Bændablaðið - 25.05.2023, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
FRÉTTIR
Niðurskurður vegna riðu:
Vantar hvata til að halda áfram
– Miðfjarðarbændur í samningaviðræðum um bætur
Elín Anna Skúladóttir á
Bergsstöðum bendir á að reglugerðin,
sem gerir ráð fyrir bótagreiðslum í
kjölfar niðurskurðar vegna riðu, sé
frá árinu 2001 og þar sé eitt og annað
sem þurfi að uppfæra.
„Til dæmis má nefna að fyrir
komulag á ullargreiðslum til bænda
er nú tvískipt, annar hlutinn er frá
Ístex en hinn hlutinn frá ríkinu.
Þegar reglugerðin var samin þá
var bara gert ráð fyrir greiðslum
frá ríkinu þannig að við yrðum til
dæmis af þessum ullargreiðslum
fyrir afurðir okkar sem lagðar voru
inn til Ístex og það er ekki í samræmi
við reglugerðina þar sem lagt er upp
með að bændur skuli ekki verða fyrir
afurðatjóni,“ segir Elín.
Ekki gert ráð fyrir
greiðslum vegna uppbyggingar
„Síðan er það hitt að bústofninn
er bara tekinn og okkur gert tilboð
í hann vegna bótagreiðslna – en
svo er ekki gert ráð fyrir sérstökum
bótum fyrir kaupum á líflömbum
til uppbyggingar á nýjum stofni.
Bætur vegna niðurskurðar virðast
eiga að duga fyrir þeim en til dæmis
í okkar tilviki þá vorum við með um
700 kindur og til að geta byrjað að
nýju með sambærilegan fjárstofn þá
þyrftum við að taka að láni um 15
milljónir miðað við verð á lífgimbur
í dag og þann fjárfjölda sem við
vorum með, sem verður mun hærra
eftir tvö ár þegar og ef við getum
hafið búskap að nýju. Eðlilegast
væri að við fengjum það fjármagn
sem kostaði okkur að kaupa nýjan
fjárstofn í stað þess gamla.
Hvar er svo allt talið um
fæðuöryggi hjá ráðamönnum
þjóðarinnar? Núna virðist stefna í
kjötskort í landinu, það er bara allt
önnur staða en hefur verið síðustu
1030 ár.
Núna vantar kjöt á markaðinn
og fyrir okkur er enginn hvati til
að taka fé aftur og alveg galið að
þurfa að taka lán til að kaupa sér
nýjan bústofn, að það dugi engan
veginn bústofnsbæturnar fyrir nýjum
fjárstofni,“ segir Elín.
Engin vinnulaun greidd
vegna hreinsunar
Elín segi það líka umhugsunarvert
að þó allur efniskostnaður sé bættur
þá er ekki borguð króna vegna vinnu
við niðurrif, uppbyggingu og þrif.
„Við erum svo sem ekki bjartsýn,
reglurnar eru mjög skýrar á meðan
reglugerðinni er ekki breytt, gera
bara ráð fyrir lágmarksbótum sem
eru í raun bara starfslokasamningur
eins og við sjáum þetta,“ segir Elín.
Gáfu smituðu gimbrina
yfir á Syðri-Urriðaá
Hún segist ekki vita enn hvort
þau muni taka aftur til sín fé
eftir fjárleysisárin. „Það fer eftir
því hvernig allt saman þróast og
samningar verða við ráðuneytið.
Við erum búin að mæta á einn fund
með þeim ásamt nágrönnum okkar
á SyðriUrriðaá og þar fengum við
fínar viðtökur og áttum gott spjall.
Okkur er málið skylt því við gáfum
þessa einu gimbur sem hefur reynst
smituð á SyðriUrriðaá – þannig að
þetta er virkilegur harmleikur fyrir
okkur og við myndum alls ekki vilja
missa þau héðan úr sveitinni.“
Líklega ekki mögulegt
að byrja aftur
Ólafur Rúnar Ólafsson á Syðri
Urriðaá tekur undir með Elínu að
bæturnar sem í boði eru séu eins
konar starfslokasamningur við
ríkið. „Það vantar allan hvata fyrir
bændur til að halda þessu áfram,
almennilegan stuðning til að byggja
upp að nýju og nokkra aðra þætti
sem lenda á okkur.
Eins og staðan er núna þá lítur
ekki út fyrir að við getum byrjað
aftur fjárhagslega, þegar okkur
verður leyft það. Við erum með
okkar skuldir og miðað við þær
bætur sem standa okkur til boða þá
er það bara líklega ekki hægt. Það er
talað um það í reglugerð að bændur
skuli fá fullar bætur en það virðist í
það minnsta í okkar tilfellum að það
sé fjarri lagi.
Á fundinum var svo sem hlustað
á okkur og okkar viðhorf en við
höfum ekki fengið nein viðbrögð,“
segir Ólafur.
Hátt verð fyrir verndandi arfgerð
Ólafur segir að kostnaðurinn við að
taka hrúta með verndandi arfgerðina
ARR yrði mjög hár. „Við myndum
auðvitað reyna að taka ARRhrúta
ef við færum í fjárskipti eftir tvö
ár og mér skilst að verðið á slíkum
hrútum sé í hæstu hæðum enda mjög
eftirsóttir – þannig að það er ekki
einu sinni víst að þeir muni liggja á
lausu næstu árin.
Ef við þurfum að kaupa
líflömb aftur þá yrði það mjög
kostnaðarsamt, mér skilst að
meðalverð fyrir lífgimbur sé á bilinu
3035 þúsund – og við erum ekkert
að fá bætur sem geta staðið straum
af slíkum kaupum. Við fáum þennan
bústofnsstyrk vegna niðurskurðarins,
sem er hugsaður til uppbyggingar á
nýjum stofni eftir tvö ár. Kannski
erum við svona barnaleg að vilja
bætur fyrir féð sem er farið, óháð því
hvort við tökum fé eða ekki. Það sem
er furðulegt í þessu er að bændur fá
þessar bústofnsbætur hvort sem þeir
taka fé eða ekki. Þannig er verið að
hvetja og verðlauna okkur að taka
ekki fé aftur en ef við byrjum aftur
þá fara allar bústofnbæturnar upp í
kostnað á nýju fé sem eru samt fjarri
lagi að duga til.
Maður vill nú helst tjá sig sem
minnst um þessi mál – við erum í
raun enn að jafna okkur eftir þetta
mikla áfall,“ segir Ólafur.
Útreikningum
og samningum ólokið
Í svari frá matvælaráðuneytinu,
við fyrirspurn um fyrirkomulag
bótagreiðslna til Miðfjarðarbænda,
kemur fram að ekki liggi enn fyrir
hver muni verða heildarupphæð
bóta vegna niðurskurðar þar.
Uppmælingar og útreikningar standi
enn yfir og samningum við ábúendur
þar af leiðandi ekki lokið.
Bætur séu reiknaðar út frá þeim
forsendum sem skilgreindar eru í
reglugerð sem fjalli um útrýmingu
á riðuveiki og bætur vegna
niðurskurðar. Auk bóta vegna
niðurskurðar og afurðatjónsbóta,
sé einnig greiddur efniskostnaður
vegna þrifa og endurnýjunar.
Í svari ráðuneytisins kemur fram
að sá kostnaður liggi ekki fyrir að
svo stöddu.
Bændur á bæjunum Bergsstöðum og Syðri-Urriðaá í Miðfirði standa
nú í samningaviðræðum við ríkið um bætur í kjölfar niðurskurðar
vegna riðutilfella sem greindust í þeirra hjörðum. Samstarf er meðal
bændanna og njóta þeir liðsinnis lögfræðinga Bændasamtaka Íslands í
þeirri viðleitni að ná fram sanngjörnum bótum. Þeir telja reglugerðina
úrelta enda geri hún hvorki ráð fyrir að tjón sé að fullu bætt né að stofn
sé byggður upp að nýju.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Hrútar frá Bergsstöðum. Bændurnir í Miðfirði eiga í viðræðum við stjórnvöld um bætur vegna niðurskurðar á um
1.400 fjár. Myndir / Aðsendar
Gæði fyrir dýrin og þig!
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
Duftþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
Ólafur Rúnar Ólafsson og Dagbjört
Diljá Einþórsdóttir búa á Syðri-Urriðaá.
Elín Anna Skúladóttir og Ari G.
Guðmundsson á Bergsstöðum.
Bergsstaðir í Miðfirði.
Úr fjárhúsunum á Bergsstöðum. Elín segir að bætur vegna niðurskurðar eigi
að duga þeim fyrir nýjum fjárstofni en í þeirra tilviki muni þær hrökkva skammt.