Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 FRÉTTIR Niðurskurður vegna riðu: Vantar hvata til að halda áfram – Miðfjarðarbændur í samningaviðræðum um bætur Elín Anna Skúladóttir á Bergsstöðum bendir á að reglugerðin, sem gerir ráð fyrir bótagreiðslum í kjölfar niðurskurðar vegna riðu, sé frá árinu 2001 og þar sé eitt og annað sem þurfi að uppfæra. „Til dæmis má nefna að fyrir­ komulag á ullargreiðslum til bænda er nú tvískipt, annar hlutinn er frá Ístex en hinn hlutinn frá ríkinu. Þegar reglugerðin var samin þá var bara gert ráð fyrir greiðslum frá ríkinu þannig að við yrðum til dæmis af þessum ullargreiðslum fyrir afurðir okkar sem lagðar voru inn til Ístex og það er ekki í samræmi við reglugerðina þar sem lagt er upp með að bændur skuli ekki verða fyrir afurðatjóni,“ segir Elín. Ekki gert ráð fyrir greiðslum vegna uppbyggingar „Síðan er það hitt að bústofninn er bara tekinn og okkur gert tilboð í hann vegna bótagreiðslna – en svo er ekki gert ráð fyrir sérstökum bótum fyrir kaupum á líflömbum til uppbyggingar á nýjum stofni. Bætur vegna niðurskurðar virðast eiga að duga fyrir þeim en til dæmis í okkar tilviki þá vorum við með um 700 kindur og til að geta byrjað að nýju með sambærilegan fjárstofn þá þyrftum við að taka að láni um 15 milljónir miðað við verð á lífgimbur í dag og þann fjárfjölda sem við vorum með, sem verður mun hærra eftir tvö ár þegar og ef við getum hafið búskap að nýju. Eðlilegast væri að við fengjum það fjármagn sem kostaði okkur að kaupa nýjan fjárstofn í stað þess gamla. Hvar er svo allt talið um fæðuöryggi hjá ráðamönnum þjóðarinnar? Núna virðist stefna í kjötskort í landinu, það er bara allt önnur staða en hefur verið síðustu 10­30 ár. Núna vantar kjöt á markaðinn og fyrir okkur er enginn hvati til að taka fé aftur og alveg galið að þurfa að taka lán til að kaupa sér nýjan bústofn, að það dugi engan veginn bústofnsbæturnar fyrir nýjum fjárstofni,“ segir Elín. Engin vinnulaun greidd vegna hreinsunar Elín segi það líka umhugsunarvert að þó allur efniskostnaður sé bættur þá er ekki borguð króna vegna vinnu við niðurrif, uppbyggingu og þrif. „Við erum svo sem ekki bjartsýn, reglurnar eru mjög skýrar á meðan reglugerðinni er ekki breytt, gera bara ráð fyrir lágmarksbótum sem eru í raun bara starfslokasamningur eins og við sjáum þetta,“ segir Elín. Gáfu smituðu gimbrina yfir á Syðri-Urriðaá Hún segist ekki vita enn hvort þau muni taka aftur til sín fé eftir fjárleysisárin. „Það fer eftir því hvernig allt saman þróast og samningar verða við ráðuneytið. Við erum búin að mæta á einn fund með þeim ásamt nágrönnum okkar á Syðri­Urriðaá og þar fengum við fínar viðtökur og áttum gott spjall. Okkur er málið skylt því við gáfum þessa einu gimbur sem hefur reynst smituð á Syðri­Urriðaá – þannig að þetta er virkilegur harmleikur fyrir okkur og við myndum alls ekki vilja missa þau héðan úr sveitinni.“ Líklega ekki mögulegt að byrja aftur Ólafur Rúnar Ólafsson á Syðri­ Urriðaá tekur undir með Elínu að bæturnar sem í boði eru séu eins konar starfslokasamningur við ríkið. „Það vantar allan hvata fyrir bændur til að halda þessu áfram, almennilegan stuðning til að byggja upp að nýju og nokkra aðra þætti sem lenda á okkur. Eins og staðan er núna þá lítur ekki út fyrir að við getum byrjað aftur fjárhagslega, þegar okkur verður leyft það. Við erum með okkar skuldir og miðað við þær bætur sem standa okkur til boða þá er það bara líklega ekki hægt. Það er talað um það í reglugerð að bændur skuli fá fullar bætur en það virðist í það minnsta í okkar tilfellum að það sé fjarri lagi. Á fundinum var svo sem hlustað á okkur og okkar viðhorf en við höfum ekki fengið nein viðbrögð,“ segir Ólafur. Hátt verð fyrir verndandi arfgerð Ólafur segir að kostnaðurinn við að taka hrúta með verndandi arfgerðina ARR yrði mjög hár. „Við myndum auðvitað reyna að taka ARR­hrúta ef við færum í fjárskipti eftir tvö ár og mér skilst að verðið á slíkum hrútum sé í hæstu hæðum enda mjög eftirsóttir – þannig að það er ekki einu sinni víst að þeir muni liggja á lausu næstu árin. Ef við þurfum að kaupa líflömb aftur þá yrði það mjög kostnaðarsamt, mér skilst að meðalverð fyrir lífgimbur sé á bilinu 30­35 þúsund – og við erum ekkert að fá bætur sem geta staðið straum af slíkum kaupum. Við fáum þennan bústofnsstyrk vegna niðurskurðarins, sem er hugsaður til uppbyggingar á nýjum stofni eftir tvö ár. Kannski erum við svona barnaleg að vilja bætur fyrir féð sem er farið, óháð því hvort við tökum fé eða ekki. Það sem er furðulegt í þessu er að bændur fá þessar bústofnsbætur hvort sem þeir taka fé eða ekki. Þannig er verið að hvetja og verðlauna okkur að taka ekki fé aftur en ef við byrjum aftur þá fara allar bústofnbæturnar upp í kostnað á nýju fé sem eru samt fjarri lagi að duga til. Maður vill nú helst tjá sig sem minnst um þessi mál – við erum í raun enn að jafna okkur eftir þetta mikla áfall,“ segir Ólafur. Útreikningum og samningum ólokið Í svari frá matvælaráðuneytinu, við fyrirspurn um fyrirkomulag bótagreiðslna til Miðfjarðarbænda, kemur fram að ekki liggi enn fyrir hver muni verða heildarupphæð bóta vegna niðurskurðar þar. Uppmælingar og útreikningar standi enn yfir og samningum við ábúendur þar af leiðandi ekki lokið. Bætur séu reiknaðar út frá þeim forsendum sem skilgreindar eru í reglugerð sem fjalli um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar. Auk bóta vegna niðurskurðar og afurðatjónsbóta, sé einnig greiddur efniskostnaður vegna þrifa og endurnýjunar. Í svari ráðuneytisins kemur fram að sá kostnaður liggi ekki fyrir að svo stöddu. Bændur á bæjunum Bergsstöðum og Syðri-Urriðaá í Miðfirði standa nú í samningaviðræðum við ríkið um bætur í kjölfar niðurskurðar vegna riðutilfella sem greindust í þeirra hjörðum. Samstarf er meðal bændanna og njóta þeir liðsinnis lögfræðinga Bændasamtaka Íslands í þeirri viðleitni að ná fram sanngjörnum bótum. Þeir telja reglugerðina úrelta enda geri hún hvorki ráð fyrir að tjón sé að fullu bætt né að stofn sé byggður upp að nýju. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Hrútar frá Bergsstöðum. Bændurnir í Miðfirði eiga í viðræðum við stjórnvöld um bætur vegna niðurskurðar á um 1.400 fjár. Myndir / Aðsendar Gæði fyrir dýrin og þig! FB Reykjavík Korngarðar 12 570 9800 FB Selfoss Austurvegur 64 a 570 9840 FB Hvolsvöllur Duftþaksbraut 1 570 9850 www.fodur.is fodur@fodur.is Ólafur Rúnar Ólafsson og Dagbjört Diljá Einþórsdóttir búa á Syðri-Urriðaá. Elín Anna Skúladóttir og Ari G. Guðmundsson á Bergsstöðum. Bergsstaðir í Miðfirði. Úr fjárhúsunum á Bergsstöðum. Elín segir að bætur vegna niðurskurðar eigi að duga þeim fyrir nýjum fjárstofni en í þeirra tilviki muni þær hrökkva skammt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.