Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
tilliti til athugasemda og ábendinga
við eldri útfærslu í umhverfismati
og 3. áfanga Rammaáætlunar og var
svæðið minnkað, myllum fækkað
úr 67 í allt að 30 og þar með dregið
úr uppsettu afli frá 200 MW í 120
MW. Áætluð orkuvinnsla er áætluð
440 GWst á ári, sem nemur um 3%
af orkuvinnslu Landsvirkjunar 2022.
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
hefur verið til umfjöllunar
hugmynd um vindorkugarðinn
Hrútmúlavirkjun á jörðinni
Skáldabúðum, með 22 vindmyllum
og allt að 85 MW framleiðslugetu.
Jón Marteinn Finnbogason, bóndi í
Minni-Mástungu þar í sveit, segist
ekki endilega vera mótfallinn
Búrfellslundi, sem verður innan
vébanda Rangárþings ytra. Hann
sé á svæði þar sem búið er að prófa
tvær vindmyllur sem virðist hafa
gefið þokkalega raun og innviðir
til staðar sem nýtist, auk þess
að vera ekki yfirgnæfandi hvað
ásýnd varðar. Hins vegar gegni
allt öðru máli um hugmyndir að
Hrútmúlavirkjun sem rísa eigi á
næstu jörð við Minni-Mástungu
niðri í sveitinni, þar sem áhrif, svo
sem hljóðvist og ásýnd, hafi veruleg
áhrif á nærliggjandi jarðir.
„Ég er gífurlega mótfallinn
þessum áformum og það hefur
ekkert samráð verið haft við
okkur landeigendur í kring af
hálfu forsvarsmanna verkefnisins,“
segir Jón Marteinn. „Þetta á að
vera garður með 22 150 m háum
vindmyllum (Hallgrímskirkja er
74,5 metrar) og í ofanálag standa
Skáldabúðir í 220 metrum yfir
sjávarmáli þannig að vindmyllurnar
blasa við þegar ferðast er um Hreppa
og Skeið og Rangárþing.“ Hann
segist fyrst hafa komist á snoðir um
áformin fyrir tilviljun þegar hann
rakst á skýrslu verkfræðistofunnar
Eflu um verkefnið sem fylgi-
gagn fundargerðar sveitarstjórnar
á vefnum.
„Ef af þessu verður mun þetta
rýra notagildi nærliggjandi jarða
og hafa veruleg áhrif á umhverfið
í kring. Þetta vakti mikinn óhug
okkar. Er ekki það sama að gerast í
Hvalfirði, Borgarfirði og Dölunum?
Ég hef engan áhuga á vindmyllum og
að ég þurfi að eyða tíma mínum í að
afla upplýsinga til að verða einhvers
konar vindorkuverasérfræðingur
til að verjast þessu – og að íbúar
í dreifbýli þurfi að ráða sér
lögfræðinga til að verja hendur sínar
– er fráleitt,“ heldur hann áfram.
„Á fundi með sveitarstjórn
Skeið-Gnúp 2021 lýstum við ásamt
landeigendum nærliggjandi jarða
áhyggjum okkar og óánægju af
þessum áformum eftir að landeigandi
Skáldabúða hafði kynnt verkefnið
fyrir sveitarstjórn nokkru áður, þar
með lagði sveitarstjórn þetta mál
til hliðar, sérstaklega í ljósi þess að
það er enginn lagarammi kominn um
þetta. Sveitarfélögin hafa sáralitlar
tekjur af vindmyllum og því enginn
hvati þar. Þar við bætast neikvæð
áhrif á ferðamannaiðnað á svæðinu.
Mín sýn er að ef reisa á vindorkuver
eigi þau að vera í eigu okkar allra og
vera á fáum og vel völdum stöðum.
Ég er ekki hlynntur framkvæmd
einkaaðila þar sem að baki standa
erlend stórfyrirtæki. Ég set líka
spurningarmerki við að Íslendingar
framleiði sex sinnum meira rafmagn
pr. íbúa en aðrar velmegunarþjóðir
í kringum okkur og hvort sé í raun
svona mikil þörf á orku, eins og
nú þegar Landsvirkjun er að knýja
Hvammsvirkjun í gegn,“ segir Jón
Marteinn að lokum.
Með og á móti
Svo annað dæmi sé tekið af
handahófi er Klausturselsvirkjun
á Fljótsdalsheiði í Múlaþingi á
frumstigi en þar áætlar fyrirtækið
Zephyr Iceland að reisa í áföngum
70 til 100 vindmyllur með allt að 500
MW afli. Fyrsti áfangi yrði á bilinu
50-300 MW. Þá hefur Orkusalan hug
á að setja upp tvær vindmyllur við
Lagarfossvirkjun, 150-160 m háar,
sem framleiði allt að 9,9 MW.
„Ég er hlynntur virkjun vindsins
og vindmyllur um alla Evrópu
virðast gefa þokkalega raun,“ segir
Aðalsteinn Jónsson, fyrrum bóndi í
Klausturseli á Jökuldal, en Marteinn
Óli, sonur hans, er tekinn við jörðinni
og búskapnum. „Því skyldum við
ekki nýta þessa leið eins og aðrir
hafa gert með góðum árangri? Þó
þarf að tryggja nærsamfélagi arð
af raforkuframleiðslunni umfram
það sem er í dag.“ Aðalsteinn
segist ekki telja að vindmyllur
Klausturselsvirkjunar muni fæla
frá ferðafólk enda væru þá færri
ferðamenn í löndum Evrópu
en raun beri vitni. Fyrirhuguð
Klausturselvirkjun komi ekki til
með að sjást frá byggðu bóli enda
dalir djúpir á svæðinu og heiðin 20
km milli fjallsbrúna.
„Við þurfum að bæta við
raforkuframleiðslu, eða það er
okkur allavega sagt.“ Nýta þurfi
fjölbreytta raforkuframleiðslukosti
og hann nefnir í því sambandi að
nágranni hans á Hákonarstöðum hafi
farið í jarðvarmaskipti til að hita upp
hús sitt og sparað sér umtalsverð
raforkukaup síðan. „Þar er til
dæmis möguleiki fyrir einstök býli
á köldum svæðum. Það segir ekki
mikið í heildarpakkanum en menn
eiga að horfa á alla kosti.“
Fyrirhuguð Klausturselsvirkjun
mun standa í landi Klaustursels.
Aðalsteini þykir nokkuð sérstakt
hvernig Landvernd hafi beitt sér
af afli á móti vindmyllugarðinum,
sem verði á einkalandi. Þáverandi
sveitarfélagið Fljótsdalshérað
gaf leyfi fyrir uppsetningu
rannsóknarmasturs árið 2019 en
hið sameinaða Múlaþing telur að
endurnýja þurfi rannsóknarleyfið
þrátt fyrir að fyrirtækið að baki
framkvæmdinni bendi á að leyfi
sé þegar til staðar og vilji reisa
mælingamastur nú í sumar.
Aðalsteinn telur að ef stjórnvöld
fari fljótlega í lagasetningu gæti
Klausturselsvirkjun jafnvel orðið
að veruleika á næstu þremur til
fimm árum.
Anna Bryndís Tryggvadóttir,
bóndi á Skriðuklaustri í Fljótsdal,
segist vera algjörlega á móti öllum
áformum um vindorkuver og því
hversu fegrað tungutak er notað um
vindvirkjanir, þetta séu ekki lengur
neinar myllur, heldur risaorkuver.
„Ég er búin að velta þessu vandlega
fyrir mér og finnst þessi áform
galin. Ég var hlynnt vindmyllum
og hefði einhvern tímann getað
hugsað mér að setja vindmyllu
hér við íbúðarhúsið, en þetta snýst
ekki lengur um að búa til rafmagn
fyrir fólkið á svæðinu heldur um að
fjárfestar og braskarar versli með
peninga og þeim mönnum er alveg
sama um náttúruna og umhverfið.“
Hún segir að í samanburði finnist
sér Kárahnjúkavirkjun barnaleikur.
„Skemmdirnar og skaðinn sem þetta
veldur eru ótrúleg. Hengifoss er til
dæmis 128 metra hár en stöpull á
einni vindmyllu er 120 metrar. Það
gerir enginn sér grein fyrir hvers
konar stærð er á því sem troða á hér
uppi á heiði.“
Hún nefnir dæmi frá Evrópu
um neikvæð áhrif á dýralíf og
mannlíf. „Það er einhver hátíðni
frá vindmyllunum sem hrekur
skepnur í burtu og hefur áhrif á
heilsu fólks.“ Þá minnir hún á að á
vindmyllum séu rauð ljós sem blikki
allan sólarhringinn árið um kring,
ískur, slysahætta, eldhætta og að þótt
vindmyllur eigi að endast í 25 ár
dugi þær oft ekki nema í áratug og
hnigni strax á fyrstu árum í rekstri.
Svo þurfi að urða mest af þeim því
takmarkað sé hægt að endurvinna.
„Það þyrfti miklu öflugri vegi upp
á heiðar en okkar íslensku vegi,
til að flytja þessi ósköp, stólpana,
spaða og annað, á áfangastað. Svo
eru brýrnar allt of mjóar og þær eru
þar að auki margar gamlar og lúnar.“
Hún segir fólk skiptast í fylkingar og
skoðanaskipti vera hörð. „Eitthvað
er jákvætt við þetta, það hlýtur að
vera, en mér finnst að horfa eigi
til allra sjónarmiða sem teljast
neikvæð og svo eigi forsvarsmenn
vindmylla þá að hrekja rökin með
óvéfengjanlegum staðreyndum,
þannig að raunveruleg áhrif liggi
ljós fyrir.“
Framkvæmdaaðilar Klaustursels-
og Lagarfossvirkjana hafa báðir
skilað inn matsáætlun sem er til
meðferðar hjá Skipulagsstofnun og
hafa verið gerðar athugasemdir við
þær af ýmsum aðilum. Múlaþing
ákvað hins vegar í janúar sl. að
sveitarfélagið myndi ekki samþykkja
uppbyggingu vindorkuvera innan
sveitarfélagsins fyrr en stefnumótun
ríkisvaldsins í þeim málum yrði ljós.
Í fyrra vann verkfræðistofan Efla
ítarlega greiningu á hentugleika
landsvæða í Múlaþingi m.t.t.
vindorkunýtingar.
Þörf á heildarstefnumörkun
Í áfangaskýrslunni Vindorka
- valkostir og greining sem
starfshópur umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytisins skilaði í apríl,
er m.a. fjallað um hvernig megi
einfalda uppbyggingu vindorkuvera
til grænnar orkuframleiðslu, með
hvaða hætti eigi að ákvarða stærð og
staðsetningu þeirra og hvernig megi
ná sem víðtækastri sátt um slíkt.
Aðalsteinn Jónsson, bóndi í
Klausturseli á Jökuldal, segir að
líta beri til fjölbreyttra raforkukosta
í ljósi ákalls um aukningu
raforkuframleiðslu. Mynd / Steinunn
Jón Marteinn Finnbogason,
bóndi í Minni-Mástungu í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi, segist ekki
mótfallinn Búrfellslundi en hafnar
hugmyndum um vindorkuver á
nágrannajörð. Mynd / skjáskot
Anna Bryndís Tryggvadóttir, bóndi
á Skriðuklaustri í Fljótsdal, telur að
talsmönnum vindorkuvirkjana beri
að hlusta á gagnrýnisraddir og koma
með raunveruleg mótrök ef þau séu
til á annað borð. Mynd / skjáskot
Ákvörðunarferli
• Áður en vindmyllur eru reistar verður að liggja fyrir samkomulag framkvæmdaaðila við
eigendur þess lands sem þær verða reistar á. Landið getur ýmist verið í einkaeigu eða eigu
opinberra aðila.
• Til að fá heimild til að reisa og reka vindmyllu fer verkefnið í gegnum margvísleg skref í stjórnsýslunni.
Segja má að sveitarfélög séu þar þýðingarmesta stjórnvaldið enda fara þau með skipulagsvald innan
sinnan marka.
• Á undirbúningsstigi fer framkvæmdin í gegnum umhverfismat á grundvelli laga nr. 106/2000. Í því mati
er framkvæmdaaðila skylt að rannsaka og gera skilmerkilega grein fyrir verkefninu og umhverfisáhrifum
s.s. áhrifum á náttúru og þá sem búa í umhverfi þess.
• Framkvæmdin fer í gegnum skipulagsferli viðkomandi sveitarfélags og þarf að samrýmast bæði aðal-
og deiliskipulagi. Ýmsar opinberar stofnanir veita umsagnir um skipulagstillöguna s.s. Umhverfisstofnun
um náttúruvernd og mengunarmál og Minjastofnun Íslands um fornleifar og húsvernd. Skipulagsstofnun
leiðbeinir sveitarfélögum við skipulagsgerð og staðfestir aðal- og svæðisskipulag.
• Áður en framkvæmdir hefjast þarf framkvæmdaleyfi sveitarfélags að vera til staðar. Við útgáfu framkvæmdaleyfis er
gætt að því að undirbúningur framkvæmdarinnar hafi verið fullnægjandi og í samræmi við lög.
• Orkustofnun veitir hið eiginlega leyfi, svokallað virkjunarleyfi, til að reisa og reka vindorkuver skv. 4. gr. raforkulaga nr.
65/2003. Orkustofnun er heimilt að setja skilyrði í leyfið.
• Fram hafa komið áform um að fella leyfisveitingar vegna vindorkunýtingar inn í miðlæga verndar- og nýtingaráætlun
stjórnvalda (Rammaáætlun) sem unnin er af sérstakri verkefnastjórn. Þingmál þess efnis hafa ekki náð fram að ganga.
Nokkrir vindorkukostir hafa farið í gegnum ferli hjá verkefnisstjórn Rammaáætlunar og verið settir í nýtingarflokk í
fyrirliggjandi drögum að niðurstöðu verkefnastjórnar um 4. áfanga Rammaáætlunar.
Heimild: www.samorka.is
-framhald bls. 22.