum og er líklegt að þar gegni ensím-
ið veigamiklu hlutverki við beinmyndun. Hydro-
lyserar AF þar lífræn fosföt og eykur þannig fram-
boð á ólífrænu fosfati, þannig að hydroxyapatít
(Cxo (P04)6 (0H)2) getur fallið út sem litlir kristall-
flr í beinamatrixinu. I fylgju er talið að ensímið
rnyndist í trophoblast hluta fylgjunnar.
Mæling á AF er kínetísk og er mæld virkni
ensímsins með því að láta viðkomandi serum saman
við substrat t. d. p-nitrófenylfosfat. Síðan er mælt
hve mörg m Mól af p-nítrófenóli myndast á tíma-
einingu, venjulega % eða 1 klst. Aðferð sem kennd
er við Bessey-Lowry-Brock notar sem einingu það
þegar eitt m Mól af p-nitrófenóli losnar á % klst
við hitastig 37°C og pH = 9,8-10,1. Normalgildi
þegar þessi aðferð er notuð er 1,0 - 2,5 ein. All-
margar aðferðir eru til og eru þær í grundvallar-
atriðum eins en nota mismunandi substrat, hitastig
eða pH. Helstu eru: Bodansky Ng 1,5-4 ein, King-
Armstrong Ng 3-13 ein, Shinowara-Jones-Reinhart
Ng 2,2-6,5 ein/lOOml. Nú eru mest notuð siálfvirk
mælitæki sem gefa upp alþjóðlegar einingar per ml.
Normalgildi þar er 40-120 alþj. millieinincar ner
ml.
Klínískt notagilili
Þegar sjúkdómar fara að herja á þau líffæri sem
AF myndast í, brenglast bæði myndun og útskilnað-
ur ensímsins. Langoftast veldur það aukinni virkni
ensímsins i serum og er minnkuð virkni því sem
næst óþekkt. Þó ber að nefna sjaldgæfan arfgengan
efnaskiptagalla, hypophasphatasia. Þar er um að
ræða hækkun á Ca++ í serum en eðlilegt fosfat.
Annað sjúkdómsástand sem stundum veldur lækkun
á AF er langvarandi krónískur næringarskortur.
Lifrarsj úkdómar
Við stíflugulu (extrahepatic biliary obstruction)
t. d. steinn í ductus choledochus eða æxli við duc-
tus, sem veldur rennslishindrun á galli, verður
mikil hækkun á AF. Getur hækkunin orðið allt að
því tiföld. Orsök þessarar hækkunar er talin vera
sú, að við rennslishindrun á galli hætti ensímið að
skiljast út með gallinu og leki til baka inn í lifrar-
sinusana og þaðan inn í blóðrásina. Einnig er talið
að við rennslishindrun á galli aukist þrýstingur í
gallgöngunum og það leiði aftur á einhvern hátt
til aukinnar myndunar á AF í cholangiocytunum.
Á meðan stíflan er til staðar heldur virkni ensímsins
í serum áfram að aukast uns ákveðnu hámarki er
náð, ca. tífaldri hækkun.
Við prímer biliary cirrhosis, þar sem um er að
ræða örvefsmyndun utan um gallgangakerfið innan
læknaneminn
41