Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS Markaðir 151,3 kr. Evra 140,37 kr. USD 173,92 kr. Pund 312,35 kr. 95 okt bensín 308,47 kr. Díesel 16,2 USD Mjólk (USD/100 pund) 6,19 USD Korn (USD/sekkur) 47,7 EUR Kartöflur (EUR/100 kg) 1239 AUD Ull (AUD/100 kg) 1,73 USD Ostur (USD/pund) 4663 EUR Smjör (EUR/tonn) Í núgildandi búvörusamningum og nýkynntum drögum að matvæla­ áætlun ríkisins eru markmið um að íslensk matvælaframleiðsla geti staðið undir fæðuþörfum þjóðarinnar. Er það til þess að efla fæðuöryggi og áfallsþol þjóðarinnar en ekki síður vegna heilnæmra og umhverfisvænna framleiðsluþátta sem iðkaðir eru hér á landi. Umræðan um skert starfsskilyrði í landbúnaði hefur verið áberandi undanfarin misseri og í kjölfar öfgakenndra aðfangahækkana á síðasta ári hefur starfsgreinin staðið höllum fæti að ákveðnu leyti. Dregið hefur úr matvælaframleiðslu á landinu ár frá ári síðan 2018 og ef framleiðslutölur eru bornar saman við fólksfjölda er ljóst að markmið um að hægt verði að fæða þjóðina með innlendri framleiðslu fjarlægist í sífellu. Mestu munar um samdrátt í sauðfjárrækt. Framleiðsla kindakjöts á mann dróst saman um rétt tæp 30% frá árinu 2012 og fram yfir árið 2022. Hrossakjötsframleiðsla dróst saman um 40% og svínakjötsframleiðsla um 12%. Framleiðsla allra tegunda jókst annaðhvort árið 2020 eða 2021 í kjölfar fækkunar ferðamanna á landinu en hefur svo fallið aftur. Í endurnýjun búvörusamnings um grænmetisrækt árið 2020 var lagt fram markmið um að auka ræktun grænmetis á Íslandi um 25% frá meðal framleiðslu þriggja ára þar á undan. Háleitt markmið sem, aftur, hefur skírskotun í bæði fæðuöryggis- og umhverfissjónarmið. Frá þeim tíma hefur heildarframleiðsla nokkurn veginn staðið í stað og þar með dregist saman á hvern einstakling. Árið 2022 var framleiðsla á mann, af þeim tegundum sem til eru opinberar tölur um, 35 kg. Er það 15 kg samdráttur frá 2012. Jafnvel þótt markmið um 25% aukningu frá meðalframleiðslu áranna 2017 til 2019 hefði náðst væri framleiðslan enn töluvert undir framleiddu magni ársins 2012. Samhliða þessum samdrætti í framleiðslu á mann hefur innflutningur aukist. Árið 2022 voru flutt inn til landsins tæplega 14,5 kg af kjöti og ostum á mann. Er það meira en þreföldun frá árinu 2012 og féll markaðshlutdeild innlendrar kjötframleiðslu til að mynda úr 92,7% niður í 76,1%. Yfir sama tímabil féll markaðshlutdeild innlends grænmetis úr 55% í 46%. Að reiða sig alfarið á innlenda framleiðslu og útiloka innflutning á matvælum er bæði óraunhæft og óskynsamt út frá fæðuöryggissjónarmiðum. Hins vegar er eðlilegt að bæði bændur og stjórnvöld spyrji sig hvert þau vilji að íslensk matvælaframleiðsla stefni og hvað sé hægt að gera til að styðja hana á þeirri vegferð. /SFB Matvælaframleiðsla á Íslandi heldur ekki í við fólksfjölgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.