Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 1
10. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 25. maí ▯ Blað nr. 634 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Feðgarnir Ásmundur Lárusson og Hannes Orri Ásmundsson frá Norðurgarði í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Kjarni búrekstursins er mjólkurframleiðsla, en fyrir nokkrum árum fóru þeir einnig í grænmetisrækt. Óveruleg skörun er milli helstu álagspunkta í þessum búgreinum og betri nýting fæst á tækjabúnaði. Bændurnir segja helstu annmarka aukinna umsvifa að öll frí á sumrin hafa fokið út í veður og vind. – Sjá nánar á bls. 36–37. Mynd / Ástvaldur Lárusson Ekkert svigrúm til að auka stuðning við íslenska grænmetisframleiðslu – Þrátt fyrir fögur fyrirheit og áform stjórnvalda um aukna framleiðslu Garðyrkjubændur fá ekki hljómgrunn hjá samninganefnd stjórnvalda, við endurskoðun búvöru samninga, um aukinn stuðning við íslenska græn metis­ framleiðslu. Þó eru uppi ótvíræð áform hjá íslenskum stjórnvöldum – í orði kveðnu – um að stuðla að aukinni framleiðslu á næstu árum. Þessi áform hafa birst í ýmsum myndum á undanförnum misserum en svo virðist sem hugur fylgi ekki máli að því samningaborði sem fulltrúar stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands sitja nú við í þeim tilgangi að endurskoða búvörusamningana. Þar virðist ekkert svigrúm vera til aukins stuðnings við íslenska garðyrkju. Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands, segir að hann hafi bundið vonir við þessar samningaviðræður þar sem fyrirheit hafi verið gefin um aukinn stuðning við greinina til vaxtar. „Við höfum séð þetta ítrekað hjá stjórnvöldum að talað sé um að auka eigi grænmetisframleiðsluna, fyrst í stjórnarsáttmálanum og svo fögnuðum við því auðvitað gríðarlega nú síðast að sjá þessa fjármálaáætlun, þar sem gert var ráð fyrir að skilyrði yrðu sköpuð fyrir 25 prósenta vexti greinarinnar á næstu fjórum árum.“ Seinni endurskoðun garðyrkju- samnings búvörusamninganna stendur nú yfir. „Því miður virðist raunin vera sú að skilaboðin til okkar frá samninganefnd stjórnvalda eru að ekkert viðbótarfjármagn sé í boði til frekari stuðnings,“ segir Axel. Hentar nýliðum illa Axel segir að í málflutningi samninga- nefndar stjórnvalda hafi komið fram að einhverjir möguleikar væru í boði um að færa fjármuni á milli liða samningsins, en það hafi verið tekið skýrt fram að ekkert fáist til viðbótar. „Þá spyr maður sig; hvernig á íslensk garðyrkja að vaxa um þessi 25 prósent á næstu fjórum árum ef engir eru beinir hvatar til framleiðsluaukningar og áfram verður mjög erfitt fyrir nýliða að koma inn í greinina? Við fórum mjög vel yfir núverandi samning með þessari nefnd og samningurinn, eins og hann er byggður upp í dag, hentar ágætlega þeim sem eru nú þegar starfandi í garðyrkju. Hann hentar hins vegar engan veginn þeim sem vilja koma nýir inn í greinina eða þeim sem vilja stækka við sig og gera meira. Hann er sumsé letjandi á framleiðsluaukningu, sem er mjög slæmt.“ Niðurgreiðsla dreifingarkostnaðar „Það þarf að breyta samningnum og bæta á þann veg að það komi aukalega til fjármagn til að styðja við þessa framleiðsluaukningu sem mikið hefur verið talað um. Við teljum okkur hafa komið þessum skilaboðum skýrt á framfæri við samninganefndina og þar með stjórnvöld. Einn fundur hefur verið haldinn vegna garðyrkjusamningsins en fleiri fundir almennt um endurskoðun búvörusamninganna,“ útskýrir Axel. Auk þessa viðbótarfjármagns sem kallað er almennt eftir inn í greinina til framleiðsluaukningar, segir hann að lögð sé áhersla í viðræðunum á að auka fjármagn til niðurgreiðslu á dreifingarkostnaði raforku. „Núna er þessi pottur 400 milljónir sem kom inn í samninginn við gerð síðustu búvörusamninga. Þannig að ef menn stækka sínar stöðvar eða það fjölgar í greininni, þá er bara minna eftir handa öðrum. Þetta fyrirkomulag gengur auðvitað ekki upp ef stjórnvöld ætla að halda þessum stuðningi áfram og að hann haldi gildi sínu. Við erum því að berjast fyrir því að ná þessari niðurgreiðslu niður í einhverja fasta prósentu þannig að vitað sé hjá hverjum og einum hvað hann fær í stuðning.“ Uppbygging í kjölfar aukinnar niðurgreiðslu Axel bendir á að það standi einmitt í stjórnarsáttmálanum – að aukinni framleiðslu á grænmeti eigi að ná með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar og raunar með sérstökum stuðningi við útiræktun í gegnum búvörusamninga. „Við fyrri endurskoðun árið 2020 var bætt 200 milljónum króna við samninginn og þar með gert ráð fyrir aukningu í framleiðslu. Af þeirri fjárhæð fóru 70 milljónir til stækkunar á þessum potti, enda jókst framleiðslan þá talsvert í kjölfarið af því að gróðurhús voru byggð á um tíu þúsund fermetrum.“ Axel segir að það hafi sýnt sig að mun meiri eftirspurn er eftir íslensku grænmeti en framboð. Því hljóti stjórnvöld að hafa metnað til að skapa hér aðstæður til að auka framleiðsluna töluvert með auknum nýliðunar- og fjárfestingarstuðningi – sérstaklega í því ljósi að hér sé stefnt á að tryggja fæðuöryggi landsins til framtíðar. /smh Nauðbeygður til að verjast Bændur gætu verið í vanda telji þeir vindmyllur sem reisa á mögulega í nágrenni við þá rýra á einhvern hátt notagildi jarða þeirra. Bóndi í Skeiða- og Gnúp- verja hreppi spyr hvort hann sé nauðbeygður til að eyða tíma sínum í að verða einhvers konar vindorkuverasérfræðingur til að verja hendur sínar fyrir áformum um vindmyllugarð á næstu jörð. Hann segi fráleitt að íbúar í dreifbýli þurfi jafnvel að ráða sér lögfræðinga til að verjast slíku. Athygli vekur að viðkomandi bóndi komst á snoðir um áform nágranna síns fyrir tilviljun, þegar hann rakst á skýrslu verkfræðistofu um verkefnið sem fylgigagn fundargerðar sveitarstjórnar á vefnum. „Ef af þessu verður mun þetta rýra notagildi nærliggjandi jarða og hafa veruleg áhrif á umhverfið í kring. Þetta vakti mikinn óhug okkar. Er ekki það sama að gerast í Hvalfirði, Borgarfirði og Dölunum?“ spyr bóndinn og telur að ef reisa eigi vindorkuver ættu þau að vera í eigu landsmanna en ekki einkaaðila þar sem að baki standi erlend stórfyrirtæki. /sá Sjá nánar bls. 20–22. Nákvæmnisbúskapur skiptir sköpum 4026 Vakta gróður og jarðveg landsins 44 „ Aldrei dauð stund í landbúnaði “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.