Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
FRÉTTIR
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Meirihluti þjóðarinnar er
sammála því að íslenska ríkið
eigi að leggja aukið fjármagn til
að koma í veg fyrir riðu í sauðfé.
Þetta er niðurstaða viðhorfs-
könnunar sem fyrirtækið Prósent
framkvæmdi frá 25. apríl til 12. maí
síðastliðinn.
Alls svöruðu 1.366 manns
netkönnun þar sem spurt var um
viðhorf til þess að íslenska ríkið
leggi aukið fjármagn í aðgerðir til
að koma í veg fyrir riðu í sauðfé.
Alls svöruðu 73% því að þeir væru
mjög eða frekar sammála því, 21%
svaraði hvorki né og 6% voru mjög
eða frekar ósammála.
Þá var marktækur munur á
afstöðu eftir búsetu, en 86%
svarenda á Norðurlandi og 85%
svarenda á Suðurlandi voru mjög
eða frekar sammála en hlutfallið
mældist 68% á höfuðborgarsvæðinu.
/ghp
Skýr afstaða í könnun
Framtíð jarðvangs
hangir á bláþræði
Sveitarfélögin á Suðurlandi geta
ekki rekið Kötlu jarðvang án
þátttöku ríkisins en samningur
um styrk til reksturs hans er
útrunninn.
Katla Jarðvangur hefur verið
starfandi frá 2010 en árið 2011 fékk
hann aðild að Samtökum evrópskra
jarðvanga (European Geoparks
Network). Katla jarðvangur
nær yfir 9.542 ferkílómetra
landsvæði og þekur rúmlega 9%
af flatarmáli Íslands, frá Hvolsvelli
í vestri að Skeiðarársandi í austri.
Jarðvangar eru meðal annars
svæði, sem innihalda alþjóðlega
merkilegar jarðminjar, svæði sem
eru sérlega áhugaverð vegna t.d.
vísindarannsókna, fræðslugildis,
fjölbreytileika og sjaldgæfra minja.
Nú eru hins vegar blikur á
lofti með Kötlu jarðvang því
sveitarfélögin á Suðurlandi, sem
eru aðilar að jarðvanginum, treysta
sér ekki lengur að reka hann án
þátttöku ríkisins þar sem samningur
um fjármagn frá ríkinu er útrunninn.
„Staðan er alvarleg, sérstaklega
nú þar sem framkvæmdastjórinn
er hættur, ferðamennskan er komin
á flug aftur og aldrei mikilvægara
en nú að vel sé stutt við faglegt
utanumhald ferðamannastaða,“ segir
Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður
stjórnar Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga (SASS).
„Svæðið innan jarðvangsins hefur
notið góðs af rannsóknarstarfi og
markvissri kortlagningu náttúruperla.
Jarðvangurinn hefur staðið fyrir
merkingum og upplýsingagjöf
við marga ferðamannastaði og átt
aðkomu að skipulagningu þeirra.
Færi svo að jarðvangurinn myndi
leggjast af þá er hætt við að þessu
verði ekki nægilega markvisst sinnt
og að rannsóknarstarf, sem m.a.
hefur verið unnið í samstarfi við
skólana á svæðinu, myndi leggjast
af. Auk þess sem vottun jarðvangsins
fellur niður.“
Treystir á ríkið
Ásgerður segir að jarðvangurinn
standi fyrir mikilvægum rannsóknum
á náttúru svæðisins og viðhaldi
þekkingu heimamanna með
samstarfi við skólana. Hann styðji
einnig við fagmennsku innan ferða-
þjónustunnar á svæðinu sem er
gríðarlega mikilvægt nú þegar hún
er orðin stærsta atvinnugreinin innan
jarðvangsins.
„Það væri sorglegt að stefnuleysi
ríkisins í máli jarðvanga yrði til
þess að þeim væri ekki tryggður
rekstrargrundvöllur. Ég vona að
stjórnvöld komi sér saman um að
móta stefnu til framtíðar. Ég vona
innilega að það takist að fjármagna
reksturinn svo ekki komi rof í þá
mikilvægu vinnu sem unnin er á
vettvangi jarðvangsins.
Stjórn SASS tekur undir áhyggjur
samtakanna „Global Geoparks
Network“ og hvetur umhverfis-,
orku- og loftslagsráðherra fyrir
hönd ríkisins til að finna leið til að
fjármagna rekstur jarðvangsins, enda
gegnir hann mikilvægu hlutverki
og heldur utan um stórbrotna
jarðfræðilega minjastaði,“ segir
Ásgerður. /mhh
Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður
stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitar-
félaga (SASS).
Kjötvinnsla:
Vaxandi áhugi bænda
og smáframleiðenda
Sauðfjárbóndinn Jónas Þórólfsson
og kjötiðnaðarmeistarinn Rúnar
Ingi Guðjónsson fara saman um
landið og leiðbeina bændum og
smáframleiðendum um réttu
handtökin í kjötvinnslunni. Þeir
finna fyrir vaxandi áhuga á
heimavinnslu kjötafurða.
Þeir stofnuðu saman kennslu-
og ráðgjafarfyrirtækið Frávik
fyrir rúmum tveimur árum og
kenna meðal annars úrbeiningu og
pylsugerð.
Jónas Þórólfsson er kjöt-
iðnaðarmaður og bóndi á
Syðri-Leikskálaá í Útkinninni í
Þingeyjarsveit, með sauðfé og
nautgripi. Hann hefur starfað við
fagið í um 22 ár og hefur gegnt
ýmsum störfum í kjötiðnaði, þó
mest við slátrun og úrbeiningu.
Rúnar Ingi Guðjónsson er
kjötiðnaðarmeistari og með
kennsluréttindi fyrir iðnmeistara,
hann býr á Akureyri og starfar í dag
hjá Kjarnafæði Norðlenska. Hann
hefur starfað við fagið frá 2004 og
hefur gengið í flest öll störf sem snúa
að kjötiðnaði. Hann hefur að mestu
unnið við vinnslu og fullvinnslu
kjötafurða en í dag starfar hann sem
gæðafulltrúi. „Saman höfum við
yfirgripsmikla þekkingu sem lýtur
að kjötvinnslum, allt frá slátrun að
fullvinnslu og þá gæðastaðla sem
við þurfum fylgja þegar við erum
að vinna við matvælin,“ segir Rúnar.
Að sögn Rúnars eru það helst
bændur, fólk í matvælaiðnaðinum
og veiðimenn sem hafa áhuga á
slíkri matvælavinnslu.
„Varðandi ráðgjöfina þá höfum við
líka verið að reikna út næringargildi
og gera innihaldslýsingar fyrir
smáframleiðendur. Einnig vorum
við í febrúar fengnir í virkilega flott
verkefni í vöruþróun í Fljótsdalnum
á Austurlandi sem fólst í vinnslu á
snakkpylsum,“ segir Rúnar.
Aukinn áhugi á að
auka virði sinna afurða
„Já, við finnum fyrir því að bændur
og smáframleiðendur hafa meira
sambandi við okkur,“ segir Rúnar
þegar hann er spurður um hvort þeir
finni fyrir auknum áhuga bænda.
„Þá aðallega til að læra eða til
upprifjunar á handtökunum við til
dæmis úrbeiningu og pylsugerð. Þeir
bændur sem hafa komið á námskeið
hjá okkur hafa einmitt komið til að
auka sína þekkingu og til að geta
aukið virði sinna afurða,“ segir
Rúnar. „Við höfum ekki enn þá tekið
að okkur að aðstoða bændur við að
setja upp kjötvinnslur eða aðstöðu til
heimaslátrunar en það er allt opið hjá
okkur,“ bætir Rúnar við.
Úrbeiningar- og
pylsugerðarnámskeið
Hann segir að mest sé eftir-
spurnin eftir úrbeiningar- og
pylsugerðarnámskeiðum.
„Við höfum verið að prófa að
bjóða upp á tveggja daga námskeið
þar sem við förum yfir úrbeiningu
annan daginn og þann næsta
förum við yfir fullvinnslu afurða,
til dæmis pylsugerð, kæfugerð
og söltun. Einnig höfum við
verið að fá fyrirspurnir varðandi
hráverkunarnámskeið en það er í
vinnslu hjá okkur.“
Þegar talað var við Rúnar
um miðjan maí voru þeir að
leggja lokahönd á skipulagningu
námsferðar til Austurríkis þar sem
þeir munu sjálfir fara á námskeið
í snakkpylsugerð og annarri
fullvinnslu kjötafurða. Rúnar segir
að næsta námskeið á þeirra vegum
verði að líkindum næsta haust þar
sem Jónas sé á fullu í sauðburði, svo
taki sumarverkin við og því næst
göngur í haust. /smh
Sauðfjárbóndinn Jónas Þórólfsson á námskeiði í full-
verkun á lambi sem haldið var í Reykjavík í mars.
Kjötiðnaðarmeistarinn Rúnar Ingi Guðjónsson
segir að mest sé eftirspurnin eftir úrbeiningar- og
pylsugerðanámskeiðum. Myndir / Frávik
Innlit í kjúklingabú
Kjúklingabændurnir Eydís Rós
Eyglóardóttir og Ingvar Guðni
Ingimundarson á Vatnsenda í
Flóahreppi opna bú sitt og kynna
búgrein alifuglabænda þann 3.
júní næstkomandi.
Kjúklingabúið Vor er eitt af
stærri kjúklingabúum landsins, en
að Vatnsenda hefur verið ræktaður
kjúklingur frá árinu 1978. Eydís og
Ingvar Guðni tóku við búi foreldra
hans árið 2015. Þar eru nú fjögur
eldishús með fimm eldishólfum.
Árið 2021 voru tvö ný eldishús tekin
í notkun en með þeim þrefaldaðist
framleiðslugeta búsins og telur
nú um 40.000 fugla. „Tilgangur
viðburðarins er einna helst að fræða
almenning um okkar búgrein en
vegna strangra sóttvarnarreglna er
takmarkað hvað fólk getur kynnt sér
búskapinn. En þar sem við reistum
nýju húsin á tímum Covid var ekkert
eiginlegt opnunarpartí svo það má
segja að við séum líka að tvinna
það saman og gefa fólki tækifæri á
að sjá byggingarnar okkar sem eru
glæsilegar á svo margan hátt,“ segir
Eydís Rós.
Kjúklingabúið Vor á Vatnsenda
verður opið milli klukkan 13 og 17
laugardaginn 3. júní. Viðburðurinn
er hluti af fjölskyldu- og menningar -
hátíðinni Fjör í Flóa sem sveitar-
félagið Flóahreppur heldur ár hvert.
/ghpEydís Rós Eyglóardóttir og kjúklingur.