Læknaneminn - 01.04.1979, Síða 36
TAFLA III
Tilgáta um starfrœna flokkun T jrumna í músum.
Frumur sjá um Tákn Ly-œttgerð Sennilegt hlutverk
Megin stjórn Tl Ly 1, 2, 3 Forstig og/eða stillir fyrir Tu&Ts
B frumu hjálp tiib Ly 1 Hjálpar B frumum við mótefnamyndun
Tc frumu hjálp thc Ly 1 Hjálpar frumueyðandi T frumum við eyðingu
Síðkomið ofnæmi tdii Ly 1 Minnisfrumur fyrir DH-svör
Frumueyðingu Tc Ly 2.3 Eyðir vissum óeðlil. frumum
Bælingu Ts Ly 2.3 Hamlar flest B og T frumu svör
ekki verið tilstaðar snemma á þroskaferli eitilfrumna
hans.
Hugtakið antigen höfðar aðeins til getu efnis til
að bindast mótefni. Þannig geta efni eins og hnýtl-
ar (haptens), sem eru of lítil til að vera væki, samt
sem áður verkað sem antigen með því að tengjast
og byrgja (block) sértæk bindiset mótefna.
Allar vækissameindir hafa nokkrar eða margar
vækiseiningar (antigen determinants, epitopes), og
að sjálfsögðu má gera hnýtil vækisvirkan með því
að tengja hann við stærri sameind, svo sem prótein,
þar sem hann myndar nýja vækiseiningu. Sameind-
in er nú nefnd samtengi hnýtils og bera (hapten
carrier conjugate).
Vœki og T frumuhjálp í mótefnamyndun
Efni, sem örvað geta mótefnamyndun, án þess að
T frumur séu til staðar, eru kölluð T óháð væki. A
hinn bóginn eru flest náttúruleg væki T háð, þar eð
þau þurfa á hjálp T frumna að halda til að vekja B
frumur til mótefnamyndunar. Tafla V dregur sam-
an þau megineinkenni, sem greina á milli þessara
tveggja vækistegunda.
Sérhver sameind T óháðs vækis er samsett úr
mörgum sams konar vækiseiningum, en hver sam-
eind T háðs vækis hefur margar, en mismunandi
vækiseiningar. T óháð væki geta aðeins ræst Ig M
mótefnamyndun, jafnvel við endurteknar inngjafir,
en mótefnaendursvar við T háðum vækjum er aðal-
lega af Ig G og Ig A gerð. T háð væki þurfa ekki
einungis á T frumum að halda, heldur einnig á
gleyplum, en T óháð væki eru síður háð návist
gleypla. Loks geta flest T óháð væki ræst frumu-
skiptingu B frumna án tillits til sértækni mótefna í
úthýði þeirra (polyclonal mitogenesis), en T háð
væki geta aðeins ræst B frumur, er hafa viðtök sem
eru sértæk fyrir viðkomandi væki.
Tilraunakerfi
I töflu VI eru taldar upp nokkrar tilraunaaðferð-
ir, sem notaðar hafa verið til að varpa ljósi á það,
hvernig T frumur hjálpa við mótefnamyndun, og
TAFLA IV
Tilgáta um starfrœna flokkun T frumna í mönnum.
Frumur sjá um: Tákn TH\ yjirborðs-mörk Fc a viðtök tr
B bæiingu Ts 0 + + e®a' o
B frumu hjálp Th + 0 +
Vækishvött fjölgun TsAg 0 Ev Ev
MLC verkun tMLC + Ev Ev
MIF myndun tMIF + Ev Ev
LMF myndun tLMF Ev Ev
CML verkun tCML + eða 0 Ev Ev
Ev = ekki vitað
26
LÆKNANEMINN