Læknaneminn - 01.01.1983, Side 33

Læknaneminn - 01.01.1983, Side 33
Lyme sjúkdómur Guðmundur M. Stefánsson, stud. med. Hjörtur Oddsson, stud. med. Formáli: Árið 1975 kom húsmóðir nokkur í þorpinu Old-Lyme í Connecticut fylki í U.S.A. í heimsókn í stöðvar heilhrigðisyfirvalda fylkisins, og sagðist eiga erfitt með aö trúa því að 12 börn í heimabæ hennar, sem taldi um 5000 íbúa, hefðu veikst af Juven- ile Rheumatoid Arthritis (JRA) um svipað leyti. Á sama tíma barst heilbrigðisyfir- völdum fylkisins einnig frétt þess efnis, að húsmóðir ein á sama svæði hefði sagt að liðbólgur væru „að ganga'* í fjölskyldunni, bæði meðal barna og fullorðinna. Petta þótti heilbrigðisyfirvöldum að vonum grunsamlegt og fljótlega var Allen C. Steere og félögum við Yale háskóla falið að rannsaka þessi óvenjulegu tilfelli. annan sjúkdóm en JRA og margt benti til að orsökina væri að finna í umhverfi sjúklinga, sbr. mismun í árstíðadreifingu á JRA og Lyme sjúkdóm, en umhverfisrannsóknir sem gerðar voru gátu ekki tengt lil- fellin saman m. t. t. sameiginlegra umhverfisþátta. Þó kom fram að dreifbýlis- og skógarsvæði voru meira útsett fyrir Lyme-sjúkdóm en þéttbýli og gróðurminni svæði, og vaknaði sá grunur að orsökina væri etv. að finna í hinni lifandi náttúru, og voru skordýr sterklega grunuð. Ennfremur kom fram að ef lið- bólgu einkenni komu fram hjá nokkrum einstaklingum sömu fjöl- skyldu, þá komu þau einkenni ekki endilega á saina tíma, sem benti til að sjúkdómurinn bærist ekki bcint manna á milli. Skordýrahugmyndin beindi nú at- hyglinni að húð sjúklinganna og fram kom að 25% áðurnefnds sjúklinga- hóps minntust framkomu húðút- brota 1—24 vikum áður en Iiðbólgu- einkennin komu fram. Staða þessara útbrota á líkamanum benti til að skordýr gæti verið orsakavaldur, þar sem útbrotin voru staðsett á líkams- stöðum sem yfirleitt eru þakin klæð- um dags daglega. Lýsing á þessum húðútbrotum kom vel heim og sam- an við sérstaka tegund útbrota sem nefndust Erythema Chronicum Migrans (ECM), sem ekki voru vel þckkt í U.S.A., en hafði verið lýst í Evrópu frá því um síðustu aldamót. Etiologia: Sjúklingahópurinn sem Steere og fé- lagar rannsökuðu samanstóð af 51 einstaklingi, þar sem 39 voru börn en 12 fullorðnir. Taflan hér á eftir, no. 1, sýnir niðurstöður rannsóknarinn- ar, þar sem bornir voru saman JRA og þessi nýja sjúkdómsmynd, er fljótt var nefnd Lyme sjúkdómur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að Lyme-sjúkdómurinn var staðbundinn. Tilfellin'komu fram í ákveðnum bæjarfélögum í Connecti- cut-fylki, nefnilega þorpunum Old Lyme, Lyme og East Haddam. Við fjórar götur í ?? veiktist tíunda hvert barn af Lyme sjúkdómi. Dreifing til- fella benti til að hér væri um að ræða Tafla 1. JRA Lyme sjd. 1) Liðbólgueinkenni í mörgum liðunr > 50% tilfella 2% tilfella 2) Iridocyclitis + ANA (antinuclear antibodies) > 25% tilfella 0% tilfella 3) Aldur 1-3 ára 9-11 ára Meiri aldursdreif. 4) Kyndreifing m.t.t. fram- komu liðbólgna í fáa liði / =3:1 / =1:1 5) Rheumatoid Factor(RF) Fannst hjá eldri Fannst ekki 6) Algengi á Lyme svæði einstaklingum 1 100 7) Árstíðadreifing enginn mismun. Öll tilfelli 8) Fjölskyldusaga minni bund. v/ vor/haust meiri LÆKNANEMINN - 36. árg. 31

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.