Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 tilliti til athugasemda og ábendinga við eldri útfærslu í umhverfismati og 3. áfanga Rammaáætlunar og var svæðið minnkað, myllum fækkað úr 67 í allt að 30 og þar með dregið úr uppsettu afli frá 200 MW í 120 MW. Áætluð orkuvinnsla er áætluð 440 GWst á ári, sem nemur um 3% af orkuvinnslu Landsvirkjunar 2022. Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur verið til umfjöllunar hugmynd um vindorkugarðinn Hrútmúlavirkjun á jörðinni Skáldabúðum, með 22 vindmyllum og allt að 85 MW framleiðslugetu. Jón Marteinn Finnbogason, bóndi í Minni-Mástungu þar í sveit, segist ekki endilega vera mótfallinn Búrfellslundi, sem verður innan vébanda Rangárþings ytra. Hann sé á svæði þar sem búið er að prófa tvær vindmyllur sem virðist hafa gefið þokkalega raun og innviðir til staðar sem nýtist, auk þess að vera ekki yfirgnæfandi hvað ásýnd varðar. Hins vegar gegni allt öðru máli um hugmyndir að Hrútmúlavirkjun sem rísa eigi á næstu jörð við Minni-Mástungu niðri í sveitinni, þar sem áhrif, svo sem hljóðvist og ásýnd, hafi veruleg áhrif á nærliggjandi jarðir. „Ég er gífurlega mótfallinn þessum áformum og það hefur ekkert samráð verið haft við okkur landeigendur í kring af hálfu forsvarsmanna verkefnisins,“ segir Jón Marteinn. „Þetta á að vera garður með 22 150 m háum vindmyllum (Hallgrímskirkja er 74,5 metrar) og í ofanálag standa Skáldabúðir í 220 metrum yfir sjávarmáli þannig að vindmyllurnar blasa við þegar ferðast er um Hreppa og Skeið og Rangárþing.“ Hann segist fyrst hafa komist á snoðir um áformin fyrir tilviljun þegar hann rakst á skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um verkefnið sem fylgi- gagn fundargerðar sveitarstjórnar á vefnum. „Ef af þessu verður mun þetta rýra notagildi nærliggjandi jarða og hafa veruleg áhrif á umhverfið í kring. Þetta vakti mikinn óhug okkar. Er ekki það sama að gerast í Hvalfirði, Borgarfirði og Dölunum? Ég hef engan áhuga á vindmyllum og að ég þurfi að eyða tíma mínum í að afla upplýsinga til að verða einhvers konar vindorkuverasérfræðingur til að verjast þessu – og að íbúar í dreifbýli þurfi að ráða sér lögfræðinga til að verja hendur sínar – er fráleitt,“ heldur hann áfram. „Á fundi með sveitarstjórn Skeið-Gnúp 2021 lýstum við ásamt landeigendum nærliggjandi jarða áhyggjum okkar og óánægju af þessum áformum eftir að landeigandi Skáldabúða hafði kynnt verkefnið fyrir sveitarstjórn nokkru áður, þar með lagði sveitarstjórn þetta mál til hliðar, sérstaklega í ljósi þess að það er enginn lagarammi kominn um þetta. Sveitarfélögin hafa sáralitlar tekjur af vindmyllum og því enginn hvati þar. Þar við bætast neikvæð áhrif á ferðamannaiðnað á svæðinu. Mín sýn er að ef reisa á vindorkuver eigi þau að vera í eigu okkar allra og vera á fáum og vel völdum stöðum. Ég er ekki hlynntur framkvæmd einkaaðila þar sem að baki standa erlend stórfyrirtæki. Ég set líka spurningarmerki við að Íslendingar framleiði sex sinnum meira rafmagn pr. íbúa en aðrar velmegunarþjóðir í kringum okkur og hvort sé í raun svona mikil þörf á orku, eins og nú þegar Landsvirkjun er að knýja Hvammsvirkjun í gegn,“ segir Jón Marteinn að lokum. Með og á móti Svo annað dæmi sé tekið af handahófi er Klausturselsvirkjun á Fljótsdalsheiði í Múlaþingi á frumstigi en þar áætlar fyrirtækið Zephyr Iceland að reisa í áföngum 70 til 100 vindmyllur með allt að 500 MW afli. Fyrsti áfangi yrði á bilinu 50-300 MW. Þá hefur Orkusalan hug á að setja upp tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun, 150-160 m háar, sem framleiði allt að 9,9 MW. „Ég er hlynntur virkjun vindsins og vindmyllur um alla Evrópu virðast gefa þokkalega raun,“ segir Aðalsteinn Jónsson, fyrrum bóndi í Klausturseli á Jökuldal, en Marteinn Óli, sonur hans, er tekinn við jörðinni og búskapnum. „Því skyldum við ekki nýta þessa leið eins og aðrir hafa gert með góðum árangri? Þó þarf að tryggja nærsamfélagi arð af raforkuframleiðslunni umfram það sem er í dag.“ Aðalsteinn segist ekki telja að vindmyllur Klausturselsvirkjunar muni fæla frá ferðafólk enda væru þá færri ferðamenn í löndum Evrópu en raun beri vitni. Fyrirhuguð Klausturselvirkjun komi ekki til með að sjást frá byggðu bóli enda dalir djúpir á svæðinu og heiðin 20 km milli fjallsbrúna. „Við þurfum að bæta við raforkuframleiðslu, eða það er okkur allavega sagt.“ Nýta þurfi fjölbreytta raforkuframleiðslukosti og hann nefnir í því sambandi að nágranni hans á Hákonarstöðum hafi farið í jarðvarmaskipti til að hita upp hús sitt og sparað sér umtalsverð raforkukaup síðan. „Þar er til dæmis möguleiki fyrir einstök býli á köldum svæðum. Það segir ekki mikið í heildarpakkanum en menn eiga að horfa á alla kosti.“ Fyrirhuguð Klausturselsvirkjun mun standa í landi Klaustursels. Aðalsteini þykir nokkuð sérstakt hvernig Landvernd hafi beitt sér af afli á móti vindmyllugarðinum, sem verði á einkalandi. Þáverandi sveitarfélagið Fljótsdalshérað gaf leyfi fyrir uppsetningu rannsóknarmasturs árið 2019 en hið sameinaða Múlaþing telur að endurnýja þurfi rannsóknarleyfið þrátt fyrir að fyrirtækið að baki framkvæmdinni bendi á að leyfi sé þegar til staðar og vilji reisa mælingamastur nú í sumar. Aðalsteinn telur að ef stjórnvöld fari fljótlega í lagasetningu gæti Klausturselsvirkjun jafnvel orðið að veruleika á næstu þremur til fimm árum. Anna Bryndís Tryggvadóttir, bóndi á Skriðuklaustri í Fljótsdal, segist vera algjörlega á móti öllum áformum um vindorkuver og því hversu fegrað tungutak er notað um vindvirkjanir, þetta séu ekki lengur neinar myllur, heldur risaorkuver. „Ég er búin að velta þessu vandlega fyrir mér og finnst þessi áform galin. Ég var hlynnt vindmyllum og hefði einhvern tímann getað hugsað mér að setja vindmyllu hér við íbúðarhúsið, en þetta snýst ekki lengur um að búa til rafmagn fyrir fólkið á svæðinu heldur um að fjárfestar og braskarar versli með peninga og þeim mönnum er alveg sama um náttúruna og umhverfið.“ Hún segir að í samanburði finnist sér Kárahnjúkavirkjun barnaleikur. „Skemmdirnar og skaðinn sem þetta veldur eru ótrúleg. Hengifoss er til dæmis 128 metra hár en stöpull á einni vindmyllu er 120 metrar. Það gerir enginn sér grein fyrir hvers konar stærð er á því sem troða á hér uppi á heiði.“ Hún nefnir dæmi frá Evrópu um neikvæð áhrif á dýralíf og mannlíf. „Það er einhver hátíðni frá vindmyllunum sem hrekur skepnur í burtu og hefur áhrif á heilsu fólks.“ Þá minnir hún á að á vindmyllum séu rauð ljós sem blikki allan sólarhringinn árið um kring, ískur, slysahætta, eldhætta og að þótt vindmyllur eigi að endast í 25 ár dugi þær oft ekki nema í áratug og hnigni strax á fyrstu árum í rekstri. Svo þurfi að urða mest af þeim því takmarkað sé hægt að endurvinna. „Það þyrfti miklu öflugri vegi upp á heiðar en okkar íslensku vegi, til að flytja þessi ósköp, stólpana, spaða og annað, á áfangastað. Svo eru brýrnar allt of mjóar og þær eru þar að auki margar gamlar og lúnar.“ Hún segir fólk skiptast í fylkingar og skoðanaskipti vera hörð. „Eitthvað er jákvætt við þetta, það hlýtur að vera, en mér finnst að horfa eigi til allra sjónarmiða sem teljast neikvæð og svo eigi forsvarsmenn vindmylla þá að hrekja rökin með óvéfengjanlegum staðreyndum, þannig að raunveruleg áhrif liggi ljós fyrir.“ Framkvæmdaaðilar Klaustursels- og Lagarfossvirkjana hafa báðir skilað inn matsáætlun sem er til meðferðar hjá Skipulagsstofnun og hafa verið gerðar athugasemdir við þær af ýmsum aðilum. Múlaþing ákvað hins vegar í janúar sl. að sveitarfélagið myndi ekki samþykkja uppbyggingu vindorkuvera innan sveitarfélagsins fyrr en stefnumótun ríkisvaldsins í þeim málum yrði ljós. Í fyrra vann verkfræðistofan Efla ítarlega greiningu á hentugleika landsvæða í Múlaþingi m.t.t. vindorkunýtingar. Þörf á heildarstefnumörkun Í áfangaskýrslunni Vindorka - valkostir og greining sem starfshópur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins skilaði í apríl, er m.a. fjallað um hvernig megi einfalda uppbyggingu vindorkuvera til grænnar orkuframleiðslu, með hvaða hætti eigi að ákvarða stærð og staðsetningu þeirra og hvernig megi ná sem víðtækastri sátt um slíkt. Aðalsteinn Jónsson, bóndi í Klausturseli á Jökuldal, segir að líta beri til fjölbreyttra raforkukosta í ljósi ákalls um aukningu raforkuframleiðslu. Mynd / Steinunn Jón Marteinn Finnbogason, bóndi í Minni-Mástungu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, segist ekki mótfallinn Búrfellslundi en hafnar hugmyndum um vindorkuver á nágrannajörð. Mynd / skjáskot Anna Bryndís Tryggvadóttir, bóndi á Skriðuklaustri í Fljótsdal, telur að talsmönnum vindorkuvirkjana beri að hlusta á gagnrýnisraddir og koma með raunveruleg mótrök ef þau séu til á annað borð. Mynd / skjáskot Ákvörðunarferli • Áður en vindmyllur eru reistar verður að liggja fyrir samkomulag framkvæmdaaðila við eigendur þess lands sem þær verða reistar á. Landið getur ýmist verið í einkaeigu eða eigu opinberra aðila. • Til að fá heimild til að reisa og reka vindmyllu fer verkefnið í gegnum margvísleg skref í stjórnsýslunni. Segja má að sveitarfélög séu þar þýðingarmesta stjórnvaldið enda fara þau með skipulagsvald innan sinnan marka. • Á undirbúningsstigi fer framkvæmdin í gegnum umhverfismat á grundvelli laga nr. 106/2000. Í því mati er framkvæmdaaðila skylt að rannsaka og gera skilmerkilega grein fyrir verkefninu og umhverfisáhrifum s.s. áhrifum á náttúru og þá sem búa í umhverfi þess. • Framkvæmdin fer í gegnum skipulagsferli viðkomandi sveitarfélags og þarf að samrýmast bæði aðal- og deiliskipulagi. Ýmsar opinberar stofnanir veita umsagnir um skipulagstillöguna s.s. Umhverfisstofnun um náttúruvernd og mengunarmál og Minjastofnun Íslands um fornleifar og húsvernd. Skipulagsstofnun leiðbeinir sveitarfélögum við skipulagsgerð og staðfestir aðal- og svæðisskipulag. • Áður en framkvæmdir hefjast þarf framkvæmdaleyfi sveitarfélags að vera til staðar. Við útgáfu framkvæmdaleyfis er gætt að því að undirbúningur framkvæmdarinnar hafi verið fullnægjandi og í samræmi við lög. • Orkustofnun veitir hið eiginlega leyfi, svokallað virkjunarleyfi, til að reisa og reka vindorkuver skv. 4. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Orkustofnun er heimilt að setja skilyrði í leyfið. • Fram hafa komið áform um að fella leyfisveitingar vegna vindorkunýtingar inn í miðlæga verndar- og nýtingaráætlun stjórnvalda (Rammaáætlun) sem unnin er af sérstakri verkefnastjórn. Þingmál þess efnis hafa ekki náð fram að ganga. Nokkrir vindorkukostir hafa farið í gegnum ferli hjá verkefnisstjórn Rammaáætlunar og verið settir í nýtingarflokk í fyrirliggjandi drögum að niðurstöðu verkefnastjórnar um 4. áfanga Rammaáætlunar. Heimild: www.samorka.is -framhald bls. 22.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.