Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1979, Page 50

Læknaneminn - 01.04.1979, Page 50
það til síns máls, aS á meðan tengsl deildar og sjúkrahúsa eru eins óljós og nú er, valdi það erfið- leikum að tryggja ráðnum kennurum starfsaðstöðu. Stjórn félagsins hefur jafnan haldið undirbún- ingsfundi með fulltrúum stúdenta fyrir fundi þessa. Hafa menn þar krunkað saman nefjum og reynt að finna viðbrögð við hugsanlegum uppátækjum deild- arforystunnar. Frá hópslysanefnd Að vanda hefur starf hópslysanefndar verið um- fangsmikið og verður sú starfsemi ekki tíunduð hér í smáatriðum. A.m.k. hluti nefndarmanna hefur haldið fundi reglulega, en m.a. vegna fjárskorts Al- mannavarna ríkisins hafa ekki verið haldnar neinar meiri háttar æfingar, þrátt fyrir ýtarlegar áætlana- gerðir hópslysanefndar F.L. Hannes Hjartarson. Deililarráðsfnndir Á árinu voru haldnir 22 deildarráðsfundir. Mik- ill fjöldi mála kemur til afgreiðslu og umræðu í deildarráði. Á síðasta ári voru málin hátt á 3ja hundrað. Flest þeirra snerta þó ekki Félag lækna- nema beint. M.a. umsóknir um almenn lækninga- leyfi og sérfræðiviðurkenningar. Nokkur undan- þágumál komu til kasta deildarráðs. Lfmsóknir kenn- ara um kennsluleyfi. Nefndarskipanir í mál á veg- um heilbrigðisstjórnarinnar og til þess að meta hæfi umsækjenda um kennaraembætti í læknadeild. Mikill tími fór í umræður um kennslumál og skipulagsmál deildarinnar. Áhyggjur manna fara vaxandi af því tengslaleysi, sem deildin hefur við stjórnir þeirra stofnana, sem læknanemum er kennt á. Læknadeild hefur ekki einu sinni áheyrnarfull- trúa á stjórnarfundum sjúkrahúsanna. Áberandi er t. d. að stjórnarnefnd ríkisspítalanna sýnir minnk- andi skilning á hinu tvíþætta hlutverki sem háskóla- sjúkrahús hefur, sem m.a. á rætur að rekja til þess hve áhrif læknaráðs sjúkrahúsanna eru lítil. Nú er undir hælinn lagt hvort læknir á sæti í stjórnar- nefndinni. Fulltrúar F.L. hafa lagt áherslu á að tengslin aukist við stjórnarnefndina á nýjan leik. Framhaldsmenntun lækna á Islandi var töluvert rædd. Þau mál eru nú öll í athugun. Mikill vilji er í deildarráði að stuðla að framgangi þessa í samráði við rétt yfirvöld og samtök lækna. Framtíðar skipan kennslu í heimilis- og félags- lækningum og heilbrigðisfræðum kom til umræðu. Nokkur erindi frá námsbraut í lyfjafræði komu ' til kasta deildarráðs. Þau voru öll samþykkt. Skipaðir voru 2 fulltrúar læknadeildar í náms- brautir í hjúkrun og sjúkraþjálfun. Mál Tryggva jónassonar hnykkis, sem óskaði eftir takmörkuðu lækningaleyfi, var tekið fyrir nokkrum sinnum. Deildin lagðist gegn veitingu leyfisins þar eð um var að ræða „fræðigrein“, sem hvorki er byggð á vísindalegum rannsóknum eða viðurkennd- um læknisfræðilegum staðreyndum“. Þrátt fyrir þessa umsögn veitti heilbrigðisráðherra takmarkað lækningaleyfi. Nefnd, sem falið var að yfirfara hugmyndir um stofnun Heilbrigðisfræðaskóla íslands skilaði áliti. Nefndin og deildarráð töldu ekki tímabært að stofna skólann. Skýrsla um málefni deildarinnar, sem skipuð var að tilhlutan Háskólaráðs, var mikið til umræðu. Ákveðið var að halda starfi nefndarinnar áfram í einhverri mynd. Takmörkunarmál. Deildin varð afturreka með N. cl. s.l. sumar eins og frægt er orðið og eftir mik- ið orðaskak við menntamálaráðuneytið sem endaði með því að vald deildarinnar um fj öldatakmarkanir var fært í hendur Háskólaráðs. Á grundvelli skýrsl- unnar um Læknadeild (sjá að ofan) var enn óskað takmörkunar. Sú umleitan féll í Háskólaráði með 12 atkv. gegn 3 (Háskólar.fundur í febr. ’79). Framtíðartengsl deildarinnar og sjúkrahúsanna voru oft rædd. Nefndarálit hefur legið fyrir í ár ásamt drögum að samningi. Málið er þó strand í bili m. a. í Háskólaráði. Fjársýslunefnd Læknadeildar var endurvakin. Hún á að samræma fjárkröfur deildarinnar og raða verkefnum í forgangsröð. Stúd. eiga einn fulltrúa. Leggjum áherslu á bókasafnsmál, kennslutækjakaup P í nefndinni og aðstöðu læknanema í hvívetna. Matarmál læknanema voru rædd á nokkrum fund- um. Deildarráð tók mjög kröftuglega undir rök F.L. í málinu og mótmælti harðlega við stjórnarnefnd- ina. (Matarfríðindin voru afnumin 5. jan. ’79). 40 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.