Læknaneminn - 01.07.1979, Qupperneq 33
sein mikið er af í vöðvum og heila, en t. d. nær
ekkert í lifur.
Innan frumunnar eru einstök enzym misjafnlega
dreifð milli frumuhluta svo sem frymis, mitochon-
dria, lysosóma og kjarna.
Hvfiifa cnzym finnast í plasnta?
Þau enzym, sem mælanleg eru í plasma, skiptast í
I’rja flokka. í fyrsta flokknum eru enzym, sem hafa
l)ar hlutverki að gegna, svo sem blóðstorkuenzymin
°g cholinesterasi, en þau eru framleidd í lifur og
losuð út í plasma. Truflun á starfsemi þeirra vefja,
sem framleiða slík enzym, getur valdið lækkun á
tnagni þeirra í plasma. I öðrum flokknum eru en-
zym, sem gegna hlutverki sínu inni í frumunum, og
1 þriðja flokknum eru enzym, sem framleidd eru til
losunar og starfa utan vefja, t. d. meltingarenzym.
I m báða þessa síðartöldu flokka má segja, að vera
þeirra í plasma er að vissu leyti „abnormal“, þar eð
þau gegna þar engu ldutverki, en eru þangað komin
fyrir áhrif niðurbrots eða sjúkleika fruma líkamans.
Venjuleg umsetning efnis í vefjum hefur í för með
sér nokkurn Ieka enzyma út í plasma, og því eru all-
mörg enzym mælanleg þar í örlitlu magni, en þær
hækanir enzyma, sem verða af völdum sjúkdóma,
leiða ofast til stórfelldrar hækkunar eða margföld-
unar á mælanlegri enzymvirkni.
Tafla I sýnir nokkur þau enzym, sem algengast er
að nota við sjúkdómsgreiningar ásamt algengustu
orsökum fyrir hækkun þeirra í serumi.
Hvernifi lchti cnztini út úr frumum?
Frumudauði (necrosis) leiðir til þess að fruman
leysist sundur en innihald hennar berst út í milli-
frumuvökvann og þaðan út í plasma. Frumudauði
veldur þess vegna hækkun enzymgilda í plasma.
TAFLA I
Helstu enzym, sem mœld eru við sjúkdómsgreiningar
Enzym Helslu orsakir hœkkunar í serumi
Súr fosfatasi
Alkalískur fosfatasi (AP)
Alanín amínótransferasi (ALAT)
Amylasi
Aspartat amínótransferasi (ASAT)
Kreatínkínasi (CK)
Gam.ma glutamyl transferasi (GGT)
Laktat dehydrogenasi (LDl
Metastasar frá prostatakrabbameini
Beinmetastasar
Beinsjúkdómar (osteoblastic activity)
Gallvegastíflur
Lifrarsjúkdómar (einkum hepatocellular)
Bráðabólga í briskirtli
Hettusótt
Lifrarsjúkdómar (einkum hepatocellular)
Hjartaáfall
Vöðvasjúkdómar
Fljartaáfall
V öðvasj úkdómar
Myxoedema
Gallvegasj úkdómar
Alkohólismi
Hjartaáfall
Megaloblastisk anaemia
Illkynja sjúkdómar (einkum ef dreifðir)
Muscular dystrophy
læknaneminn
29