Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Markaðir
151,3 kr.
Evra
140,37 kr.
USD
173,92 kr.
Pund
312,35 kr.
95 okt bensín
308,47 kr.
Díesel
16,2 USD
Mjólk (USD/100 pund)
6,19 USD
Korn (USD/sekkur)
47,7 EUR
Kartöflur (EUR/100 kg)
1239 AUD
Ull (AUD/100 kg)
1,73 USD
Ostur (USD/pund)
4663 EUR
Smjör (EUR/tonn)
Í núgildandi búvörusamningum og nýkynntum drögum að matvæla
áætlun ríkisins eru markmið um að íslensk matvælaframleiðsla
geti staðið undir fæðuþörfum þjóðarinnar. Er það til þess að efla
fæðuöryggi og áfallsþol þjóðarinnar en ekki síður vegna heilnæmra
og umhverfisvænna framleiðsluþátta sem iðkaðir eru hér á landi.
Umræðan um skert starfsskilyrði í landbúnaði hefur verið áberandi
undanfarin misseri og í kjölfar öfgakenndra aðfangahækkana á síðasta ári
hefur starfsgreinin staðið höllum fæti að ákveðnu leyti. Dregið hefur úr
matvælaframleiðslu á landinu ár frá ári síðan 2018 og ef framleiðslutölur
eru bornar saman við fólksfjölda er ljóst að markmið um að hægt verði
að fæða þjóðina með innlendri framleiðslu fjarlægist í sífellu.
Mestu munar um samdrátt í sauðfjárrækt. Framleiðsla kindakjöts á
mann dróst saman um rétt tæp 30% frá árinu 2012 og fram yfir árið 2022.
Hrossakjötsframleiðsla dróst saman um 40% og svínakjötsframleiðsla
um 12%. Framleiðsla allra tegunda jókst annaðhvort árið 2020 eða 2021
í kjölfar fækkunar ferðamanna á landinu en hefur svo fallið aftur.
Í endurnýjun búvörusamnings um grænmetisrækt árið 2020 var lagt
fram markmið um að auka ræktun grænmetis á Íslandi um 25% frá meðal
framleiðslu þriggja ára þar á undan. Háleitt markmið sem, aftur, hefur
skírskotun í bæði fæðuöryggis- og umhverfissjónarmið. Frá þeim tíma
hefur heildarframleiðsla nokkurn veginn staðið í stað og þar með dregist
saman á hvern einstakling. Árið 2022 var framleiðsla á mann, af þeim
tegundum sem til eru opinberar tölur um, 35 kg. Er það 15 kg samdráttur
frá 2012. Jafnvel þótt markmið um 25% aukningu frá meðalframleiðslu
áranna 2017 til 2019 hefði náðst væri framleiðslan enn töluvert undir
framleiddu magni ársins 2012.
Samhliða þessum samdrætti í framleiðslu á mann hefur innflutningur
aukist. Árið 2022 voru flutt inn til landsins tæplega 14,5 kg af kjöti
og ostum á mann. Er það meira en þreföldun frá árinu 2012 og féll
markaðshlutdeild innlendrar kjötframleiðslu til að mynda úr 92,7% niður
í 76,1%. Yfir sama tímabil féll markaðshlutdeild innlends grænmetis
úr 55% í 46%.
Að reiða sig alfarið á innlenda framleiðslu og útiloka innflutning á
matvælum er bæði óraunhæft og óskynsamt út frá fæðuöryggissjónarmiðum.
Hins vegar er eðlilegt að bæði bændur og stjórnvöld spyrji sig hvert þau
vilji að íslensk matvælaframleiðsla stefni og hvað sé hægt að gera til að
styðja hana á þeirri vegferð. /SFB
Matvælaframleiðsla á Íslandi
heldur ekki í við fólksfjölgun