Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Starfshópur um útrýmingu á riðuveiki
Yfirdýralæknir hefur lagt til við
matvælaráðherra að myndaður
verði hópur sem muni vinna að
útfærslu á nýrri aðferðafræði við
útrýmingu á riðuveiki.
Tillagan kemur í kjölfar ákvörðunar
matvælaráðherra um breytta nálgun
við útrýmingu á riðuveiki í íslensku
sauðfé með því að beita riðuþolnum
arfgerðum. Lagt er til að hópurinn
vinni að greiningu á núverandi stöðu,
útfærslu á nýrri aðferðafræði og mati
á breyttri nálgun aðgerða í samvinnu
við yfirdýralækni.
567 milljónir króna
til næstu sjö ára
Í tilkynningu úr ráðuneytinu, þar
sem greint var frá ákvörðun ráðherra,
kom fram að nægt fjármagn væri
tryggt til að áætlun til næstu fimm
ára næði fram að ganga. Hún gengur
út á að 80 prósent af ásettu fé á mestu
áhættusvæðunum verði ólíklegt til að
veikjast af riðu. Tiltekin er fjárhæðin
567 milljónir króna til næstu sjö ára
sem eiga meðal annars að standa
straum á arfgerðagreiningum á 15 til
40 þúsund fjár árlega.
Yfirdýralækni ber
að hafa samráð
Í umfjöllun Bændablaðsins um þessa
breyttu aðferðafræði í síðasta tölublaði
var rætt við Eyþór Einarsson, ráðunaut
hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML), sem hefur stýrt verkefnum
varðandi arfgerðagreiningar og
ræktunarstarf með verndandi arfgerðir.
Hann fagnaði útspili stjórnvalda
en sagði að enn hefði ekki átt sér
stað viðræður um útfærslu á þeim
stuðningi sem stjórnvöld hafi tryggt
til verkefnanna.
Í svari matvælaráðuneytisins,
við fyrirspurn um nýtingu á þessu
fjármagni og mögulegt samráð við
RML varðandi þessa breyttu nálgun,
segir að fjármagnið eigi „að nýta til að
sem best megi ráða niðurlögum riðu
á Íslandi. Tekur það til þeirra aðgerða
sem yfirdýralæknir leggur til í sinni
nálgun á grunni þeirrar vinnu sem farið
verður í. [...]
Yfirdýralækni ber að hafa samráð
við þá sem hún telur rétt að gera vegna
fyrirliggjandi vinnu, ætla má að RML
falli í þann flokk,“ segir í svarinu. /smh
Tillaga að starfshópi yfirdýralæknis
• Vilhjálmur Svansson, dýralæknir, veirufræðingur á Keldum
• Stefanía Þorgeirsdóttir, líffræðingur og sérfræðingur í riðu á Keldum
• Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir hjá Mast, sérþekking í riðuveiki
• Hákon Hanson, sauðfjárdýralæknir á Breiðdalsvík
• Þór Aspelund, stærðfræðingur/tölfræðingur hjá HÍ
• Erla Sturludóttir, tölfræðingur, hjá LbHÍ Keldnaholti
• Jón Hjalti Eiríksson, erfða- og kynbótafræðingur hjá LbHÍ
Verkefni starfshóps
• Leggja mat á árangur aðgerða
stjórnvalda frá því skipulagður
niðurskurður hófst á níunda ára-
tug síðustu aldar, tölfræðilegir
útreikningar og mat á því hvort
riðuveiki hafi verið útrýmt
annars vegar og hins vegar hvort
hverfandi líkur (negligible) séu á
upp komu riðuveiki á einhverjum
landsvæðum þar sem riðuveiki
var áður landlæg.
• Leggja mat á væntanlegan
árangur ræktunar vernd andi arf-
gerða annars vegar og hugsan-
lega verndandi arfgerða hins
vegar, sbr. greinar gerð LbHÍ apríl
2023, þannig að líkur á uppkomu
riðuveiki sé metin hverfandi eftir
tiltekinn árafjölda og á tilteknum
land svæðum.
• Leggja mat á gildi mögulegra
smitvarna til að hefta útbreiðslu
riðusmits, þar á meðal notkun
afrétta og fyrirkomulag fjárrétta.
Æskilegt að smitvarnir verði
flokk aðar í mikilvægisröð.
• Leggja mat á smitvarnar-
ráðstafanir í hjörðum þar sem
riða hefur verið staðfest og ekki
yrði skorið niður eða aðeins hluti
hjarðar, sbr. tillögur Karólínu og
Eyþórs 2. maí 2023 og og TSE
reglu gerð ESB 999/2001, VII kafli).
• Leggja mat á gildi núverandi
fyrirkomulags varnarlína/varnar -
girðinga m.t.t. til hafta á útbreiðslu
riðusmits.