Bændablaðið - 25.05.2023, Page 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
NYTJAR HAFSINS
Strandveiði:
Kúabændur, bifvélavirkjar og trillukarlar
Hvað eiga kúabændur, bifvéla
virkjar og trillukarlar sameigin-
legt? Ekki veit ég það en LÍÚ
hefur einhvern veginn tekist að
troða okkur undir sama hatt.
Þannig er mál með vexti að nýverið
birti Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands skoðanakönnun um viðhorf
Íslendinga til sjávarútvegsmála.
Könnunin leiddi í ljós að þjóðin
hefur fengið sig fullsadda af
þeirri spillingu sem kvótakerfið
hefur leitt af sér en vill aftur á
móti rétta hlut strandveiðiflotans
svo um munar; þrír af hverjum
fjórum Íslendingum vilja að bætt
verði í strandveiðipottinn. Í sjálfu
sér eru þetta engar fréttir þar sem
niðurstöðurnar endurspegla allar
þær skoðanakannanir sem gerðar
hafa verið á þessu viðfangsefni.
Stjórnvöld hafa þó gott af því að fá
reglulega áminningu um að þau séu
að ganga þvert á vilja þjóðarinnar í
stefnu sinni í sjávarútvegsmálum.
Könnunin kemur sem sagt illa út
fyrir kvótakóngana en trillukarlar
og konur standa uppi með pálmann
í höndunum. Þá er áróðursmaskínu
LÍÚ snúið í gang eins og gamalli
24 hestafla BUKH vél og er aflið í
málflutningi eftir því. Nauðvörnin
er alger eins og tíðkast hjá þeim
sem eiga vondan málstað að
verja. Röksemdafærslan – eða
öllu heldur rökleysan – afhjúpar
hversu erfiðlega þeim reynist að
finna flöt á umræðunni sér í hag.
Ég ætla að skoða tvö dæmi um
örvæntingarfulla nauðvörn LÍÚ við
skoðanakönnuninni.
Trillukarlar sem Bjössi
á mjólkurbílnum
Fyrra dæmið er greinin
„Strandveiðar – sveitarómantík“
eftir Samúel Sigurjónsson, sem
birtist 15. maí á visir.is. Inntakið er
að „hobbýveiðar“ strandveiðiflotans
ræni „atvinnusjómönnum“ störfum
sínum. Hann segist vera kominn
í þriggja mánaða launalaust
frí, væntanlega vegna þess að
útgerðaraðilinn hans er búinn með
kvótann sinn sökum dæmalausrar
fiskgengdar og mokfiskerís. Þetta
er ósanngjarnt því á meðan er
strandveiðiflotinn að fiska eins og
enginn sé morgundagurinn.
Höfundur veltir því kaldhæðnis
lega fyrir sér hvort ekki mætti gera
það sama með mjólkurflutninga: setja
upp kerfi fyrir „frístundamjólkurbíla“
í anda strandveiðikerfisins. Ef
frístundamjólkurbílstjórar sækja
betri afurð á umhverfisvænan og
félagslega ábyrgan hátt og selja
svo mjólkina á hærra verði, þá
er þetta í sjálfu sér ekkert galin
hugmynd hjá honum. Það sem er
þó áhugavert við röksemdafærsluna
er það að hann reynir að geirnegla
mýtuna um að strandveiðar séu í
eðli sínu frístundaveiðar frekar en
afleiðing handónýtrar stjórnsýslu.
Taktíkin er að skera pottinn svo
við nögl að ekki sé hægt að lifa á
strandveiðum og svo að úthrópa þær
sem hobbísjómennsku vegna þess að
enginn getur haft þær sem aðalstarf.
Ef Samúel er kominn í þriggja
mánaða launalaust leyfi þá ætti
hann að biðja atvinnuveitanda sinn
að skipuleggja útgerðina sína betur.
Þrátt fyrir allt tal Þorsteins Más
um mikilvægi þess að vera „365“
með stöðugt og öruggt framboð
af fiski í erlenda stórmarkaði,
þá gat stórútgerðin ekki stillt sig
og ryksugaði upp kvótann sinn á
mettíma. Það þýðir ekki að kenna
trillukörlum um þetta sjálfskaparvíti.
Öllu nær væri að þakka þeim
fyrir að hlaupa í skarðið og bjarga
því sem bjargað verður á erlendum
mörkuðum.
Sannleikurinn er sá að allur
strandveiðipotturinn eins og hann
leggur sig myndi vart duga fyrir einn
ísfisktogara. Í stað 700 starfa sem
dreifast um landið byðust eingöngu
50 störf þar sem kvótakóngunum
hugnaðist að hafa þau. Hafa ber í
huga að hlutdeild strandveiða af
heildarafla innan kvótakerfisins er
á bilinu 1,52%. Er það virkilega
svo að þessi hungurlús sé að setja
sægreifana á hliðina?
Íslenska þjóðin sem bifvélavirkjar
Seinna dæmið er greinin „Læknar
bifvélavirki eyrnabólgu?“ sem
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir
tækja í sjávarútvegi (LÍÚ), skrifaði
fyrir Bláa hagkerfið 4. maí.
Hún byrjar á að undra sig á því
að skoðanakönnun með úrtak upp
á 1.133 manns geti talist marktæk.
Þetta eru jú eingöngu 0,4%
landsmanna. Kannski þekkir hún
ekki fræðin á bak við skoðana
kannanir (og ætti því, eðli mál
flutnings hennar samkvæmt, ekki
að hafa skoðun á þeim) en það
þarf töluvert sterkari rök til þess
að smætta fagmennsku kollega
minna í Félagsvísindastofnun niður
í fúsk. Þar starfa tölfræðingar og
félagsvísindafólk á heimsmæli
kvarða. Það eru þó ekki starfshættir
Félagsvísindastofnunar sem er stóri
skúrkurinn í skoðanakönnuninni
heldur íslenska þjóðin, því hún
hefur ekki hundsvit á sjávarútvegi.
Heiðrún Lind leggur það að jöfnu
að spyrja þjóðina hvað henni finnst
um fiskveiðistjórnun á Íslandi og
að biðja bifvélavirkja um að lækna
eyrnabólgu. Bifvélavirkjar mega
þá væntanlega ekki hafa skoðun
á heilbrigðiskerfinu heldur. Það
sem skín í gegnum greinina er að
Íslendingar vita ekki neitt. Þeir eru
svo vitlausir að þeir geta ekki látið
fólk með yfirburðagáfur sjá um
meðferð auðlindarinnar okkar.
Vandamálið er að fólk þarf ekki
að þekkja muninn á almennum og
sértækum byggðakvóta til þess að
sjá að það er vitlaust gefið í kerfinu.
Þjóðin virðist vera staðföst í skoðun
sinni að fiskveiðar séu mikilvægar
fyrir efnahag landsins. Könnunin
sýnir því ekki eingöngu að þjóðin
sé vel meðvituð um hvernig
kvótakerfið hefur grafið undan
atvinnumöguleikum þjóðarinnar og
tekið sjálfsákvörðunarrétt af fólki,
heldur líka hvernig megi lagfæra það
sem aflaga hefur farið í kerfinu. Það
er greinilega sterk réttlætiskennd
í landinu sem sést á skoðunum
almennings um hvað myndi stuðla
að sátt um sjávarútveginn. Efst
á lista eru gagnsæi á kvótaeign,
hækkuð veiðigjöld, ákvæði í
stjórnarskrá að þjóðin eigi fiskinn,
bann á framsali kvóta, og auknar
smábátaveiðar.
En hvar er matvælaráðherra?
Ég álasa ekki LÍÚ fyrir bullið
sem upp úr þeim vellur. Þau eru
eingöngu að verja sína hagsmuni
og hafa ekki úr öðru að moða. Öðru
máli gegnir um matvælaráðuneytið.
Strandveiðivertíðin hófst 2. maí
síðastliðinn í skugga smánarlegrar
framkomu matvælaráðuneytisins í
garð smábátasjómanna. Í allan vetur
hefur ráðuneytið dregið lappirnar
með að ákveða fyrirkomulag
vertíðarinnar. Frumvarp um svæða
skiptingu strandveiðipottsins
– sérhannað til þess að sundra
samstöðu innan strandveiðiflotans
– var keyrt í gang á síðustu stundu
með þeim afleiðingum að algjör
óvissa ríkir enn, þremur vikum eftir
vertíðarbyrjun.
Ráðuneytið virðist standa í
þeirri trú að eingöngu tvær leiðir
séu í boði fyrir strandveiðikerfið:
óbreytt ástand (lokuð svæði,
opinn pottur), eða svæðaskipting
(fjögur svæði, fjórir pottar, fjögur
tímabil). Svo er ekki þar sem að
þriðja leiðin liggur fyrir, sem er
að afnema stöðvunarheimildina,
en Strandveiðifélag Íslands
styður tillögu Landssambands
smábátaeigenda að fórna nokkrum
sóknardögum á móti. Við höfum
látið atvinnuveganefnd vita að
við teljum þetta einu ásættanlegu
lausnina. Strandveiðiflotinn kallar
eftir þessu einum rómi, hringinn í
kringum landið.
Með því að fara þessa leið myndi
ráðherra kaupa sér tíma í sumar
þannig að allir gætu klárað vertíðina
sáttir. Hún gæti svo notað næsta
vetur – sem verður að hennar sögn
tileinkaður nýjum frumvörpum sem
byggja á fyrrnefndri skoðanakönnun
– til þess að finna leiðir til að
fara eftir vilja þjóðarinnar og
efna eigin loforð um að styrkja
strandveiðikerfið í sessi.
Höfundur er félagsfræðingur,
trillukarl og formaður
Strandveiðifélags Íslands.
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
Heiðrún Lind leggur það að jöfnu
að spyrja þjóðina hvað henni finnst
um fiskveiðistjórnun á Íslandi og að biðja
bifvélavirkja um að lækna eyrnabólgu.
Bifvélavirkjar mega þá væntanlega ekki hafa
skoðun á heilbrigðiskerfinu heldur.“
Samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf Íslendinga til sjávarútvegsmála vilja þrír af hverjum fjórum Íslendingum að bætt verði í strandveiðipottinn.
„Könnunin leiddi í ljós að þjóðin hefur fengið sig fullsadda af þeirri spillingu sem kvótakerfið hefur leitt af sér en vill aftur á móti rétta hlut strandveiðiflotans svo um munar.“ Mynd / KPS
Kjartan Páll Sveinsson
kjartan.sveinsson@gmail.com