Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 10
eru stórir eins og í læknadeild. Ennfremur er við-
búið að slíkar aðferðir séu mörgum kennurum fram-
andi. Þeir eru vanari fyrirlestraforminu og kunna
því best.
En vandkvæði á breytingu kennsluhátta er einnig
að rekja til nemenda. Fyrirlestrar eru jú það
kennsluform þar sem nemandinn getur verið hvað
aðgerðaminnstur allt fram undir próf. Að vísu kem-
ur að skuldadögum og maraþonlestur og hrágleyp-
ing námsefnis í upplestrarfríi að vori eru laun van-
rækslusynda vetrarins. Aðrir kennsluþættir gera all-
ir meiri kröfur til nemandans um stöðuga vinnu. Til-
raunir með umræðufundi í lífefnafræði á 2. ári
læknanáms hafa því miður ekki gefið tilefni til að
ætla, að nemendur væru tilbúnir í slíka sjálfsögun.
Breytt námsmat (sjá lið 3) gæti þó orðið hvati að
afstöðubreytingu nemenda á þessu sviði, sbr. gulrót-
ina og asnann.
Þorvaldur: Tel að ýmsu leyti væri betra að kenna
lífefnafræði á lengri tíma og um leið auka kennsluna
lítillega, þá helst í formi lítilla umræðuhópa. Erfitt
er þó að skipuleggja umræðuhópa meðan árgangar
eru eins fjölmennir eins og nú gerist. Kennslufyrir-
komulagið er annars hefðbundið og ég sting ekki
upp á neinum róttækum breytingum á því.
3. Hvtiða próffyrirkomulafi telur þú
heppilefiast t yreininni?
Davíð: Tilgangur prófa er fyrst og fremst að
tryggja nemanda og deildinni, að hann hafi öðlast
nægan undirbúning fyrir næsta áfanga. Jafnframt
veitir próf aðhald að námi. Með því að einskorða
ekki próf við lok kennsluárs, en hafa auk vorprófa
1—2 áfangapróf að vetri má líklega fá fram jafnara
og stöðugra nám allan veturinn og sporna gegn
„tímabundnum hraðlestri" undir eitt vorpróf sem
aðallærdómi stúdentsins.
Fyrirkomulag skriflega prófsins eins og það er nú
tel ég viðhlítandi.
Elín: Með núverandi kennslufyrirkomulagi gefst
kennara ekkert tækifæri lil að meta kunnáttu eða
leikni nemanda meðan á námskeiðinu stendur og
próffyrirkomulagið er handhæg leið til að kvitta fyr-
ir að nemandi hafi náð ákveðnum tökum á námsefn-
inu. Þótt reynt sé að hafa nokkra fjölbreytni í gerð
8
spurninga á prófinu, er það vissulega nokkuð ein-
hæft mat á þekkingu og hæfni nemenda. Ennfremur
eru núverandi próf allmikið álag á nemendur, eink-
um vegna þess að margir eiga erfitt með að meta
eigin kunnáttu eða þekkingarstöðu og allt veltur á
einu prófi. Þetta próffyrirkomulag gefur nemendum
hins vegar nokkurt frjálsræði, þar sem þeir skipu-
leggja og hagræða tíma sínum til náms algjörlega
sjálfir, frá upphafi námskeiðs og fram til prófs.
Þótt leitt sé að írá að segja, hafa nemendur tekið
öllum tillögum til fjölþættara námsmats með tor-
tryggni eða hreinni andstöðu. Námsmati mætti
dreifa yfir veturinn með því t. d. að fá nemendum
verkefni til úrlausnar og meta þau til einkunnar,
hafa stutt próf úr takmörkuðu námsefni, eða jafnvel
hafa munnlegar umræður, ýmist með einum nem-
anda eða smáhóp og gefa einkunn fyrir frammistöðu
í slíkum umræðum. Slíkt samfellt námsmat kallar á
meira skipulag og minnkar frjálsræði nemenda og
eykur sennilega vinnuálagið.
HörSur: Núgildandi próffyrirkomulag er ein-
göngu skrifleg próf að vori. Próf í lífefnafræði hafa
frá því skriflega próf voru almennt tekin upp, verið
fjölbreytt, þ. e. notað er fleira en eitt form spurn-
inga (ritgerðir, fj ölvalspróf, smáspurningar) og tel
ég það rétt. Ég er þeirrar skoðunar að vorpróf eigi
að vera áfram, en að verulegur hluti heildareinkunn-
ar mætti þó gjarnan verða til yfir námsárið, sem
einkunnagj öf fyrir verkefni, ritgerðir, verklega þætti
etc.
Þorvaldur: Skrifleg próf í svipuðu formi og nú
er. Tel þó æskilegt að hafa tvö, e. t. v. þrjú minni
próf yfir veturinn, sem reiknuðust sem hluti loka-
prófs, en væru ekki sjálf lokapróf í neinum áfanga.
4. Telur þú þiirf ú aff kenna alnicnna
cfnafrteffi ú 1. úri eins oy nú er ycrt,
effa nuetti hefja lífcfnafrteffikennslu
þú strax?
Davíð: Efnafræðiþekking nýstúdenta er ekki nóg
til að hefja nám í lífefnafræði í læknadeild. Hún er
ekki nóg til að hefja nám í lyfjafræði eða lífeðlis-
fræði.
Elín: Ég tel nauðsynlegt að kenna aknenna efna-
fræði á fyrsta ári, m. a. vegna þess að engin inn-
LÆKNANEMINN