Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1977, Side 44

Læknaneminn - 01.11.1977, Side 44
öðru starfsfólki deildarinnar. Mátti helst undan því kvarta að námskeiðið er of stutt og mætti auk þess hugsa sér að nýta ágæta gj örgæsludeild betur en gert var. Mér skilst að stúdentar á Landakoti hafi verið ánægðir með kennslustundirnar, sem voru ein dag- lega og fjölluðu um svæfingar í héraði, en hins veg- ar hafi þeir almennt verið óánægðir með, að aðeins annar svæfingarlæknanna sinnti stúdentum að marki. Konráð S. Konráðsson. Klínísht nám á Landspíttdumnn veturinn 1976-77 Það hljóta að hafa talist mikil tíðindi sem gerð- ust þegar verið var að raða 4. árs stúdentum í lækn- isfræði niður á verklega kúrsa haustið ’76. Þá kom nefnilega í Ijós að stór hluti umrædds árgangs gat með engu móti hugsað sér að vera í verklegu námi í lyfja- og handlæknisdeild Landspítalans, heldur vildu menn fara annað hvort á Landakot eða Borg- arspítalann. Hér er greinilega um mikilvægt mál að ræða sem vissulega er þess virði að rannsakað verði ofan í kjölinn. Ekki er laust við að ýmsar spurning- ar vakni hjá mönnum vegna þessa. Hvað er það á Lanspítalanum sem fælir stúdenta frá að vera þar í sínu verklega námi? Skyldi hafa kvisast út að verk- leg kennsla sé lélegri þar en á hinum spítölunum? Þessum spurningum ættu allir viðkomandi að velta fyrir sér og reyna að finna svör við. Færri stúdentar voru núna á Landspítalanum en síðastliðið ár. Kom þetta þannig út að ekki voru nema einn til tveir stúdentar á hverri deild í einu. Verður því ekki sagt annað en að olnbogarýmið hafi verið nokkuð gott. Hópnum var skipt í tvennt, sá helmingurinn sem undirritaður tilheyrði var á lyfjadeild fyrir áramót en handlæknisdeild eftir. A lyfjadeild var okkur skipt niður á gangana fjóra, voru einn til tveir stúdentar á gangi. Ekki er því að leyna að nokkur urðu hjá manni vonbrigði með framkvæmd á skipulagi kennslunnar. Kom iðu- lega fyrir að eftir að stofugangur var yfirstaðinn var ekki um að ræða fleiri verkefni fyrir stúdenta þann daginn. Þó hafði maður lesið í kennsluskránni um haustið: 1) stofugangur, 2) skoðun sjúklinga með kennara, 3) klíník, 4) göngudeild o. s. frv. Ekki mega menn þó leggja þessi orð mín út á hinn versta veg, ég er ekki að halda því fram að skipu- laginu hafi í engu verið fram fylgt, heldur sé ég ýmsa vankanta á framkvæmd þess. Á stofugangi má sennilega segja að mesta kennsl- an hafi farið fram. Flestir læknarnir sem ég átti samskipti við voru allvel vakandi fyrir því að reyna að kenna stúdentum eitthvað á stofugangi. Eins voru þeir allir fúsir til þess að leyfa manni að fylgj- ast með störfum á göngudeild. Það sem vantaði að- allega til að skipulaginu væri fylgt er í fyrsta lagi skoðun sjúklinga með kennara, sem hlýtur að telj- ast vera ein megin uppistaða klíniskrar kennslu á lyfjadeild. Segja má að maður hafi lítið orðið var við þennan þátt. I öðru lagi tel ég að of lítið hafi verið af svonefndri kiínik, það er því þegar stúdent skoðar ákveðinn sjúkling og segir síðan hinum stúd- entunum ásamt kennara hvers hann hafi orðið vís- ari. Síðan eru umræður um tilfellið. Fyrir áramót var aðeins einn kennari sem hafði klínik, það var Sigmundur Magnússon. Hafði hann klínik einu sinni í viku hverri. Tók hann ætíð fyrir einhver hematologisk tilfelli. Eru menn að ég held almennt ánægðir með þennan þátt Sigmundar. Betra hefði verið ef fleiri sérfræðingar hefðu siglt í kjölfarið. Held ég þó að þetta hafi verið eitthvað skárra eftir áramótin. Á handlæknisdeild var einnig um að ræða skipt- ingu stúdenta niður á fjóra ganga. Má segja að hér hafi stúdentar átt betur með að finna sér verkefni en á lyfjadeildinni. Misjafnlega fannst manni þó kennslan skipulögð á deildunum, kennararnir eyddu mismiklum tíma í stúdentana. Hér var um að ræða klínik á hverjum degi og verður það að teljast mjög gott. I stuttu máli: Það sem ég hef helst fundið að klínisku kennslunni á Landspítalanum er að marg- ir kennaranna skipta sér ekki nógu mikið af stúd- entunum. Frumkvæðið hfýtur að verða að koma frá kennurunum, eða hefðum við kannski átt að koma með kennsluskrána á morgnana og segja: „Jæja, í dag er það 1) stofugangur, 2) skoðun sjúklings með kennara o. s. frv.?“ Það er ekki nóg að semja gott 36 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.