Læknaneminn - 01.01.1983, Qupperneq 14
Rissmynd I. Helstu brautir sýndar. cx: cortex cerebri. ned: nuel. caudatus. th:
thalamus. put: putamen. gpl: globus pallidus. sth: nucl. subthalamicus. rub: nucl.
ruber, sni: substantia nigra, DA: dópamínerg braut. GABA: braut sem notar GABA
fyrir boöefni. pyr: tractus pyramidalis(corticospinalis).
capsula interna, líta út eins og strik á
þversniði. Flestir höfundar nota
nafnið „corpus striatum", sumir að-
eins „striatum“ og aðrir tala um
„neostriatum, því þessir kjarnar eru
ungir í þróuninni.
Globus pallidus er af sumum
nefndur „pallidum" (samanber
striatum), en af öðrum „paleostriat-
um“ þar eð hann er eldri en neostri-
atum áður nefnt.
Þessi nöfn skiljast best af eftirtöld-
um þrem anatomiskum jöfnum:
neostriatum = striatum = corpus
striatum = putamen & nucl. caud-
atus
paleostriatum = pallidum = globus
pallidus
nucl. lentiformis = globus pallidus &
putamen6
Þessir djúpkjarnar mynda ásamt
heilaberki svokallað extrapyramidal
taugakerfi. Það er í grófum dráttum
lokaður hringur, samanber rissmynd
II. Kerfið er nauðsynlegt allri fínni
hreyfistjórn. Það byggist aðallega á
jafnvægi milli tveggja boðefna:
Acetýlkólíns sem er örvandi og
dópamíns sem er letjandi. Fleiri boð-
efni koma þar við sögu, svo sem
GABA (G-G-G-GASSSSSS). Þau
hafa enn ekki mikla klíníska þýðingu
að því er varðar Parkinsons sjúkdóm.
Frá substantia nigra liggja dópa-
mínergar brautir til corpus striatum
og globus pallidus, merktar DA á
rissmynd. Þangað koma kólínergar
brautir annars staðar frá, t.d. frá
heilaberki. Braut sem notar GABA
sem boðefni liggur frá corpus striat-
um til subst. nigra og tengist á dópa-
mínergar frumur. Það er háð jafn-
væginu milli dópamínáhrifa og áhrifa
acetýlkólíns hve globus pallidus er
virkur, en frá honum fara boð endan-
lega út og niður í gegnum nucl.
subthalamicus og nucl. ruber.3
/ paralysis agitans skemmast dópa-
mírtergar taugafrumur í substantia
nigra. örvandi kólínerg áhrif á
12
LÆKNANEMINN - 36. árg.