Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1977, Page 52

Læknaneminn - 01.11.1977, Page 52
Mannadauði á fyrri hluta 19. aldar Helgi Guðbergsson (Fyrri hluti) Grein þessi er unnin úr prófritgerð í heilbrigðis- fræði í læknadeild á þessu ári. Lýst er mannfjölda á tilteknum svæðum og nokkrum hliðum manndauða. I inngangi er lýsing á þeim svæðum sem rann- sökuð voru, auk almenns spjalls um veðurfar og húsakynni. I 2. kafla er gerð grein fyrir mannfjöld- anum, stærð og gerð og heimildum. Því næst ræddar heimildir um manndauða og loks kafli um dánaror- sakir, sem getið er í heimildum um manndauðann. I 3. kafla eru niðurstöður raktar. Aftast er stutt sam- antekt og ritaskrá. Ætlun mín er að taka fyrir sams konar efni fyrir Borgarfjarðar- og Mýrasýslur 1920-1970 og landið allt 1920-1970 og bera síðan þessi tvö 50 ára tíma- bil saman. I. Innyangur Nánast tilviljun ræður því að ég tek fyrir þau svæði, sem hér verður lýst; Reykholtsprestakall og Borgarprestakall. Það fyrrnefnda nær yfir Reyk- holts- og Stóraássókn, en hið síðarnefnda Borgar- og Álftanessóknir. Útlínur prestakallanna eru dregn- ar á kortið á mynd 1. Á þessu korti má einnig greina mörk hreppa og sýslumörk. Sést þannig land- fræðilegur munur Borgarprestakalls og Borgar- og Álftaneshreppa og þar má greina að Reykholts- prestakall er sama svæði og Reykholtsdalshreppur og Hálsahreppur. Þetta hefur þó breytzt á 20. öld. Gögn þessara sókna reyndust tiltölulega aðgengi- leg og heil, eins og síðar verður nánar lýst. Þess má geta, að elztu prestsþjónustubækur landsins eru frá Reykholti, allar götur frá 1664. I öndverðu var Húsafell f Mýrasýslu, en var formlega flutt í BorgarfjarSarsýslu 1852. Húsafellsprestakall náði yf- ir nokkra bæi efst í HvítársíSu (Kalmannstungusókn) og nokkra efst í Hálsasveit (Húsafellssókn). Þegar Stóraássókn kom til sögu var Húsafell eini bærinn í henni er taldist til Mynd 1. Borgarprestakall (lárétt strik): 1. Aljtaneshreppur. 2. Borg- arhreppur. Reykholtsprestakall (lóðrétt strik): 3. Reykholts- dalshreppur. 4. Hálsahreppur. Mýrasýslu. Hér eru því rannsökuð eitt svæði í Borgarfjarð- arsýslu og annað í Mýrasýslu, álíka stór að bæja- og mann- fjölda. Tafla 1 sýnir fjölda bæja í sóknunum 1801-1850, eða þann tíma er könnunin nær yfir. Til samanburðar er svo tekinn bæjafjöldinn á sömu svæðum 1961. Heimilda er get- ið. Tafla 2 sýnir meðal mannfjöldann á svæðunum 1801- 1850. Á þessu svæði er lítið um skriðuföll og enn minna um snjóflóð. Jarðskjálftahætta er 2. gráðu af 4, en þá er lítil hætta á verulegum skemmdum á mann- 44 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.