Læknaneminn - 01.04.1979, Side 54
grasa, m.a. hvernig taka á þvagprufur frá rollum.
Skemmtikraftar frá deildinni sjálfri skutu Ómari
Ragnarssyni ref fyrir rass. Því er óþarft orðið að
leita út fyrir deildina eftir skemmtilegu fólki.
Fjárhagur ráðsins er með besta móti og því er
ekki síst að þakka góðri afkomu árshátíðar.
Nálastunguaðferðin
I desember síðastliðnum stormuðu 4. árs stúdent-
ar í kínverska sendiráðið til að kynna sér þar nokkr-
ar kvikmyndir um nálastungu aðferðina margum-
töluðu. Þáu læknanemar dýrðlegar veitingar í víni
og snarlfæðu auk myndasýningarinnar hjá Kínverj-
um og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir móttök-
urnar.
Apótekarferð
Að venju var 3ja árs læknanemum boðið í kynn-
isferð í Reykjavíkur apótek. Þar var kynnt starf-
semi apóteksins og endað með snittu- og bolluhófi.
Stóðust 3ja árs menn þessa þolraun með prýði og
gengu allir uppréttir frá borðum.
Stádentaskipti
í sumar fóru 7 læknanemar utan í stúdentaskipti,
allt fólk, sem lokið hafði 3ja ára námi. Þrír fóru til
Danmerkur, tveir til Grikklands, ein til Ítalíu og
ein til Sviss. Eins og undanfarin ár fengu stúdentar
60% ferðakostnaðar greiddan og frítt fæði og uppi-
44
hald í viðkomandi landi. Hingað komu 11 erlendir
stúdentar, sem skiptust niður á sjúkrahúsin í
Reykjavík. Bjuggu þeir í Hjúkrunarskólanum, nema
ein, sem bjó á heimavist ljósmæðranema.
Skýrslti starfshóps um ofnwniis-
rannsókn
Gagnasöfnun í fyrsta og öðrum áfanga rannsókn-
ar á ofnæmissjúkdómum, er nú lokið og úrvinnsla
hafin. Nú er unnið að lölvuprógrammi, vegna fyrsta
áfanga. Væntanlega munu niðurstöður þessar brátt
liggja fyrir og verður þá gerð endanleg áætlun um
úrvinnslu gagna annars áfanga. Hann mun gefa
lokaniðurstöður.
Einar Stejánsson.
Fclutfsfundir
Haldnir voru sex félagsfundir á starfsárinu.
LÆKNANEMINN