Læknaneminn - 01.07.1979, Síða 46
Inngangur Nesstofu.
bættu 10% álagi síðari hluta þessa tímabils (ís-
lenzkar lyfsöluskrár, sjá neðanmálsgrein við 3. lið á
eftir). - Þess má hér minnast, að fyrsta lyfjaskráin
(Pharmaco poea Danica) var löggilt sama ár og
Birni Jónssyni var veitt lyfsöluleyfi.
Akvæði 19. gr. taka fyrst til þess, að lyfsali skuli
afgreiða lyf svo fljótt og kostur er. Næst eru ákvæði,
er tæpast verða skilin á annan veg en þann, að lyfja-
búðir skuli vera opnar nætur og daga á virkum dög-
um sem helgum dögum. Þættu þetta áreiðanlega
hörð kjör nú og erfitt hefði orðið að finna Undrinu
í Stórholti (Læknablaðið 1967, 53, 46-47) stað í
tilskipun Kristjáns konungs fimmta, þótt tækist að
gera það með stoð í lögum nær 300 árum síðar.
Þetta sannar enn ágæti þessarar tilskipunar. Loks
eru í 19. gr. ákvæði, er hamla ættu gegn því, að
menn gætu ekki keypt lyf vegna fátæktar.
í 22. gr. eru ákvæði um það, sem nú myndi vera
nefnt eiturskápar. í 23. gr. eru ákvæði um afgreiðslu
lyfseðla. Skyldi lyfsali bera vafaatriði á lyfseðli
undir lækni og eins, ef til greina kæmi, að láta úti
annað en á lyfseðlinum stæði. Ákvæði eru í 24. gr.
um þagnarskyldu lyfsala og starfsfólks þeirra. í 26.
gr. er ákvæði um eftirlit, sbr. einnig ákvæði 5. gr.
I síðustu greinum tilskipunarinnar eru ákvæði,
er varða skil milli lækna (i þá daga var greint á
mili medici og chirurgi) og lyfsala og vikið að
einkaleyfi lyfsala til þess að selja lyf.
Chancellie — Shrivelse til Stifts-
hefaliniismaml Olaf Stephcnsen, tiny.
Cdsaltf af Medihamenter. Khavn 1G.
Septhr. 1797
Bréf þetta var upp lesið á Alþingi 1798, en það
var síðasta þing, er haldið var á Þingvöllum. Tilefni
bréfsins var einmitt brot á einkasölu lyfsöluleyfis-
hafa. Jón Sveinsson landlæknir hafði komið á fram-
færi kæru Ara Arasonar læknis, en hann var þá að-
stoðarlæknir Jóns Péturssonar, fjórðungslæknis í
Norðlendingafjórðungi, þess efnis, að lyf væru seld
í verslunum á Norðurlandi. Er í bréfinu sérstaklega
nefndur Lynge, verslunarstjóri á Akureyri (nefnt
„Oefjords Kjöbstæd“), og var sök hans uppi hvorki
meira né minna en í 165 ár eða þangað til bréfið var
úr gildi fellt með gildistöku lyfsölulaga nr. 30/
1963.
Bréfið er birt í Lovsamling for Island, VI. bindi,
1792-1805, bls. 288 (Kaupmananhöfn, 1856). Bréf-
ið er að mínu viti ritað í eins „hreinum kensellístíl“
og auðið er.
Frunivarp til laya wni einhasölu á
lyfjum
(Lagt fyrir Alþingi 1921, þingskjal 24)
Með lagafrumvarpi þessu, er landlæknir (Guð-
mundur Björnsson) hafði samið og flutt var í nafni
stjórnarinnar, var gerð tilraun til þess að koma á
einkainnflutningi landsstjórnarinnar á lyfjum, um-
búðum og hjúkrunargögnum frá 1. janúar 1922 að
telja (1. gr. frumvarpsins). Einkasöluvarningur
38
LÆ KNANEMINN