Bændablaðið - 25.05.2023, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
FRÉTTIR
Hagkvæmar glugga- og hurða heildarlausnir
Fáðu tilboð í viðhaldslitla REHAU Nordic Design Plus
PVC/plast eða ál glugga- og hurðakerfi frá þýsku
framleiðendunum REHAU og SCHUCO, á hagstæðu verði.
gluggalausnir.is - tilboð@gluggalausnir.is - 5197787 - Glugga lausnir ehf.
Geta endurnýtt eyrna-
merki til ársins 2024
Matvælastofnun hefur áréttað
að ekki sé heimilt að endurnýta
eyrnamerki í eyru á sauðfé,
geitum og nautgripum.
Sauðfjár- og geitabændur eru
hins vegar á undanþágu og geta
endurnýtt þau til 1. júlí á næsta
ári en þá ætlar Matvælastofnun að
fylgja ákvæðinu eftir að fullu.
Í tilkynningu Matvælastofnunar
kemur fram að hún hyggist taka
þátt í þróun á nýju fyrirkomulagi
örmerkja í sauðfé með hagaðilum.
Lágmarka þarf
kostnaðarauka bænda
Trausti Hjálmarsson, formaður
búgreinadeildar sauðfjárbænda
hjá Bændasamtökum Íslands,
segir að þörf sé á að finna góða
varanlega lausn til að lágmarka
þann kostnaðarauka sem þetta mun
hafa í för með sér fyrir bændur.
Hann segist vonast til að geta
komið að borðinu með öllum
hagaðilum málsins og fundið
málinu viðunandi farveg.
Fjallað var um málið í
Bændablaðinu í mars. Þá kom
fram að í úttekt Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) síðasta haust hafi
komið fram athugasemdir um að
bændum væri heimilt að taka með
sér örmerki heim úr sláturhúsum
og endurnýta þau.
Unnsteinn Snorri Snorrason,
sérfræðingur hjá Bændasamtökum
Íslands, sagði þá að reglur um
notkun eyrnamerkja hér á landi
byggðu á Evrópureglugerð frá
árinu 2016. Þar kæmi skýrt fram
að einstaklingsnúmer gripa skuli
vera einkvæm, sem þýði að þau
eigi ekki að geta komið fram á
öðrum gripum.
Hluti af úrbótaáætlun
gagnvart ESA
Að sögn Freydísar Dönu Sigurðar-
dóttur, fagsviðsstjóra kjötafurða hjá
Matvælastofnun, þá var árétting
stofnunarinnar hluti af nokkrum
þáttum í úrbótaáætlun gagnvart
ESA. „Úttektarnefndin benti á að
með því að leyfa endurnotkun á
örmerkjum í sauðfé værum við
ekki að fylgja ákvæðum reglugerða
EES-samningsins.
Í úttektinni í sláturhúsum
varð nefndin ekki vör við aðra
endurnýtingu á merkjum,“ segir
Freydís. /smh
Búfjárbændur eru með undanþágu
til næsta sumars til endurnýtingar á
sínum eyrnamerkjum. Mynd / smh
Íslensk stjórnvöld telja blóðtöku
á fylfullum hryssum teljast til
afurðanýtingar og heyri því ekki
undir tilskipun um dýr sem notuð
eru í vísindaskyni.
Fyrr í mánuðinum sendi
Eftirlitsstofnun ESA íslenskum
stjórnvöldum formlegt áminningar-
bréf um starfsemi blóðtöku úr
fylfullum hryssum. Eftirlitsstofnunin
byggir málflutning sinn á því að
starfsemin heyri undir tilskipun
um vernd dýra sem notuð eru í
vísindaskyni. Samkvæmt upp-
lýsingum frá matvælaráðuneytinu
er afstaða íslenskra stjórnvalda
hins vegar sú að blóðtakan teljist
til afurðanýtingar.
Blóðtaka ekki í vísindaskyni
Í áminningarbréfi ESA er því haldið
fram að Ísland sé ekki að standa við
skuldbindingar samkvæmt tilskipun
2010/63/ESB um vernd dýra sem
notuð eru í vísindaskyni, þar sem
afstaða íslenskra stjórnvalda sé sú
að blóðtaka úr fylfullum hryssum
falli ekki undir umrædda tilskipun.
„Afstaða íslenskra stjórnvalda
byggir á því að samkvæmt 2. mgr.
1. gr. tilskipunarinnar gildi hún
um dýr sem notuð eru eða ætluð
til notkunar í tilraunum eða þegar
þau eru ræktuð sérstaklega til þess
að nota megi líffæri þeirra eða vef í
vísindaskyni. Þar sem blóðmerahald
og blóðtaka úr fylfullum hryssum
teljist til afurðanýtingar, en er ekki í
vísindaskyni, hefur afstaða Íslands
verið sú að umrætt búfjárhald
falli ekki undir tilskipunina,“
segir í skriflegu svari frá matvæla-
ráðuneytinu.
Tilskipunin gildir ekki um
landbúnaðarstarfsemi
Þar kemur fram að ráðuneytið fari nú
yfir sjónarmið ESA og meti næstu
skref, en málið snúist fyrst og fremst
um túlkun á gildissviði regluverks.
Áminningarbréfið kom í kjölfar
kvörtunar sautján félagasamtaka
sem Eftirlitsstofnuninni barst í apríl
árið 2022, en félagasamtökin telja
starfsemi blóðtöku úr fylfullum
hryssum til framleiðslu á PMSG/
eCG hormóni hér á landi andstæð
ákvæðum EES samningsins.
Bréfið er upphaf að hugsanlegri
málsókn eftirlitsstofnunarinnar gegn
íslenskum stjórnvöldum fyrir brot
á ákvæðum tilskipunar 2010/63/
ESB um vernd dýra sem notuð eru í
vísindaskyni. Í 5. mgr. fyrstu greinar
tilskipunarinnar segir að hún gildi
ekki um landbúnaðarstarfsemi.
Íslensk stjórnvöld hafa nú tvo
mánuði til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri áður en stofnunin
ákveður hvort málið verði tekið
lengra.„Hvað blóðmerahaldið varðar
þá var gefin út reglugerð í ágúst
2022 sem miðar að því að tryggja
velferð og heilbrigði allra hryssa sem
nýttar eru til blóðtöku. Reglugerðin
gildir í þrjú ár og verður gildistími
hennar nýttur til að fylgjast með og
leggja mat á framtíð starfseminnar,“
segir enn fremur í skriflegu svari frá
matvælaráðuneytinu.
Sjö áminningarbréf á ári
Eftirlitsstofnun ESA hefur eftirlit
með því að skuldbindingar
samkvæmt EES-samningnum séu
efndar af hálfu EFTA/EES-ríkjanna,
Íslands, Liechtenstein og Noregs.
Eftirlitið snýr bæði að því hvernig
EES-reglur eru innleiddar í íslenskan
rétt og hvernig þeim er framfylgt
af stjórnvöldum. Stofnunin getur
tekið upp mál að eigin frumkvæði
eða vegna kvörtunar frá einhverju
EES-ríkjanna, stofnunum ESB eða
einkaaðilum.
Á síðastliðnu ári hefur eftirlits-
stofnunin sent íslenska ríkinu sjö
formleg áminningarbréf.
/ghp
Blóðmerabúskapur:
Deilt um túlkun á
gildissviði regluverks
Frá blóðtöku. Afstaða íslenskra stjórnvalda er sú að starfsemin teljist til
afurðanýtingar og sé ekki í vísindaskyni. Mynd /ghp
LL42 ehf. fær stærstan
hluta kinda- og geitakjöts
LL42 ehf., sem er að fullu í eigu
Stjörnugríss hf., fær langstærstan
hluta af WTO-innflutningskvóta
fyrir kinda- og geitakjöt, tæp
277 þúsund kíló, en Kjarnafæði
Norðlenska kemur þar á eftir með
40 þúsund kíló.
Matvælaráðuneytið tilkynnti
þann 23. maí um úthlutun á WTO-
tollkvótum (Alþjóðaviðskipta-
stofnunar innar) fyrir tímabilið 1.
júlí 2023 til 30. júní 2024.
Magnið sem LL42 fær nú er
svipað og Stjörnugrís fékk á síðasta
ári. LL42 fær einnig stærstan hluta af
svínakjötskvótanum, 34 þúsund kíló,
en Kjarnafæði Norðlenska kemur
þar á eftir með 30 þúsund kíló. Mata
fær stærstan hluta innflutningskvóta
alifuglakjöts, eða 48 þúsund kíló, en
Krónan fær 11 þúsund kíló.
LL42 fær rúm 48 þúsund kílóa
innflutningskvóta fyrir smjör, Innnes
fær tæp þrjú þúsund kíló og Krónan
tæp tvö þúsund kíló.
Stærstan hluta af inn-
flutningskvóta fyrir ost fær
Krónan, alls tæplega 41 þúsund
kíló. Lífland fær 60 þúsund kílóa
innflutningskvóta fyrir fuglsegg, en
Krónan 16 þúsund kíló. /smh
Alls voru samþykkt tilboð í
innflutning á 345.000 kg af kinda-
og geitakjöti.
Tollkvótum útdeilt
Tilkynnt var um samþykkt tilboð
á tollkvótum fyrir innflutning af
hinum ýmsu landbúnaðarvörum
þann 23. maí.
Matvælaráðuneytið birti þá
samþykkt tilboð í ESB tollkvóta vegna
innflutnings á landbúnaðarafurðum
fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember
2023. Ellefu fyrirtæki skipta með
sér innflutningi á 348.000 kg af
nautgripakjöti en Ekran fékk stærsta
hlutann, 100.000 kg.
Fyrirtækið LL42 hf., sem er 100%
í eigu Stjörnugríss, fékk langstærsta
hluta af tollkvótum fyrir svínakjöti,
eða 176.000 kg af 350.000 kg.
Jafnvægisverðið var 380 kr/kg.Mata
fékk mest af innflutnings- kvóta af
alifuglakjöti, 189.000 kg. Ekran fékk
114.000 kg, Aðföng 100.000 kg en
fyrirtækin Innnes, Krónan, LL42,
Háihólmi, Garri og Nautica fengu
minna. Samþykktir voru tollkvótar
fyrir innflutningi á 528.000 kg.
Alls var úthlutað tollkvótum fyrir
innflutningi á 305.000 kg af ostum
og ystingum. Krónan fékk 67.250
kg. Nathan & Olsen fengu 45.000
kg, Aðföng tæp 40.000 og þrettán
fyrirtæki skiptu með sér rest. Einnig
voru samþykktir tollkvótar fyrir
innflutning á pylsum og öðru kjöti.
Þá voru þar birtar niðurstöður
samþykktra tilboða EFTA tollkvóta
á landbúnaðarvörum frá Noregi og
Sviss. Krónan fékk þar tollkvóta
fyrir innflutningi á 15.000 kg á osti
og LL42 tollkvóta fyrir innflutning
á 10.000 kg af nautakjöti.
Auk þess birtist listi yfir
samþykkt tilboð í tollkvóta fyrir
innflutning á blómum vegna fyrri
hluta ársins 2023. Fyrirtækið
Samasem ehf. fær þar langmesta
magnið.
Alla lista tollkvótahafa má finna
á vefsíðu matvælaráðuneytisins
. /ghp
Fyrirtækin Ekran, LL42, Mata og Krónan eru áberandi á lista þeirra sem hlutu
tollkvóta fyrir innflutning á hinum ýmsu landbúnaðarvörum.
Mynd / Towfiqu Barbhuiya