Bændablaðið - 25.05.2023, Side 1
10. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 25. maí ▯ Blað nr. 634 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is
Feðgarnir Ásmundur Lárusson og Hannes Orri Ásmundsson frá Norðurgarði í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Kjarni búrekstursins er mjólkurframleiðsla, en
fyrir nokkrum árum fóru þeir einnig í grænmetisrækt. Óveruleg skörun er milli helstu álagspunkta í þessum búgreinum og betri nýting fæst á tækjabúnaði.
Bændurnir segja helstu annmarka aukinna umsvifa að öll frí á sumrin hafa fokið út í veður og vind. – Sjá nánar á bls. 36–37. Mynd / Ástvaldur Lárusson
Ekkert svigrúm til að auka stuðning
við íslenska grænmetisframleiðslu
– Þrátt fyrir fögur fyrirheit og áform stjórnvalda um aukna framleiðslu
Garðyrkjubændur fá ekki
hljómgrunn hjá samninganefnd
stjórnvalda, við endurskoðun
búvöru samninga, um aukinn
stuðning við íslenska græn metis
framleiðslu. Þó eru uppi ótvíræð
áform hjá íslenskum stjórnvöldum
– í orði kveðnu – um að stuðla að
aukinni framleiðslu á næstu árum.
Þessi áform hafa birst í ýmsum
myndum á undanförnum misserum
en svo virðist sem hugur fylgi ekki
máli að því samningaborði sem
fulltrúar stjórnvalda og Bændasamtaka
Íslands sitja nú við í þeim tilgangi að
endurskoða búvörusamningana. Þar
virðist ekkert svigrúm vera til aukins
stuðnings við íslenska garðyrkju.
Axel Sæland, formaður deildar
garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum
Íslands, segir að hann hafi bundið
vonir við þessar samningaviðræður
þar sem fyrirheit hafi verið gefin
um aukinn stuðning við greinina til
vaxtar. „Við höfum séð þetta ítrekað hjá
stjórnvöldum að talað sé um að auka
eigi grænmetisframleiðsluna, fyrst í
stjórnarsáttmálanum og svo fögnuðum
við því auðvitað gríðarlega nú síðast að
sjá þessa fjármálaáætlun, þar sem gert
var ráð fyrir að skilyrði yrðu sköpuð
fyrir 25 prósenta vexti greinarinnar á
næstu fjórum árum.“
Seinni endurskoðun garðyrkju-
samnings búvörusamninganna
stendur nú yfir. „Því miður virðist
raunin vera sú að skilaboðin til okkar
frá samninganefnd stjórnvalda eru að
ekkert viðbótarfjármagn sé í boði til
frekari stuðnings,“ segir Axel.
Hentar nýliðum illa
Axel segir að í málflutningi samninga-
nefndar stjórnvalda hafi komið fram
að einhverjir möguleikar væru í boði
um að færa fjármuni á milli liða
samningsins, en það hafi verið tekið
skýrt fram að ekkert fáist til viðbótar.
„Þá spyr maður sig; hvernig á íslensk
garðyrkja að vaxa um þessi 25 prósent
á næstu fjórum árum ef engir eru beinir
hvatar til framleiðsluaukningar og
áfram verður mjög erfitt fyrir nýliða
að koma inn í greinina?
Við fórum mjög vel yfir núverandi
samning með þessari nefnd og
samningurinn, eins og hann er
byggður upp í dag, hentar ágætlega
þeim sem eru nú þegar starfandi í
garðyrkju. Hann hentar hins vegar
engan veginn þeim sem vilja koma
nýir inn í greinina eða þeim sem vilja
stækka við sig og gera meira. Hann er
sumsé letjandi á framleiðsluaukningu,
sem er mjög slæmt.“
Niðurgreiðsla dreifingarkostnaðar
„Það þarf að breyta samningnum og
bæta á þann veg að það komi aukalega
til fjármagn til að styðja við þessa
framleiðsluaukningu sem mikið hefur
verið talað um. Við teljum okkur hafa
komið þessum skilaboðum skýrt á
framfæri við samninganefndina og þar
með stjórnvöld. Einn fundur hefur verið
haldinn vegna garðyrkjusamningsins en
fleiri fundir almennt um endurskoðun
búvörusamninganna,“ útskýrir Axel.
Auk þessa viðbótarfjármagns sem
kallað er almennt eftir inn í greinina
til framleiðsluaukningar, segir hann
að lögð sé áhersla í viðræðunum á
að auka fjármagn til niðurgreiðslu á
dreifingarkostnaði raforku. „Núna er
þessi pottur 400 milljónir sem kom
inn í samninginn við gerð síðustu
búvörusamninga. Þannig að ef menn
stækka sínar stöðvar eða það fjölgar í
greininni, þá er bara minna eftir handa
öðrum. Þetta fyrirkomulag gengur
auðvitað ekki upp ef stjórnvöld ætla
að halda þessum stuðningi áfram og
að hann haldi gildi sínu. Við erum
því að berjast fyrir því að ná þessari
niðurgreiðslu niður í einhverja fasta
prósentu þannig að vitað sé hjá hverjum
og einum hvað hann fær í stuðning.“
Uppbygging í kjölfar
aukinnar niðurgreiðslu
Axel bendir á að það standi einmitt
í stjórnarsáttmálanum – að aukinni
framleiðslu á grænmeti eigi að ná
með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á
raforkuverði til ylræktar og raunar
með sérstökum stuðningi við
útiræktun í gegnum búvörusamninga.
„Við fyrri endurskoðun árið 2020
var bætt 200 milljónum króna við
samninginn og þar með gert ráð
fyrir aukningu í framleiðslu. Af
þeirri fjárhæð fóru 70 milljónir til
stækkunar á þessum potti, enda jókst
framleiðslan þá talsvert í kjölfarið af
því að gróðurhús voru byggð á um
tíu þúsund fermetrum.“
Axel segir að það hafi sýnt sig
að mun meiri eftirspurn er eftir
íslensku grænmeti en framboð. Því
hljóti stjórnvöld að hafa metnað til
að skapa hér aðstæður til að auka
framleiðsluna töluvert með auknum
nýliðunar- og fjárfestingarstuðningi
– sérstaklega í því ljósi að hér sé
stefnt á að tryggja fæðuöryggi
landsins til framtíðar.
/smh
Nauðbeygður
til að verjast
Bændur gætu verið í vanda telji þeir
vindmyllur sem reisa á mögulega
í nágrenni við þá rýra á einhvern
hátt notagildi jarða þeirra.
Bóndi í Skeiða- og Gnúp-
verja hreppi spyr hvort hann sé
nauðbeygður til að eyða tíma
sínum í að verða einhvers konar
vindorkuverasérfræðingur til að
verja hendur sínar fyrir áformum um
vindmyllugarð á næstu jörð. Hann
segi fráleitt að íbúar í dreifbýli þurfi
jafnvel að ráða sér lögfræðinga til
að verjast slíku.
Athygli vekur að viðkomandi
bóndi komst á snoðir um áform
nágranna síns fyrir tilviljun, þegar
hann rakst á skýrslu verkfræðistofu
um verkefnið sem fylgigagn
fundargerðar sveitarstjórnar á
vefnum. „Ef af þessu verður mun
þetta rýra notagildi nærliggjandi
jarða og hafa veruleg áhrif á
umhverfið í kring. Þetta vakti mikinn
óhug okkar. Er ekki það sama að
gerast í Hvalfirði, Borgarfirði og
Dölunum?“ spyr bóndinn og telur
að ef reisa eigi vindorkuver ættu þau
að vera í eigu landsmanna en ekki
einkaaðila þar sem að baki standi
erlend stórfyrirtæki. /sá
Sjá nánar bls. 20–22.
Nákvæmnisbúskapur
skiptir sköpum
4026
Vakta gróður og
jarðveg landsins
44
„ Aldrei dauð stund í landbúnaði “