Læknaneminn - 01.11.1977, Síða 15
ar á starfsaðstöðu deildarinnar. Má því sjá að margt
var óljóst um framkvæmd fjöldatakmarkanna þetta
haust og hafði þetta mikil óþægindi í för með sér
fyrir stúdenta, sem ekki vissu hver staða þeirra inn-
an deildarinnar var.
Stúdentar og kennarar fóru í sameiginlega kröfu-
g'öngu að menntamálaráðuneytinu til að krefjast úr-
lausnar í byggingamálum deildarinnar. Þótti ýms-
um þessi ganga alfhæpin, þar sem skýringa á seina-
gangi í byggingamálum deildarinnar væri að finna
hjá deildinni sjálfri. Um væri að ræða innbyrðis
sundurlyndi deildarmanna um gerð og skipan bygg-
inga, og væri því sízt ástæða til að ganga með deild-
arforystunni á fund menntamálaráðherra. Nefna má
að deildin fékk ýmsum af kröfum sínum framgengt.
A þessu hausti var kennsluháttum hreytt á 1. ári.
Nýtt námskeið, Inngangur að líffæra- og lífeðlis-
fræði, var kennt fyrir jól. Átti síðan að vera próf í
janúar ásamt prófi í efnafræði. Læddist að mörgum
sá grunur að prófunum væri ætlað að takmarka.
Málið var rætt á deildarfundi og sendu 1. árs menn
formanni kennslunefndar bréf og spurðust fyrir um
þetta atriði. Svaraði hann bréfinu er 2 vikur voru
eftir til prófa (síðasti kennsludagur fyrir jól) og til-
kynnti að þeir sem ekki næðu prófunum yrðu að
hætta í deildinni. í Inngangi að líffæra- og lífeðlis-
fræði stóðust 49 manns prófið, að vísu með smá
„fiffi“, því einkunnir voru hækkaðar um 0.685!
Rætt hafði verið um að takmörkun miðað við 48
stúdenta gæti komið til álita.
Janúarprófamálinu var vísað til próf. Jónatans
Þórmundssonar í lagadeild, en stúdentar töldu jan-
úarprófin ekki geta verið takmarkandi, skv. reglu-
gerð. Niðurstaða próf. Jónatans var á sömu lund.
Sagði hann m. a. í hréfi sínu: „Stúdentum á 1. ári
læknanáms, er ekki hafa staðizt próf í janúar, verð-
ur ekki meinað að halda áfram 1. árs námi á vor-
misseri.“
Var síðan fallist á þessa túlkun á deildarfundi 6.
febrúar ’74, en þá höfðu nokkrir nemendur þegar
hætt námi.
I apríl var ákveðið að fresta ákvörðun um fjölda-
takmörkun til haustins og janúarprófin hlutu lög-
festingu. Að haustprófum loknum áttu 87 stúdentar
rétt á sæti á 2. ári. Ætlaði deildin þá að takmarka
eftir að menn höfðu hafið nám á 2. ári. Var m. a.
rætt um lágmarkseinkunn 6.0. Að vonum blöskraði
mönnum þessar tillögur, en þær náðu þó ekki fram
að ganga og hélt allur hópurinn áfram námi. Síðan
þá hafa mörg skörð verið höggvin í hópinn og telur
hópurinn nú 48 stúdenta.
lii74—75 Ólögmætir dcildarfundir
Þessi vetur var að mestu laus við stórátök á sviði
Numerus Clausus, enda var deildin mjög upptekin
af skiptingu verklegs náms 4. árs-nema milli sjúkra-
húsa borgarinnar.
Á deildarfundi í maílok 1974 lögðu Sigmundur
Magnússon og Arinbjörn Kolbeinsson til, að hækka
skyldi lágmarkseinkunn í öllum fögum úr 5 upp í 6.
Málinu var „frestað".
Um sumarið og haustið (24. júlí og 11. sept.)
voru síðan haldnir tveir ólögmætir deildarfundir) of
fáir mættir). Ekki er vitað af hverju reynt var að
boða fund fyrir upphaf haustmisseris (aldrei þessu
vant), né heldur hvaða umræður fóru fram á þeim
fundi, því engum þótti ástæða vera til að skrá neitt
um það í fundargerðarbók.
Einnig munu einhver bréfaskrif hafa átt sér stað
milli læknadeildar og menntamálaráðuneytisins, og
nokkrir 1. árs nemar fóru á fund ráðherra, en okkur
vantar nákvæmar heimildir um þessi mál, því flestir
þeir, sem fóru á fundi ráðherra, féllu síðan út úr
deildinni!
Sem sagt, nokkuð góð tilþrif af hálfu deildar, sem
í enn eitt skiptið runnu út í sandinn.
J975-76 Oí; enn mistehst þeim
28. janúar 1976 var samþykkt á deildarfundi
læknadeildar að nota heimild 42. greinar reglugerð-
H. I. lil að beita fjöldatakmörkunum að loknu 1. árs
prófi vorið 1976. Miðað skyldi við, að „30 stúdent-
ar haldi áfram námi á 2. ári ef svo margir ná próf-
um 1. árs. Ef fleiri hafa sömu einkunn og sá þrítug-
asti skulu þeir halda áfram á 2. ári, en þó aldrei
fleiri en 40.“ Á 107. fundi deildarráðs 17. mars ’76
kom fram, að „það er skoðun lögfræðings háskól-
ans, að ef ekki standast 30 nemendur 1. árs próf í
vor, þá verða haldin haustpróf og ef, að loknum
haustprófum, verða margir með sömu einkunn og sá
þrítugasti, verður þeim heimilað að halda áfram
námi á 2. ári.“
LÆKNANEMINN
9