Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1981, Side 30

Læknaneminn - 01.03.1981, Side 30
Lim ástand hinna slösuðu og annað sem máli skiptir. Hann þarf að fiokka hina slösuðu eftir því hverjir þurfa að komast fyrst á sjúkrahús. Erfitt er að veita læknishjálp á víðavangi í vond- um veðrum og er því nauðsynlegt að hinir slösuðu séu fluttir sem fyrst á einhvern stað nálægt slysstað, svo sem í skóla eða samkomuhús þar sem áfram- haldandi meðferð getur farið fram og hinir slösuðu flokkaðir. Þessi flokkun gæti verið á eftirfarandi h átt: Fyrsti flokkur (þarf að flytja sem fyrst) : Ondun- arerfiðleikar, mikil blæðing, blæðingarlost, opin sár á kvið eða brjóstholi, alvarlegir höfuðáverkar, meiri- háttar brunar. Annar jlokkur (flutningur og meðferð má drag- ast eitthvað): Meiriháttar brot, meiðsli á baki, and- litsáverkar án öndunarerfiðleika, minnibáttar brun- ar. Þriðji flokkur: Minniháttar beinbrot, minni á- verkar á brjóstholi og höfði, lítið meiddir. Látnir skulu greindir og merktir og fluttir á ákveðinn stað þannig að ekki þurfi að eyða tíma í að marggreina þá. Vafasamt er talið að meðhöndla og flytja þá sem eru stórslasaðir og virðast eiga eftir mjög stutt ólifað, en slíkar ákvarðanir getur verið mjög erfitt að taka og margt sem þarf að taka til greina í því sambandi. Á vegum Almannavarna ríkisins er nú verið að útbúa sérstaka merkimiða sem notaðir verða um allt land til að merkja hina slösuðu ef um hópslys er að ræða. ÚTBÚNAÐUR VEGNA SLYSA- MÍEÐFERÐAR OG AEYÐARTILFELLA Þeir læknar, sem helst þurfa að sinna neyðartil- fellum, svo sem heilsugæslulæknar og læknar sem kallaðir eru frá sjúkrahúsum, þurfa að hafa góðan útbúnað til notkunar í slíkum tilfellum. Hér verður þó ekki gerð nein heildarupptalning en aðeins minnst á nokkra hluti: Góður útbúnaður til öndunarhjálp- ar, sogútbúnaður, súrefnisútbúnaður, vökvi til að láta renna í æð og lilheyrandi útbúnaður, lítil hjarta- sveiflusjá og raflosttæki, sprautur og nálar, sáraum- búðir, nauðsynleg lyf, spelkur. HEIMILDIR: 1 Kirk, U.: Skyndihjálp. 2. útg. Rauði kross íslands, 1978. 2 Kristinn Guffmundsson: Alvarlegir höfuðáverkar og fyrstu viðbrögð.Læknaneminn 1979, des.; 33(4) :15—7,71. 3 Zorab, JSM, Baskett, PJF: Inrmediate care. London, Saunders, 1977. pp. 8, 40-3. Bjóðum lyf, hjúkrunar-, hreinlætis- og snyrtivörur Munið okkar sérhæfðu þjónustu — Glerdeild með áhöldum og tækjum fyrir rannsóknastoíur, heilsugæslustöðvar, skóla o. fl. INGÓLFS APÓTEK Hafnarstræti 5, 121 Reykjavík - P. 0. Box 869 Símar: fyrir lækna 26655 - almennur simi 29300 28 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.