Bændablaðið - 25.05.2023, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
LÍF&STARF
Nákvæmnisbúskapur er að ryðja
sér til rúms og íslenskir bændur
farnir að nýta sér tækni sem gerir
þeim kleift að safna dýrmætri
þekkingu og hámarka skilvirkni.
Landbúnaður er með elstu
atvinnugreinum og í tímans rás hefur
hann þróast og tileinkað sér nýjungar
til að létta störfin og bæta gæði
og framlegð. Nú á tímum hinnar
svokölluðu fjórðu iðnbyltingar, sem
sögð er fela í sér tækniframfarir í
veldisvexti, hefur landbúnaðurinn
ekki farið varhluta af tækniþróun.
Nákvæmnisbúskapur (e. Precision
Land Management) er ein
birtingarmynd þess og á væntanlega
eftir að valda straumhvörfum í
greininni og er þegar farinn að gera
það á íslenskri grund.
Nákvæmnisbúskapur felur í sér
upplýsingasöfnun; að kortleggja
breytileika í ræktunarlandi til að
auka arðsemi ræktunar og draga úr
neikvæðum áhrifum á umhverfið.
Hann fjallar um GPS-tækni, snjöll
farartæki sem búa yfir ýmsum
stjórnbúnaði og hugbúnaði fyrir
landbúnað. Unnt er að staðsetja
vinnu til dæmis dráttarvélar svo
varla skeikar sentímetra. Þetta má
nýta meðal annars til aukinnar
nákvæmni í að plægja og herfa land,
í sáningu og uppskeru og samhliða
eru reiknuð ýmis skilvirknigögn,
svo sem vegalengdir og
eldsneytisnotkun á ha/klst. Bændur
geta haft fullkomna stýringu á til
dæmis sáningu, áveitu og áburði til
að hámarka afraksturinn og stjórna
nákvæmlega hversu mikið er notað
af hverju, hvenær og hvar. Stöðugt
er leitast við að draga úr kostnaði og
sóun, auka uppskeru en lágmarka
álag á umhverfið, að gera meira með
minna, enda aðföng bænda svo sem
fræ, áburður, orka og vatn oft og
tíðum kostnaðarsamir liðir.
Nákvæmnisbúskapur hefur
vissulega á ýmsan hátt verið
stundaður í allnokkurn tíma
en hann er um þessar mundir í
hraðri þróun. Á heimsvísu skiptir
verulegu máli að um leið og fólki
fjölgar sé hægt að nýta tækni með
jákvæðum hætti til að hámarka
fæðuframleiðslu með bestu nýtingu.
Þarna eru bændur í fararbroddi með
einhverja verðmætustu auðlindina,
jarðveginn.
Nýjar aðferðir
Á Íslandi hafa bændur nýtt GPS-
tækni í til dæmis áburðardreifingu,
safnað er raungögnum um ræktað
land, jarðvegsgerð, gróðurþekju,
uppskeru, innihald mjólkur,
við beiðslisgreiningar og ýmis-
legt fleira.
Björgvin Þór Harðarson,
svína- og kornbóndi og iðnaðar-
tæknifræðingur í Laxárdal í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi, hélt
á dögunum fyrirlestur á ársfundi
Landbúnaðarháskóla Íslands þar
sem hann ræddi meðal annars um
kornrækt, nákvæmnisbúskap og
nauðsyn á samvinnu landbúnaðar-
greina. Í Laxárdal er rekið svínabú
undir nafninu Korngrís og ræktað
bygg, nepja, hveiti, rúgur og hafrar.
Svínin eru að mestu leyti alin á
íslensku fóðri. Í dag fer öll kornrækt
Laxárdals fram í Gunnarsholti, á um
340 ha lands.
Í erindi Björgvins kom fram að
nú sé sáning, áburðardreifing og
jarðvinnsla unnin að mestu leyti
með einni vél sem geri allt og þannig
náist svokölluð lágmarksvinnsla.
Vélin valti, annist sáningu, á henni
sé diskaherfi og hún dreifi áburði,
allt í sömu ferðinni. Þessi aðferð sé
nú í mjög vaxandi mæli notuð, ekki
síst vestanhafs, til þess meðal annars
að koma í veg fyrir jarðvegsrof eftir
sáningu. Björgvin beitir að vísu
aðeins meiri jarðvinnslu, akrarnir
eru fyrst herfaðir og vélinni svo
beitt sem þýðir að farnar eru tvær
ferðir yfir akurinn. Nýja vélin bjóði
þannig upp á nýjar aðferðir við
jarðvinnsluna.
Þá hafi hann í ár tekið í notkun
dráttarvélar sem stýrt sé með GPS
og með nákvæmni upp á um 2,5
cm. Stuðst sé við leiðréttingarkerfi
sem Landmælingar Íslands reki,
það sé grunnþjónusta sem látin
sé endurgjaldslaust í té og þannig
hægt að nýta hina nýju tækni
nákvæmnisbúskaparins. Í ESB-
löndunum sé sú stefna að ryðja sér
til rúms að allar dráttarvélar sem
vinni á ökrum verði GPS-stýrðar,
til eftirlits og lágmörkunar og
hámarksnýtingar áburðargjafar.
Björgvin tók sem dæmi að
traktorinn hans keyri í Gunnarsholti
eftir GPS-merki, ekki þurfi að stýra
honum og hann keyri sjálfur fram og
til baka um akrana. „Við ætlum að
gera þetta í kornræktinni, fara beint
yfir í þá tækni sem búið er að finna
upp núna,“ sagði hann í erindi sínu.
Strax í nýjustu tækni
Nýjast í nákvæmnisbúskap séu
drónar. „Þú sendir drónann af stað,
hann flýgur yfir akur, kortleggur
hann með þúsundum mynda,
jarðvegsgreinir hann og þú getur
fengið út úr því til dæmis hvar
illgresið er og hvar steinarnir eru og
farið svo og tínt þá upp. Mögulega
gætirðu fengið einhverjar myndir
af jarðvegsgerðinni á hverjum stað
og haft vélar sem taka inn kort af
þeim breytilegu áburðarþörfum
sem þú vilt mæta, þetta er það
nýjasta í þessu,“ sagði Björgvin og
bætti við að með þessu væri akurinn
betur nýttur, olía og tími sparaðist,
vinnslubreiddin á tækinu væri nýtt
til hins ýtrasta og gæði vinnslunnar
aukin. Björgvin sagði allt byggjast
á að landbúnaðurinn ynni saman og
að hann þyrfti að verða fjölbreyttari.
Þannig væru ýmis efni sem
féllu til í til dæmis jarðrækt,
kornrækt, skógrækt, loðdýrarækt,
við framleiðslu á mjólk og kjöti,
grænmeti og í fiskeldi, sem nýta
mætti innbyrðis milli greina.
/sá
Heimild: The New Economy og LbhÍ
HONDA GÚMMÍBÁTAR &
UTANBORÐSMÓTORAR
FÁST Í BYKO FAGVERSLUN
SELHELLU 1
GÆÐI
Í YFIR
40 ÁR
honda@byko.is | 515-4018
Tækniþróun:
Nákvæmnisbúskapur skiptir sköpum
– GPS-stýrðar dráttarvélar í jarðvinnslu og drónar safna upplýsingum
Björgvin Þór Harðarson, svína- og kornbóndi í Laxárdal. Mynd / ghp
GPS-stýrði traktorinn hans Björgvins keyrir sjálfur um akrana í Gunnarsholti
og gerir það sem gera þarf. Myndir / Úr einkasafni
Sáning, áburðardreifing og jarðvinnsla er unnin að mestu leyti með einni vél.