Bændablaðið - 25.05.2023, Page 30

Bændablaðið - 25.05.2023, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 LÍF&STARF Hringrásarhagkerfið: Bambahús hasla sér völl – Vilja vera leiðandi afl í mótun framtíðarstefnu í uppvinnslu- og endurvinnslumálum Bambahús draga nafn sitt af bömbum, sem eru sterkbyggðir 1.000 lítra IBC söfnunarkassar/ tankar fyrir t.d. vökva, matvæli eða spilliefni. Öryggisgrind tankanna er gerð úr galvaníseruðum stálrörum og þolir mjög harkalega meðferð og skelin hágæðaplast (HDPE). Aflóga bambar verða svo að gulli í greipum Bambahúsa því efnið úr þeim er notað í gróðurhús sem fást í ýmsum stærðum. Jón Hafþór Marteinsson er framleiðandi gróðurhúsanna. Hann var nýkominn af sjó þegar Bændablaðið hafði samband og segist vera að vinna að hugmynd sem gæti umbylt strandveiðum talsvert hvað varðar öryggi og aðbúnað sjómanna og veiðihæfni hvers báts. Hann vildi ekki gefa meira upp um verkefnið að svo stöddu svo við setjum fókusinn á Bambahús hans. Kennir börnum að hlúa að lífi Velgengni Bambahúsa segir Jón Hafþór fyrst og fremst að þakka þeim sjálfum og þeim fjölmörgu grunn- og leikskólum sem hafa tekið sjálfstæðar ákvarðanir um að kenna börnum ræktun og annað í Bambahúsum. „Síðan fyrstu Bambahúsin urðu til er kominn fjöldi Bambahúsa við grunn- og leikskóla víðs vegar um landið og þau hafa hafa verið fjármögnuð með ýmsum ráðum,“ segir Jón Hafþór og heldur áfram: „Nú í dag er hægt að telja um 90 húseiningar víðs vegar um landið og um það bil 30 af þeim eru staðsettar fyrir utan leik- og grunnskóla. Við finnum fyrir mikilli vakningu meðal kennara um mikilvægi þess að krakkar kynnist náttúrunni á þennan hátt. Í bónus með Bambahúsum eru börnin að sjá hvernig hlutir geta breytt um form. Það virkjar svo þeirra sköpunarkraft til áframhaldandi verka í að umbreyta og hlúa að lífi.“ Hann segir ljóst að áhugi skólanna fari ört vaxandi og þeir virðist meðvitaðir um þörf á að ræktun og meðferð plantna verði framar á námskránni en verið hefur. „Bara það að starfsemi Bambahúsa geti fullum fetum merkt sig 9 af 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun ætti að vekja viðbrögð þeirra sem standa að innflutningi á þessum bömbum og hjálpa okkur við að nýta efnið í eitthvað gagnlegt fyrir samfélagið,“ segir hann. Styrkur húsanna, einföld uppsetning, lágt verð, lítið viðhald og jákvæð umhverfisáhrif gera húsin eftirsóknarverð, að sögn Jóns Hafþórs. „Það eru mikil tækifæri til uppvinnslu og hringrásar í matvælaiðnaði á Íslandi. Framlag Bambahúsa býður upp á fullkomna lausn á uppvinnslu þess bamba- úrgangs sem til fellur í iðnaði hér á landi. Að búa til úr þeim gróðurhús fyrir skóla, sem munu nýtast sem kennslurými fyrir komandi kynslóðir um uppvinnslu, umhverfisfræði og ræktun, er risastórt skref sem stuðlar að eflingu hringrásarkerfisins á Íslandi,“ segir hann jafnframt. Almenningur vakni til vitundar Húsin eru að sögn Jóns Hafþórs veðurþolin, notendavæn og nær viðhaldsfrí og hafa fram yfir önnur gróðurhús að þurfa ekki jarðfestingar og geta staðið hvar sem er á sléttum fleti. Þau henti jafnt í ræktun í mold sem og í hydroponic-ræktun (vatnsræktun plantna) og aquaponic-ræktun (fisk- og plönturæktun í vatni). „Íslendingar framleiða aðeins 10% af því grænmeti sem þeir neyta og aðeins 3% ávaxta í ræktun með umhverfisvænni orku og hreinu vatni,“ segir hann. „Innflutningur á grænmeti er kostnaðarsamur og kolefnisfrekur. Með ræktun grænmetis hér á landi sparast kolefnisspor vegna innflutnings, pökkunar og umbúða. Við þurfum að huga að því að verða sjálfbærari í matvælaframleiðslu en einnig endurnýtingu efnis og uppvinnslu þess.“ Hann segir að eitt helsta vandamálið varðandi ræktun og því að ná meiri sjálfbærni í matvælaframleiðslu sé þekkingarleysi almennings. Lýsing og sjálfvirkni hafi aldrei verið eins aðgengilegt og þar með aldrei verið jafnauðvelt að rækta sinn eigin mat. Samkvæmt Jóni Hafþóri eru um 5.000 IBC-tankar eða bambar fluttir til landsins á hverju ári. „Úr þeim gætum við smíðað 700 hús á ári. Það er mjög kostnaðarsamt að flytja þessa tanka utan til endurvinnslu og því hafa þeir verið urðaðir eða nýttir undir rusl sem fer til útflutnings. Þá eru úrvinnsluaðilar að losa sig við bamba með því að flytja í þeim úrgang. Þetta þykir okkur í Bambahúsum miður því við höfum fundið leið til að nýta þessa tanka og búa til úr þeim vöru sem er í raun verðmætari en upprunalega Jón Hafþór Marteinsson, upphafsmaður Bambahúsa og framleiðandi þeirra, segir fyrirtækið vilja vera afl til fræðslu og sjálfbærni. Myndir / Bambahús Gróðurhús á Hvalsnesi á Reykjanesskaga fauk á haf út í óveðri og nú er búið að setja þar Bambahús sem vonandi stenst atlögur veðursins. Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is Hugmyndin að Bambahúsunum varð til í ársbyrjun 2020 hjá fjölskyldu í Bolungarvík. Um er að ræða gróðurhús úr einnota umbúðum sem ella myndu urðast sem rusl. Fyrsta gróðurhúsið, ásamt mold og moltu, var gefið Bolvíkingum svo að bæjarbúar gætu sameinast um að rækta þar mat handa sér og sínum. Gróðurhúsin nýtast sem kennslurými í fjölmörgum leik- og grunnskólum víða um land.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.