Læknaneminn - 01.11.1977, Side 56
og prentuð. Þaðan er fengið aldursskiptingarit og töflur árs-
ins 1816. Árin 1835, 1840, 1845 og 1850 voru tekin manntöl
og eru þau mjög aðgengileg á Þjóðskjalasafni. Af þeim eru
hér tekin með 1835 og 1850. Þannig fæst mannfjöldalýsing
í upphafi og lok tímabilsins og tvívegis á tímabilinu (sbr.
mynd 7).
Til þess að aldursskiptingaritin næðu yfir heilt ár (en
vegna smæðar úrtaksins var nauðsynlegt að lýsa algengi ald-
ursflokkanna á þennan hátt), var bætt inn öllum er létust á
einu ári fyrir manntalsdag nema börnum á 1. ári (sjá síðar)
og ekki voru skráðir í manntali. Sóknarmannatölin eru gerð
í janúar 1802 og miðast við húsvitjanir en ekki ákveðinn
dag og er bætt við þau öllum er létust árið áður samkvæmt
prestsþjónustubókunum. I sóknarmannatölunum eru sam-
vizkusamlega talin öll börn á 1. ári.
Til að fá aldurshópinn „á 1. ári“ varð að fara í fæðingar-
og skírnarskýrslur og skrifa upp nöfn allra fæddra á árinu
og bera það síðan saman við manntöl. Með fáeinum undan-
tekningum reyndist þeirra ekki getið í manntölunum. Virð-
ist hafa verið alsiða að telja frá eins árs við manntal. Nokkr-
ir eru í manntali sagðir eins árs sem voru tæplega það og
leiðrétti ég í samræmi við það. Með nafnasamanburði við
næstu manntöl á eftir kemur þetta fólk svo oft og einatt í
ljós, þeir sent lifað hafa.
Ofangreint má skoða í ljósi þess að manntöl eru gerð af
fulltrúum ríkisvaldsins, veraldlegum höfðingjum. Prestarnir
telja hins vegar ekki menn, heldur sálir. Þannig eru börn á
1. ári í sóknarmannatölum og fáum slíkum þurfti að bæta
við manntalið 1816, en það var einmitt gert af prestum. Ald-
ursgreining manntalanna er ekki hárnákvæm. Menn voru
ekki allir innandyra þegar talning fór fram eins og gengur,
við gegningar og annað. Hefur þá viðstadda oft getað rang-
minnt um aldur sem gefur að skilja. Slíkar skekkjur liljóta
þó að einhverju leyti að vega hver aðra upp, en vegna smæð-
ar úrtaksins vega þær þó eitthvað. Þá getur þessi ónákvæmni
manntala komið eitthvað að sök við yngstu börnin vegna
annarra hluta, sem þar koma til.
Ungbarnadauðinn gat leitt til þess að örðugt gat veitzt
að koma sér upp nafni og það reyndu menn sífellt. Því gátu
synir eða dætur sömu hjóna heitað sömu nöfnum, ár eftir ár,
og það jafnvel þótt eldri börn með sama nafni væru á lífi>
stundum fædd sama ár. I nokkrum tilfellum olli þetta mér
vandræðum og einhver skekkja kemur í yngstu aldursflokk-
ana af þessum sökum vegna hugsanlegrar vantalningar eða
tvítalningar. Að auki veldur þetta svo ruglingi í ættfræðum
og erfðafræði, einkum þar sem 2 bræður eða systur hafa
komizt til fullorðinsára, en það er önnur saga.
Flutningar fólks voru miklir og hefur það áhrif á vissu
aldursskiptingaritanna. Eg bar saman fjölda brottfluttra og
innkominna, manntalsárin. Niðurstöður voru eins og tafla 3
sýnir. Flest hið hreyfanlega fólk er á aldrinum 15 til 45 ára
og vinnufólk. Áður fyrr, og mun það eiga við tímabilið er
hér um ræðir, var vinnuhjúaskildagi á krossmessu á vori, 3.
maí. ASrir flutningar fóru einnig frarn í maí eða byrjun
júní.
TAFLA3
Brottfluttir og innkomnir á 3 árum 1801-1850
1816 1835 1850 Öll árin
Fluttir Borg. Reyk. Borg. Reyk. Borg. Reyk. Samtals
Brott 12 9 17 33 22 9 102
Inn 9 10 13 21 21 19 93
Eg tók ekki brottflutta og innkomna með í reikninginn
enda bendir ofangreind athugun (tafla 3) til að maður korni
að jafnaði í manns stað, en þessa er getið hér til að benda
á þá óvissu sem af þessu leiðir.
AS lokum kemur svo bein skekkja vegna mislesturs og
annars sem óhjákvæmilega verður eitthvað í svona talningu
og handavinnu.
Niðurstöður eru birtar í stöðluðu formi aldursskiptinga-
rita og ræddar í III. kafla. Ennfremur var gert rit fyrir
hvem aldursflokk karla og kvenna á tímabilinu 1801 til
1850 og fylgir eitt slíkt sýnishorn (mynd 8). Þetta var nauð-
M-ynd 8.
48
LÆKNANEMINN