Læknaneminn - 01.10.1975, Qupperneq 72
Frá kennslumálanefnd
Fátt er títt af fundum kennslunefndar læknadeild-
ar. Að venju fer stór hluti fundartímans í umræður
um ýmis mál, sem varða próf, bæði framkvæmd
þeirra og undanþágur frá þeim. Undanfarið hefur
einnig verið varið miklum tíma til þess að útvega
kennara í heilbrigðisfræði, félagslæknisfræði og
endurhæfingarfræði á 6. ári. Hægagangur í deildar-
stjórn og menntamálaráðuneyti var að því kom-
inn að gera kennsluáætlun þessa námsárs ómerka.
Þetta vandamál er ekki að fullu leyst, þegar þetta
er skrifað. Vafalaust þarf læknadeild að undirbúa
ráðningu kennslukrafts Ijetur og með meiri fyrir-
vara en nú er gert.
Fulltrúar stúdenla í kennslunefnd hafa viðrað hug-
myndir sínar um rækilega endurskoðun á námsskipu-
laginu, einkum í síðasta hluta. Hvatinn að þessum
hugmyndum hefur verið slæm reynsla nemenda og
kennara af 4. árinu og Svíþjóðarferð Stefáns Karls-
sonar og Hróðmars Helgasonar. Ætlunin er að
gera nánari grein fyrir hugmyndunum í sérstakri
grein í Læknanemanum síðar.
Ákvæði reglugerðar læknadeildar um kennslu-
greinar hafa lengi þótt óþarflega nákvæm í saman-
burði við reglugerðir annarra deilda Háskólans, og
það hefur þótt óþarfi að fá samþykki ráðherra fyrir
því, á hvaða námsári ákveðinn námsgreinarhluti er
kenndur. Afleiðingin hefur verið sú, að þessi ákvæði
(og jafnvel fleiri) hafa verið brotin, þegar ástæða
hefur þótt til. Kennslunefnd hefur áhuga á því, að
reglugerðinni verði hreytt og hún einfölduð, og
deildin ráði því, hvenær námsgrein er kennd. I
staðinn er ætlunin, að tilkynnt verði með góðum
fyrirvara um námsefni á komandi námsári. Tvær
tillögur að reglugerðarbreytingu hafa borizt og
um þær fjallar tveggja manna undirnefnd, kennari
og stúdent.
Þrátt fyrir að atkvæði stúdenta í kennslunefnd
læknadeildar vegi ekki þungt og ráði sjaldan eða
aldrei úrslitum, hafa þeir getað liaft mikil áhrif með
því að koma með undirbúnar og rökstuddar tillög-
ur. Stúdentar eru þolendur kerfisins og eiga mestra
hagsmuna að gæta og reynsla þeirra skiptir því
miklu máli. Kennslumálanefnd F. L. hefur nú verið
stækkuð og eiga fulltrúar allra árganga sæti í henni.
Hún heldur fundi vikulega, ræðir málin og ákveður
hverjir meðlima sitja komandi kennslunefndarfundi
eftir því, hvaða mál eru þar á dagskrá. Læknanemar
eru eindregið hvattir til þess að hafa samband við
fulltrúa síns árgangs í nefndinni, ef þeir hafa kvart-
anir eða athugasemdir, sem þeir vilja koma á fram-
færi. Nefndin ráðgerir að halda fljótlega opinn fund,
þar sem tækifæri mun gefast til að ræða allar hliðar
kennslu í læknadeild.
Halldór Jónsson.
Athugasemd
Margar prentvillur voru í síðasta tbl. LÆKNA-
NEMANS, ber jeg, prófarkalesari, ábyrgð á þeim.
Kvað svo rammt að ófögnuðinum, að merking
hreyttist á ýmsum stöðum og þá sér í lagi í ágætri
grein Sigurðar Þ. Guðmundssonar um nýrnahettu-
barkarvana. Bið jeg hann og aðra höfunda afsökun-
ar á þessum mistökum og lesendur velvirðingar.
Sigurður Árnason.
60
LÆKNANEMINN