Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 Starfshópur um útrýmingu á riðuveiki Yfirdýralæknir hefur lagt til við matvælaráðherra að myndaður verði hópur sem muni vinna að útfærslu á nýrri aðferðafræði við útrýmingu á riðuveiki. Tillagan kemur í kjölfar ákvörðunar matvælaráðherra um breytta nálgun við útrýmingu á riðuveiki í íslensku sauðfé með því að beita riðuþolnum arfgerðum. Lagt er til að hópurinn vinni að greiningu á núverandi stöðu, útfærslu á nýrri aðferðafræði og mati á breyttri nálgun aðgerða í samvinnu við yfirdýralækni. 567 milljónir króna til næstu sjö ára Í tilkynningu úr ráðuneytinu, þar sem greint var frá ákvörðun ráðherra, kom fram að nægt fjármagn væri tryggt til að áætlun til næstu fimm ára næði fram að ganga. Hún gengur út á að 80 prósent af ásettu fé á mestu áhættusvæðunum verði ólíklegt til að veikjast af riðu. Tiltekin er fjárhæðin 567 milljónir króna til næstu sjö ára sem eiga meðal annars að standa straum á arfgerðagreiningum á 15 til 40 þúsund fjár árlega. Yfirdýralækni ber að hafa samráð Í umfjöllun Bændablaðsins um þessa breyttu aðferðafræði í síðasta tölublaði var rætt við Eyþór Einarsson, ráðunaut hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML), sem hefur stýrt verkefnum varðandi arfgerðagreiningar og ræktunarstarf með verndandi arfgerðir. Hann fagnaði útspili stjórnvalda en sagði að enn hefði ekki átt sér stað viðræður um útfærslu á þeim stuðningi sem stjórnvöld hafi tryggt til verkefnanna. Í svari matvælaráðuneytisins, við fyrirspurn um nýtingu á þessu fjármagni og mögulegt samráð við RML varðandi þessa breyttu nálgun, segir að fjármagnið eigi „að nýta til að sem best megi ráða niðurlögum riðu á Íslandi. Tekur það til þeirra aðgerða sem yfirdýralæknir leggur til í sinni nálgun á grunni þeirrar vinnu sem farið verður í. [...] Yfirdýralækni ber að hafa samráð við þá sem hún telur rétt að gera vegna fyrirliggjandi vinnu, ætla má að RML falli í þann flokk,“ segir í svarinu. /smh Tillaga að starfshópi yfirdýralæknis • Vilhjálmur Svansson, dýralæknir, veirufræðingur á Keldum • Stefanía Þorgeirsdóttir, líffræðingur og sérfræðingur í riðu á Keldum • Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir hjá Mast, sérþekking í riðuveiki • Hákon Hanson, sauðfjárdýralæknir á Breiðdalsvík • Þór Aspelund, stærðfræðingur/tölfræðingur hjá HÍ • Erla Sturludóttir, tölfræðingur, hjá LbHÍ Keldnaholti • Jón Hjalti Eiríksson, erfða- og kynbótafræðingur hjá LbHÍ Verkefni starfshóps • Leggja mat á árangur aðgerða stjórnvalda frá því skipulagður niðurskurður hófst á níunda ára- tug síðustu aldar, tölfræðilegir útreikningar og mat á því hvort riðuveiki hafi verið útrýmt annars vegar og hins vegar hvort hverfandi líkur (negligible) séu á upp komu riðuveiki á einhverjum landsvæðum þar sem riðuveiki var áður landlæg. • Leggja mat á væntanlegan árangur ræktunar vernd andi arf- gerða annars vegar og hugsan- lega verndandi arfgerða hins vegar, sbr. greinar gerð LbHÍ apríl 2023, þannig að líkur á uppkomu riðuveiki sé metin hverfandi eftir tiltekinn árafjölda og á tilteknum land svæðum. • Leggja mat á gildi mögulegra smitvarna til að hefta útbreiðslu riðusmits, þar á meðal notkun afrétta og fyrirkomulag fjárrétta. Æskilegt að smitvarnir verði flokk aðar í mikilvægisröð. • Leggja mat á smitvarnar- ráðstafanir í hjörðum þar sem riða hefur verið staðfest og ekki yrði skorið niður eða aðeins hluti hjarðar, sbr. tillögur Karólínu og Eyþórs 2. maí 2023 og og TSE reglu gerð ESB 999/2001, VII kafli). • Leggja mat á gildi núverandi fyrirkomulags varnarlína/varnar - girðinga m.t.t. til hafta á útbreiðslu riðusmits.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.