Læknaneminn - 01.10.1975, Síða 71
Frá rannsóknarnefnd
Snemma á síðasta ári ákvað R. F. L. að taka sér
fyrir hendur athugun á starfsfólki Kísiliðjunnar við
Mývatn. Var í upphafi leitað ráða hjá sérfræðingum
a sviði mengunarvarna, lungnasjúkdóma og kliniskr-
ar lífeðlisfræði, og var þá strax einnig ákveðið að
gera mælingar á mengun í Kísiliðjunni.
Fljótlega kom í ljós, að hér var um allviðkvæmt
mál að ræða. Fór því verulegur tími í alls konar
fundarsetur og bréfaskriftir, og ljóst var frá upp-
hafi, að könnun þessi yrði kostnaðarsöm. Var því
fljótlega hafizt handa við að útvega peninga til að
standa undir kostnaði við könnun þessa, og í því
skyni leitað til fjögurra aðila. Þrír þeirra brugðust
vel við umsóknum um styrki, þ. e. Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið, Læknadeild H. I., og
NATO, en Vísindasjóður sá ekki ástæðu til að
styrkja þessa fyrstu könnun læknanema á atvinnu-
sjúkdómum.
Strax og R. F. L. fór að fá styrki var ljóst, að af
framkvæmdum gat orðið. Var því unnið af krafti
við undirbúning, og ber helzt að þakka Tryggva
Asmundssyni lækni (Vífilstöðum), Stefáni Jónssyni
lektor og Ævari Jóhannessyni (Rannsóknarstofu í
jarðeðlisfræði) framlag þeirra við undirbúning.
Auk þess veitti Einar Valur Ingimundarson um-
hverfisverkfræðingur okkur aðstoð.
Er líða tók að vori, vorum við forsprakkar R. í'.
L. orðnir vongóðir um styrk frá NATO, og var því
stefnt að því, að könnunin gæti farið fram um
manaðarmótin maí—júní. Allt logaði í verkföllum á
þeim tíma, og varð það til þess að fresta varð öllum
fyrirhuguðum athugunum.
Eftir að verkföll leystust hófust sumarleyfi starfs-
fflanna Kísiliðjunnar. Varð því enn að fresta norður-
ferð. [ samráði við framkvæmdastj óra Kísiliðjunn-
ar, var ákveðið að stefna að könnun í septemberlok.
Fannst okkur það ágætt, því þá var hægt að nota
sumarið til frekari undirbúnings.
A miðju sumri kom upp sá misskilningur nyrðra,
að R. F. L. hygðist nota niðurstöður könnunar í
pólitískum tilgangi fyrst og fremst. Tók undirritað-
ur sér því ferð á hendur norður til skrafs og ráða-
gerða við Björn Friðfinnsson framkvæmdastjóra.
Tókst fljótt og vel að leiðrétta þennan misskilning,
og er til kastanna kom, reyndist Björn hjálplegur.
Undirritaður sneri sér eftir ábendingu Björns
til Laufeyjar Egilsdóttur héraðshjúkrunarkonu. Var
hún strax fús til að aðstoða við könnunina, og kom
dugnaður hennar og kunnugleiki á öllum aðstæðum
sér mjög vel. Kom hún undirrituðum í samband við
oddvita Skútustaðahrepps, er veitti okkur leyfi til
afnota af húsnæði Barnaskólans í Reykjahlíð með-
an á könnun stæði. Einnig var haft samband við
hótelstjóra á Hótel Reynihlíð, er bauð rannsóknar-
mönnum fæði og húsaskjól á góðum kjörum.
Könnun hófst svo 25. september, eftir nokkrar
hrakfarir rannsóknarmanna á norðurleið í snjókomu
og ófærð. Við athugunina störfuðu Tryggvi, Ævar
og Laufey auk tveggja líffræðinga, Björns Þr.
Björnssonar og Kristínar Einarsdóttur, og tveggja
nefndarmanna, Karls Kristinssonar og undirritaðs.
Tókst könnunin í alla staði eins og bezt var á
kosið, og tóku þátt í henni um 86% starfsmanna
Kísiliðjunnar. Ber að þaklca góðan samstarfsvilj a
starfsmanna, forstjóra og framkvæmdarstjóra Kísil-
iðjunnar, auk allra þeirra er við áttum viðskipti við
þar nyrðra.
Rannsóknarmenn komu síðan til Reykjavíkur með
fullt fangið af niðurslöðum, er nú bíða úrvinnslu,
en vonir standa til, að hægt verði að fullvinna úr
þeim nú í vetur.
Að lokum vil ég sérstaklega færa Tryggva Ás-
mundssyni og Laufeyju Egilsdóttur beztu þakkir fyr-
ir veitta aðstoð, en hjálp þeirra á mikinn þátt í að
könnun þessi gekk eins vel og raun ber vitni.
Olafur M. Hákansson.
læknaneminn
59