Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Page 36

Læknaneminn - 01.07.1979, Page 36
ingu, en bæði enzymin hvata sama hvarf. Á sama hátt eru tveir ólíkir malat dehydrogenasar í frymi og í mitochondria. Slík ísóenzym má vanalega greina sundur með rafdrætti eSa krómatógrafíu. II. Mörg enzymmólekúl eru samsett úr tveim eSa fleiri undireiningum (subunits). Stundum eru þess- ar undireiningar framleiddar í ólíkum gerSum. og geta sameinast í mismunandi hlutföllum, sem leiðir til nokkurra ólíkra ísóenzyma. Laktat dehydrogenasi er samsettur úr fjórum undireiningum, en af þeim eru tvær gerðir, M og H (,.muscle“ og ,.heart“), sem geta sameinast í hvaða hlutföllum sem er. Þannig verða til fimm ísóenzym, TI4, H;;M, H2M2, HM;> og M4. Þau má greina sund- ur með rafdrætti, og eru þá venjulega númeruð eft- ir því h.ve hratt þau ferðast í átt að anóðunni. Þann- ig ferðast H4 ísóenzymið hraðast og er nefnt LDt en M4 hægast og er nefnt LD5. Einnig má greina ísóenzym sundur með krómatógrafíu. Undireiningarnar M og H eru framleiddar í mis- munandi magni í hinum ýmsu vefjum líkamans. H-einingin er til dæmis yfirgnæfandi í hjartavöðva en M-einingin í þverrákóttum vöðvum, og endur- speglast það í hlutföllum hinna fimm ísóenzyma LD í þessum vefjum. Sett hefur verið fram fysiologisk skýring á þessari mismunandi dreifingu ísóenzyma LD og hyggist hún á því, að eiginleikum undirein- inganna tvegja er þannig háttað að LD5 á best við í vefjum, sem þurfa að starfa við loftfirrðar aðstæð- ur og framleiða Iaktat, en LD4 á hins vegar betur við í vef, sem starfar við loftháðar aðstæður og nol- ar laktat til brennslu. Kreatínkínasamólekúlið er samsett úr tveim und- ireiningum, sem til eru í tveim gerðum, M og B („muscle“ og ,,brain“), og finnast því þrjú ísó- enzym, MM, MB og BB. Kreatínkínasi í þverrákótt- um vöðvum er af gerðinni MM, í heila finnst gerð- in BB en MB ísóenzymið finnst nær eingöngu í hjartavöðva. III. Arfgengur breytileiki finnst í allmörgum en- zymum, t. d. glúkósa-6-fosfat dehydrogenasa (G-6- PD) í rauðum hlóSkornum. G-6-PD af gerðinni A finnst í um fjórðungi amerískra negra og er frá- brugðinn B-gerðinni, sem finnst í flestu hvítu fólki, að því leyti að ein amínósýra mólekúlsins er hreytt, í stað asparagíns í B-gerðinni er aspartínsýra í A- gerðinni. Afbrigði heggja gerða hafa fundist í sjúk- lingum með haemolytiska anaemiu. IV. Enzymmólekúl, sem eru eins að amínósýru- samsetningu, bera stundum mismarga hlaðna efna- hópa til viðbótar. Til dæmis er alkaliskur fosfatasi glykoprotein, sem ber síalsýruleifar, sem auka við hleðslu proteinsins, þannig að því fleiri sem hóp- arnir eru þeim mun hraðar ferðast enzymið að já- kvæða skaulinu við rafdrátt. Breytileiki af þessum eða viðlíka ástæðum getur strangt tekið varla fallið undir hugtakið ísóenzym. V. Cholinesterasi í plasma virðist undirgangast gagnhverfa (reversible) polymeriseringu, sem háð er konsentration. Þannig getur hann við rafdrátt á hurðarefnum, sem hafa hlaupsíunaráhrif, komið fram sem mörg ísóenzym, einkum ef konsentration í sýninu er lág. Hér er þó ekki um raunveruleg ísó- enzym að ræða. AiiicrSir ri*> greiningu ísóenzyma Eiginleikar mismunandi ísóenzyma geta verið að vmsu leyti ólíkir. Kvantitatív mæling ísóenzyma er stundum byggð á aðgreiningu og síðan mælingu, en einnig má meta hlutföll einstakra ísóenzyma án und- angenginnar aðgreiningar með aðferðum, sem byggjast á ólíkum eiginleikum þeirra. Rafdráttur er líklega algengasta aðferðin við sundurgreiningu ísóenzyma, og er sellulósaacetat oft nolað sem burðarefni, en einnig agarhlaup, sterkju- hlaup o. fl. Að rafdrætti loknum er rafdráttarræman lituð með sérhæfðri litun, og koma þá fram litar- svæði á ræmunni, þar sem ísóenzymin eru staðsett. Þessi litarsvæði má meta eða niæla til að fá fram hlutföll hinna einstöku ísóenzyma. Rafdráttur er oft notaður við greiningu ísóenzyma LD, CK og AP. Krómatógrafía hefur nokkuð verið notuð lil að greina sundur ísóenzym, t. d. hafa litlar súlur með jónaskipti- og hlaupsíunarefnum svo sem DEAE- Sephadex verið notaðar til að greina sundur ísó- enzym LD og CK í serumsýnum. Aðgreining ísó- enzyma í stærri stíl fer nær alltaf fram með króma- tógrafíu. Aðferðir til ísóenzymagreiningar, sem ekki byggja á aðskilnaði ísóenzymanna, eru nokkrar. Isóenzym LD eru frábrugðin hvort öðru hvað 32 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.