Læknaneminn - 01.04.1979, Side 52
taldi ekki nægilega skilgreint hvers konar verkleg
þjálfun stúdentar ættu að fá á hverju hinna klinisku
ára námsins, en það verðum við stúdentar áþreif-
anlega varir við. Nefndin taldi einnig, að meta ætti
verklega frammistöðu stúdenta á 3., 4. og 6. náms-
ári, og ætti sú einkunn að gilda sem hluti kliniskrar
einkunnar til lokaprófs, en vildi hins vegar ekki
leggja mat á hvernig meta ætti verklega getu og
frammistöðu.
Niðurstöður 4.-6. árs nefndarinnar voru helstar
þessar:
a) Að draga skuli saman í 6 vikna námskeið
kennslu annarra greina en lyf- og handlæknis-
fræði á 6. ári. Ljúki þessu námskeiði með próf-
um.
b) Nefndin taldi, að þáverandi skipulag kennslu á
4. námsári væri óviðunandi, og taldi að skipta
ætti kennslunni eftir sjúkdómaflokkum, sem
tæki yfir ákveðið tímabil og lyki með prófi, sem
gæfi hluta skriflegrar einkunnar til embættis-
prófs í lyf- og handlæknisfræði.
3. 12. júní var samþykkt að leyfa kennurum í bio-
kemiu að halda próf á miðjum vetri, sem gilti 20%
af heildareinkunn, en þegar til kom varð að hætta
við prófið, þar eð það braut í bága við reglugerð
Háskólans.
4. Deilur komu upp milli Margrétar Guðnadótt-
ar og Helga Valdmarssonar, og fór svo að álit
prófessorsins í greininni var metið mesl.
5. 25. september s.l. var skipt um formann
kennslunefndar, lét Sigurður S. Magnússon af störf-
um en við tók Elín Olafsdóttir. A þessum sama
fundi var svo samþykkt tillaga frá stúdentum, um
að öllum stúdentum 1. árs, sem féllu á haustpróf-
um væri heimilt að þreyta próf í þriðja sinn, vegna
þess að frestur um tilkynningu prófanna hafi verið
of stuttur. Málið fór síðan fyrir deildarráð, þar
sem það var samþykkt með smá breytingu og sent
aftur til kennslunefndar, sem gat svo ekki afgreitt
áður samþykkta tillögu nema með aðstoð lögfræð-
ings. Þótti okkur stúdentum það kynlegt..
8. Mikið voru til umræðu tillögur til breytinga á
reglugerðinni, en það mun gerð grein fyrir helstu
breytingum á öðrum stað, og aðeins nefnt það eitt
hér, að samþykkt var fækkun fulltrúa í kennslu-
nefnd, bæði stúdenta og kennara. Þessi fækkun ætti
að vera til bóta fyrir störfum hlaðna kennara og
þreytta stúdenta.
9. Samþykkt var í kennslunefnd að taka upp
áður löngu ákveðna kennslu í erfðafræði á 3. ári
og læknisfræðilegri tölfræði á 5.. ári, en ekki er
ljóst á þessu stigi málsins hvernig hægt er að koma
þessum greinum fyrir í náminu á þessum tímum án
þess að einhver kúrsus, af þeim sem fyrir eru á
þessum árum, minnki.
10. Matarmál læknanema komu fyrir kennslu-
nefnd, og sýndist sitt hverjum. Kennslustjóri taldi
læknanema slæman vinnukraft og í besta falli tefja
fyrir allri almennri starfsemi á sjúkrahúsunum, -
ættu þeir því að borga tvöfalt á við aðra en helst að
borða utan spítalalóða. Þetta fannst okkur stúdent-
um ekki svara vert, enda fór svo að formaður
kennslunefndar, Elín Ölafsdóttir, veitti okkur góðan
stuðning fyrir hörid nefndarinnar.
11. Þegar deildarfundur hafði samþykkt að fílan
skyldi ekki vera skyldufag fyrir læknanema, kom
Páll Skúlason á fund nefndarinnar með nýtt bæna- ■'
skjal, þar sem hann kemur þó til móts við þá gagn-
rýni, sem við stúdentar höfum helst haft í frammi.
Fór því svo, að skipuð var nefnd, sem á að kanna
með hvaða hætti hægt er að kenna fílu-ígildi (þ.e.
„Um eðli vísinda með sérstöku tilliti til læknis-
fræði“ og „um siðferðileg og siðfræðileg vanda-
mál í læknisfræði“). Ofarlega er á baugi að kanna
með hvaða hætti má kúpla þessu inn í þær greinar,,
sem fyrir eru kenndar, svo að stúdentar þurfi ekki
að taka sérstakt próf i fílu.
12. Upp kom mikið vandræðaástand varðandi
anatomiu-kennslu á 1. og 2. ári. Það varð ljóst, að
ekki hafði verið gert ráð fyrir teoretiskri kennslu
í histologiu á 1. ári í vetur, og þegar þetta er ritað,
er engin lausn fundin á því máli. Varðandi 2. árið,
kom í ljós, að ekki hafði verið veitt nægilegu fé til
utanfarar á krufninnganámskeið, og leit út fyrir um
tíma að enginn færi utan, en eftir nokkra fundi með
rektor og öðrum ráðamönnum lofaði rektor að fé
skyldi veitt til fararinnar.
13. Fram hafa komið tillögur um breytt vægi
greina, en þær tillögur eru ennþá á umræðustigi, og
lenda í höndum næstu kennslumálanefndar.
42
LÆKNANEMINN